Stúdentablaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Qupperneq 35

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Qupperneq 35
STÚDENTABLAÐ 27 málsins og annarra aðstæðna. — En það, sem mest var talað um í sambandi við þessar umræður, var hin heiftarlega árás, sem fram- sögumaður Svía gerði á Danmörku vegna ekki-árásarsáttmálans við Þýzkaland. Pórust honum orð eitthvað á þá leið, að með þessu hefði Danmörk rofið norræna samvinnu o. s. frv. Urðu af þessu harðar umræður og gætti jafnvel nokkurs kala eftir þetta. En ég held mér sér óhætt að fullyrða, að Svíar voru einir um þessa skoðun, og hinar norðurlandaþjóð- irnar fylgdu Dönum að máli. En oftar en einu sinni skaut þessu deiluefni upp og skapaðist af þessu úlfúð, sem segja má, að hafi haldizt allt til loka mótsins. Enda birtu Kaupmanna- hafnarblöðin ítarlegar frásagnir um um- ræðufund þennan, og þótti súrt í broti að verða fyrir aðkasti á mótinu. — Um kvöldið var hátíðasýning í þjóðleikhús- inu og var leikin óperettan „Grevinne Mar- itza“ eftir Emerich Kálmán. Ég fór að vísu ekki í leikhúsið, en þeir, sem sáu leik- ritið, fannst heldur lítið til þess koma. Síðar um kvöldið hófst svo aðal skemmtun móts- ins á veitingahúsinu ,,Humlen“ og þá átti að fara fram hin margumtalaða gáfnakeppni (Interskandinavisk intelligenskonkurranse). Salarkynni á ,,Humlen“ eru gríðarstór og öll hin vistlegustu. Var hvert sæti skipað og „stemningin“ mikil með stúdentunum. Stutt- ar ræður voru fluttar og talaði undirritaður af okkar hálfu. Síðan léku norsku stúdent- arnir leikþátt (sketch), þar sem gert var gys að öllu skrafinu um norræna samvinnu. Leik- urinn var á þá leið, að fimm persónur, með stúdentahúfur Norðurlandanna fimm, þuldu ræður og voru allar ræðurnar eins. Var þeim tíðrætt um „nordisk samarbeide, skandinav- isk samarbeide, interskandinavisk samar- beide“. Ræðurnar voru allar fluttar á máli þeirrar þjóðar, sem í hlut átti og vöktu mik- inn fögnuð. Var það og eftirtektarvert, að is- lenzka ræðan var sögð fram með mjög sæmi- legum framburði. Svo hófst gáfnakeppnin, sem raunar er rangnefni, því aðalatriðið í keppninni er eng- Pokahlaupið. an veginn skarpar gáfur, heldur hnittin og skjót svör við ólíklegum og frumlegum spurn- ingum. Slík keppni mun algeng á Norður- löndum en við höfðum aldrei heyrt getið um þetta áður. Við urðum því mjög ánægð með okkar frammistöðu, en við sigruðum Norð- menn, en töpuðum fyrir Svíum og urðum nr. 2. En þó var ekki laust við að Danir yrðu dá- lítið móðgaðir yfir tveim spurningum, en þær voru svona: „Getið þér nefnt 4 danska í- þróttamenn, þér hafið hálfsmánaðarfrest til svarsins?“ En hin var: „Nefnið 4 danska vís- indamenn, frestur til svars, hálfur mánuður." Þessar spurningar áttu að vera fyndnar, en Dönum fannst sér misboðið, sem von var. Annars var hóf þetta hið ánægjulegasta, en mönnum fannst því lokið full-snemma, nefni- lega kl. hálf tvö. — Yfirleitt vildi það brenna við, að hátíðir og hóf hættu fulltímanlega, að minnsta kosti á mælikvarða okkar íslend- inga. T. d. hætti lögfræðingahófið kl. 1 og hafði verið hið ánægjulegasta. Þótti öllum afleitt að þurfa að slíta hófinu þá, en það varð þó að vera svo, þvi sporvagnar hættu að ganga kl. 1, en ekki hafði verið séð fyrir öðr- um ökutækjum. Hófið var nefnilega haldið nokkuð fyrir utan borgina á Holmenkollen. Við það tækifæri flutti ræðu af okkar hálfu Þór- ólfur Ólafsson cand. jur. — Annars vorum við íslendingarnir ekki aðeins slyngir í gáfnaraunum og öldrykkju, því að við sigruðum glæsilega í pokahlaupi. Rann Hauk-

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.