Stúdentablaðið - 15.05.1928, Blaðsíða 11
Í928
9
STÚDENTABLAÐ
fjársöfnun hófst á fullveldisdaginn, 1. des.
1922, en sá dagur er jafnframt hátíðisdagur
stúdenta og Háskólans. Sex manna nefnd
var falin fjársöfnun og framkvæmdir í mál-
inu og hefir sú nefnd setið á rökstólum síð-
an, enda þótt mannaskifti hafi orðið.
eigi sér vís herbergi í Garðinum handa stú-
dentum sínum, en það ætti, ef mögulegt:
væri, að vera markið, að hver einasta sveit
á íslandi eigi afdrep í Garði handa stúdent-
um sínum.
Stúdentagarðurinn
Austurhlið
inn að blómagarði
Jafnframt því sem hrundið vai' af stað
happdrættinu var þess leitað við sýslufélög
og bæjarfélög að leggja ákveðna upphæð,
5000 kr. til garðsins. En því var heitið á
móti, að eitt herbergi í garðinum skyldi bera
nafn gefandans. Hafa loforð um þessu
greiðslu til Stúdentagarðsins komið frá
nokkrum sýslum og bæjafélögum, en það
vantar þó töluvert á, að allar sveitir lands
Teikningar þær, sem hér birtast, hefur
Sigurður Guðmundsson, húsameistari, gert.
Að því er snertir innra útbúnað hússins,
herbergjaskipunina og þvílíkt, þá eru teikn-
ingarnar ekki enn endanlega ákveðnar. — En
eins og Stúdentagarðsmálið horfir við nú, þá
nálgast sú stund, að hafið verði verk að
byggingunni, nema algjörlega óvænt atvik
tálmi.