Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Side 5

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Side 5
In memoriam Kristinn Ármannsson, rektor Kristinn Ármannsson, fyrrverandi rektor Menntaskólans í Reykja- vík lézt 12. júní síðastliðinn. Kristinn Ármannsson var fæddur 28. september 1895 á Saxhóli á Snæfellsnesi. Faðir hans var Ármann Jónsson bóndi þar og síðar skipasmiður í Reykjavík og móðir hans Katrín Sveinsdóttir. Krist- inn varð stúdent frá M. R. 1915 og hóf síðan nám í Kaupmanna- hafnarháskóla og lagði stund á grísku, latínu og ensku og lauk cand-mag prófi 1923. Sama haust gerðist hann kennari við Mennta- skólann í Reykjavík og varð rektor skólans haustið 1957 og gegndi því til 1. sept 1965. Auk þessara starfa var Kristinn lektor í grísku við Háskóla íslands frá 1925 og í latínu frá 1952 og gegndi þeim störfum áfram s. 1. ver- ur. Kristinn Ármannsson var einn mestur og margfróðastur lærdóms- maður sinna samtíðamanna hér á þau klassísku fræði, sem voru sér- grein hans, grísk og latnesk málfræði og bókmenntir. „Þökk verður aldrei tjáð þannig, að sérhver velgerningur hljóti sína umbun. — Þakkaskuldin er. — En í trausti þess, að Guð greiði, af náð sinni, það sem menn fá ekki goldið, er ljúft að votta látnum öldungi þakklæti og vandamönnum samúð. Kristinn Ármannsson hefur þökk guðfræðinema fyrir ágæta fræðslu og staka prúðmennsku. Hann var ávallt velunnari nemenda sinna, vakti virðingu og áminnti með fágaðri framkomu. Mikill fengur var í þekkingu Kristins, en sú blessun er meiri að hafa kynnzt honum. Vér sjáum þess vegna sóma vorn að varðveita minningu Kristins Ármannssonar. Minningin auðgar, eins og þau kynni, sem menn höfðu af honum. Með Kristni er raunar genginn einn þeirra manna sem eiga heiður, þökk og virðingu samferðamanna. Líf hans bar þess vitni, að hann var í senn menntafrömuður og göfugmenni". 5 STUDENTABLAÐ

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.