Spegillinn - 15.12.1971, Page 15

Spegillinn - 15.12.1971, Page 15
Kveðja til M. J. Mestur allra þjóðarsómi Matthías stýrir Morgunblaði, mun það gott í alla staði -, mönnum sé það minnisstœtt: Landsmál eru laus í reipum, lýðveldið í heljargreipum, sigurmerkið sundurtœtt. Matthías er svo ,,mikill andi“, mestur einn á voru landi, eins og hann á œttir til. Honum er það heilög skylda, hugarfarið sitt að milda, þegar kalinn þráir yl. Matthías þykir myndarlegur, mun hans ennþá greiðast vegur, frómt er horfir fram á leið. Ekki þarf hann eymd að kvíða -, orðrómurinn flýgur víða um hans glæsta œviskeið. Matthías reynist mörgum góður, margra styrkir andans gróður, án þess nokkurn undri slíkt. Hugsjúkum oft hollráð gefur -, hann er enginn klœkjarefur, œttarmótið er svo ríkt. Matthías er að mínum dómi mestur allra þjóðarsómi, œttjörðin sem á í dag. Stœði hann við stjórnartauminn, styrkjast mundi trú á drauminn um að bœta allra hag. Matthías viróist maður Ijúfur -, mörgum finnst hann nokkuð hrjúfur, Undir niðri ylur býr. Óska vil ég alla daga, að hans verði lífsins saga eins og fagurt œvintýr.

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.