Stúdentablaðið - 15.05.1928, Blaðsíða 17
1928
STÚDENTABLAÐ
15
Nýjar stefnur.
Á þinginu í vetur gáfu allir flokkar yfir-
lýsingu um það að þeir væru hlyntir því,
að sambandslögunum verði sagt upp þegar
samningstíminn við Dani er útrunninn.
Yfirlýsingar þessar vöktu hina mestu
eítirtekt. Þær voru og vel þess verðar og
dagurinn 24. febr. 1928 verður að vissu leyti
merkisdagur í sögu þjóðarinnar. En fram
yfir þetta verður ekkert sagt um yfirlýsing-
arnar eða daginn.
Hafi einhver gert sjer vonir um, að á þess
um yfirlýsingum flokkanna mætti byggja
einhverja framtíðar-pólitík, þá eru það tál-
vonir. Það sem flokkamir gerðu 24. febrúar
var ekkert annað en að draga óþægilega
tönn úr tanngarði lítils og umkomulauss
meðbróðurs.
Engin framtíðar-pólitík verður bygð á yf-
irlýsingum, sem í eðli sínu eru fyrirfram
sjálfsagðar. í uppsagnarákvæði sambands-
laganna liggur einmitt fyrirfram yfirlýstur
vilji þjóðarinnar. Hversvegna hefði uppsagn-
arákvæðið annars slæðst inn í lögin? Vænt-
anlega ekki upp á grín!
Nei, ný sjálfstæðisframsókn, nýjar sjálf-
stæðisstefnur verða aldrei raktar í neinu or-
sakasambandi til dagsins 24. febr. 1928.
Ný sjálfstæðisframsókn þýðir, að þjóðin
eygi langt fram á ókomna tíð, eygi það tak-
mark, sem vert er að keppa að, vert er að
fórna starfi og lífi. En hugsjónin, sem ligg-
ur falin í þessu takmarki verður og að eiga
djúp ítök í hug og hjarta þjóðarinnar —
vera henni eiginleg og kær, því baráttan að
settu marki má eigi rjúfa sögulegt sam-
hengi viðreisnar- og frelsisbaráttu þjóðar-
innar. En slíkt takmark er endurreisn h i n s
forna lýðveldis á Isla n’d i í bún-
ingi, er fyllilega svarar til kröfu nútímans.
Þessari tönn gleymdu flokkamir — en það
var heldur enginn á þingi, sem hægt var að
draga tönnina úr. L. S.
Stúdentamótið í Stokkhólmi.
Fyrir tilstilli „Sveriges förenade Student-
kárer“, sem er samband allra sænskra stú-
dentafjelaga, verður norrænt stúdentamót
haldið í Stokkhólmi dagana 1.—5. júní. —
Þeir sem fara hjeðan að heiman, eru: Pjet-
ur Benediktsson stud. jur., Sigurjón Guð-
jónsson stud. theol., Sveinn Ingvarsson stud.
juris, Þorkell Jóhannesson mag. art., Einar
B. Guðmundsson cand. jur. og Þorsteinn Ö.
Stephensen stud. med.
Dagskrá mótsins verður:
1. júní: Mótið sett. Hátíðaræðuna flytur
Natan Söderblom erkibiskup. Um kveldið
veisla í Grand Hotel Royal.
2. júní: Fyrirlestur, síðan kappræður um
samvinnu norrænna stúdenta og alþjóða-
samvinnu stúdenta. — Um kveldið leikur
leikflokkur stúdenta frá háskólanum í Lundi
stúdentasjónleik (Spex).
3. júní : Farið til Uppsala.
4. júní: Fyrirlestrar um sjerstök málefni,
er varða hinar einstöku deildir háskólanna.
Skoðuð ýms söfn í borginni.
5. júní: Ræðuhöld. Veisla um kveldið, sem
bæjarstjórnin heldur gestunum í ráðhúsi
borgarinnar.
Skófatnaður
stórt úrval
fyrir eldri sem yngri.
Góðar vörur. Gott verð.
Hvannbergsbræður
o-