Stúdentablaðið - 15.05.1928, Blaðsíða 3
Blaðið og áhugamál stúdenta.
1 rauninni ætti það að vera óþarfi að skrifa
þessar línur, svo sjálfsögð eru atriði þau,
sem þær fjalla um. En fram hjá því verður
eigi komist, að misskilningur, ef ekki verra,
hefur komist inn hjá sumum mönnum, jafn-
vel innan vjebanda stúdenta sjálfra, um
blað þetta, tilgang þess og viðhorf gagnvart
stúdentaheiminum.
Meinlaus er sá misskilningur, sem lýsti
sjer nýlega í greinarkorni í blaði einu hjer
í bæ, þar sem Stúdentablaðsins var að
nokkru getið. Hið sorglegasta við þann mis-
skiining er, að öll líkindi eru til þess, að höf.
sje sjálfur stúdent og gamall starfsmaður í
„víngarðinum“, því er honum minni vorkun
en öðrum, að rita sannar og dæma rjettar.
Svo gripið sje á kýlinu, þá efast þessi háttv.
(og mikilsverði höf., þó svona hafi nú til-
tekist í þetta skifti) um það, hvort blaði
voru sje haldandi úti sem mánaðarblaði.
Honum og öðrum er auðvitað guð-velkom-
ið að efast. Reynslan ein fær úr því skorið
hvort blaðið getur borið sig fjárhagslega.
Ef einhver hefur löngun til þess að ræða það
atriði fram og aftur, þá skal honum það
heimilt vera, en fetinu framar er óholt að
fara, því byggi hann efasemdir sínar á því,
að á h u g a m á 1 stúdenta sj eu annaðhvort
svo fánýt eða svo einhliða og fá, að þau
nægi ekki til þess að blása lífinu í mánaðar-
blað, þá rekur hann sig á reynslu, sem þeg-
av er fengin.
Áhugamál stúdenta á síðastliðnum árum
hafa verið mörg og margvísleg. Höf. um-
rædds greinarstúfs telur upp ýms áhugamál,
sem upp hafa komið meðal stúdenta og sem
hann telur fjelagslífi þeirra til lofs. Honum
virðist þó ekki hafa dottið í hug, að einmitt
í blaði, sem kæmi út að m. k. einu sinni í
mánuði, fá stúdentar betra tækifæri en á
nokkurn annan hátt til þess að koma fram
með og ræða áhugamál sín. Það er þá rjett
að taka það frarn:
að ” Stúdentablaðið er vett-
vangu’r allra áhuga- og hug-
sjónamála stúdenta. Þannig er til
blaðsins stofnað, uppfylli það eigi þetta skil-
yrði þá hættir það af sjálfu sjer að vera
stúdentablað.
Miklu hættulegra en veigalítill misskiln-
ingur eða misgáningur er það blaðinu, og
raunar öllu fjelagslífi stúdenta, ef þeir bera
eigi giftu til þess að vera samtaka um fram-
kvæmdir áhugamála sinna, því andvanafædd
áhugamál eru öllum til tjóns og ama.
En vjer heitum á alla góða menn máli
voru til stuðnings: að gera Stúdentablaðið
að sannarlegum vettvangi skoðana, áhuga-
og hugsjónamála stúdenta.
Ef þetta tækist, fyrir atbeina allra stúd-
enta, hvaða skoðun eða stefnu, sem þeir að-
hyllast, þá myndi blaðið ekki einasta verða
þeim sjálfum til gagns og ánægju, heldur
myndi það og á margvíslegan hátt geta haft
áhrif út á við. Þess er a. m. k. að vænta, að
stúdentar verði nú sem fyr tillögugóðir um
merk þjóðmál og ekki ljelegri til fylgis en
aðrir menn.