Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Side 19

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Side 19
STÚDENTABLAÐ 11 „ykkur“, þ. e. a. s. eiginhagsmunum lækna- og lögfræöinga skal þjónaö á kostnað jafn- réttis manna og frjálsræöis til menntunar. Hingað til hefir þótt illt afspurnar og hæpið mjög að hrófla við grundvallarreglum lýð- ræðisins, vegna eiginhagsmuna tiltölulega fárra manna, og svo verður einnig að líta á þessa fyrirhuguðu ráðstöfun. En setjum svo, að tilgangur takmörkunar væri réttur og brýnn. Hvaða leið á að fara til þess að framkvæma hana? Það er um allmargt að velja. Stúdentsprófseinkunnir, sérstakt inntökupróf, þyngd embættispróf, eða hluta af þeim, gáfnapróf og „vottorð“ um eðlis- gáfu, hegðun og innræti viðkomanda. Því miður vinnst ekki rúm til að segja annað um allar þessar leiðir en að þær séu hver annarri fráleitari. Það vill svo vel til, að próf. Alexander Jó- hannesson, núverandi háskólarektor, sagði á almennum stúdentafundi, að hann væri and- vígur gáfna- og inntökuprófum, og taldi að stúdentspróf og þyngd embættispróf væru heldlur ekki góð, en þó aðgengilegust. Hins- vegar taldi próf. Niels Dungal, fyrrverandi háskólarektor, á fundi læknadeildar, stúd- entspróf og þyngd embættispróf eða hluta þeirra óhæf, en hallaðist helzt að inntöku- prófum og þó sérstaklega að gáfnaprófum. Þessir menn eru báðir gáfaðir og mikil- hæfir og hafa báðir athugað þessi mál gaum- gæfilega. En hvorum á að trúa til þess að velja, þótt ekki sé nema það skársta af mörgu slæmu? Það mætti ef til vill í þessu falli beita hinni alkunnu jesúitareglu: tilgangurinn helgar tækið. En mér skilst að það þurfi nokkuð harð- bakaða jesúíta, til þess að beita henni, þegar umdeilt er, hvort tilgangurinn sé réttmætur ef á allt er litið. Hér hefir aðeins verið drepið á helztu atriði þessa máls, meira til þess að vekja menn til umhugsunar um það, heldur en að reynt væri að gera því full skil. Til þess er hér ekkert rúm og verður því við þetta að sitja að sinni. III. Félagsmál stúdenta. Innan Háskólans munu nú vera starfandi 11 — ellefu — félög. Þetta má heita vel af sér vikið, þegar þess er gætt, að í Háskólanum eru innritaðir um 270 manns. Vitanlega stunda þeir ekki allir nám og enn síður, að þeir taki þátt í félagslífi stúdenta. Þrjú þessara 11 félaga eru pólitísk. Hið stærsta þeirra, félag lýðræðissinnaðra stúd- enta, „Vaka“, starfar allmikið meirihluta há- skólaársins. Félag frjálslyndra stúdenta er nýstofnað. Klofnaði það á s. 1. vori úr Félagi róttækra stúdenta og kveður skiljanlega lítið að því ennþá. Á orði var haft í haust, að sam- komulag vinstri aflanna í Félagi róttækra væri ekki sem bezt og mundi það skiptast í annað sinn, en sá orðrómur hefir ekki rætzt. En vegna þessarar langvinnu „borgarastyrj- aldar“ hefir starfsemi félagsins legið mjög niðri. Aðalstarf þessara félaga er í sambandi við hinar árlegu stúdentaráðskosningar. Engin þörf er á að lýsa þeim, því þar er um að ræða smækkaða útgáfu af kosningum til Alþingis. Þá er vínbindindisfélag til í Háskólanum, en á heldur litlu gengi að fagna meðal stúd- enta. Ekki vegna þess, að stúdentar séu sér- lega vínhneigðir eða andvígir bindindi. Þvert á móti mun áfengisnautn vera mjög í rénun með stúdentum. Hitt mun sanni nær, að stúd- entar vilja vera frjálsir að því að bragða vín, ef svo ber undir. íþróttafélag Háskólans á heldur erfitt upp- dráttar, af ástæðum, sem ég skal síðar nefna, en þó hefir það starfað töluvert. Hefir það staðið að hinum árlega knattspyrnukappleik milli Háskólans og Menntaskólans, keppni í handbolta milli skóla, beitt sér fyrir kennslu í leikfimi og hnefaleikum og ásamt með Stúd- entaráðinu, staðið að boðsundskeppni milli skóla í Reykjavík. Stúdentafélag Háskólans heldur Rússagildi. Um hin félögin, félag laganema, „Orator“, Félag læknanema, Taflfélagið, Kristilegt stúd- entafélag og „Farfuglana" er það að segja,

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.