Stúdentablaðið - 01.12.1939, Qupperneq 41
STÚDENTABLAÐ
33
Dimmt er
Dimmt er í heimi.
Drúpir himinn.
Ymja i lofti
ógnir norna.
Svífa stormaský
sólna leiðir.
Þeytast naprar kyljur
úr norðurátt.
Siglir lítið skip
svalar unnir.
Leiftrað höfðu skœrt
Ijúfar stjörnur.
Bœgt því hættum frá
og birtu veitt.
Sveipað svalan mar
i siguráýrð.
Þrengist sortans svið.
Sökkva stjörnur.
Ríkir niðdimm nótt.
Náhljóð gjalla.
Verður bára blá
blóði drifin.
Heyrist heljargnýr
og hrœgamms org.
Skipsins dapra drótt
dreyrgar unnir
beitir hugarhrelld.
Hlymja sjóir.
í heimi
Enginn eygir dag.
Alltaf sortnar..
Visna vonablóm.
En vizkan deyr.
Halda djöflar dans.
Dauðinn leikur.
Hefur hörpur tvær:
Hrœsni’ og lygi.
Galdur vanda vel
völd og auður.
Sjálf slœr syndin takt
með svörtum klóm.
Fram hjá djöflafans
fleyið líður.
Verði töfrum tryllt
trausta þjóðin,
Vísar ekkert veg
voðans brautir,
þá brotnar fögur skeiö
í brekans hramm.
Dimmt er í heimi.
Drottinn gefi
vonarstjörnu blik
í vetrar stormum.
Helgi frelsinu
fagran dag
þjóðar skipið
þúsundir ára. Á.
upplýsinga um nám, náms- og dvalarskil-
yrði erlendis,
2) aðstoði námsmenn almennt við undir-
búning utanferða, samningsgerðir um
náms- og skólavist o. s. frv. og
3) sé íslenzkum námsmönnum ytra til að-
stoðar með atbeina erlendra upplýsinga-
skrifstofa eða einstakra manna, er skrif-
stofan hefir samvinnu við.
En þar eð Stúdentaráöið eigi hefir annað
fé til umráða í þessu skyni en þær 1000 kr.,
sem því eru veittar á fjárlögum vegna upp-
lýsingaskrifstofunnar, er því vissulega ókleift
að bera kostnað af þessu aukna starfi, nema
það fái til þess fjárhagslega aðstoð annars
staðar frá.
Væntir Stúdentaráðið þess, aö þær stofn-
anir aðrar og félög, er þetta mál varðar og
bera hag íslenzkra námsmanna fyrir brjósti,
leggi því lið og efli það í þessu starfi.