Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Síða 7

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Síða 7
Ármann Snœvarr, Hóskólarektor: Hanclrit á heimleið Fimmtudagurinn 17. nóvember 1966 verður ávallt í minnum hafð- ur sem einn af merkisdögum í sögu vorri, slíkur fagnaðar- og gleði- dagur sem hann var gervallri íslenzkri þjóð. Seint mun gleymast, hve innilega menn glöddust yfir dómsúrslitum í handritamálinu. Vonir, sem þjóðin hefir lengi alið, um endurheimt helztu dýrgripa sinna breyttust skyndilega í vissu. Megi fögnuðurinn verða aflvaki mikilla átaka til rannsókna og útgáfu handrita og gleðin fyrirboði þess, að einskis verði látið ófreistað til að skapa handritunum ytri umgerð við hæfi og þó framar öðru að skapa þeim mönnum góð starfsskilyrði, sem helga sig vísindalegri vinnu við handritin. Þessi miklu tíðindi eru ekki eingöngu gleðiefni, heldur verða þau einnig tilefni þakklætis og heitstrenginga. Vér minnumst með virðingu og þökk margra ágætra manna, danskra og íslenzkra, sem stutt hafa af drengskap og atorku að lausn þessa mikilvæga máls. Þar hefir notið við vitsmuna, lagni og góðvildar margra og gagnkvæms skilnings og virðingar bræðra- þjóða. Málið hefir verið vandasamt og viðkvæmt, og fáar þjóðir í víðri veröld hefðu brugðizt jafndrengilega við sem Danir nú. Full- treysti ég því, að nú takist hin vinsamlegasta samvinna milli danskra og íslenzkra fræðimanna, er f jalla um íslenzk handrit. Af hálfu Há- skólans verður lagt kapp á góða og vinsamlega samvinnu við er- lenda fræðimenn, sem áhuga hafa á rannsóknum á íslenzkum hand- ritum, og reynt verður eftir föngum að greiða fyrir þeim, sem hér vilja dveljast við slíkar rannsóknir. Á íslenzkri þjóð hvílir mikil ábyrgð í sambandi við viðtöku handritanna. í fögnuði handritaheimtar skyldum vér vera vel minn- ugir þeirrar ábyrgðar og þess, hvílíkar skuldbindingar vér tökumst á hendur. Hús fyrir Handritastofnun íslands mun rísa á næstunni, og ættu fræðimenn að hafa betri tök á að sinna handritarannsóknum hér i heimalandi handritanna en annars staðar. Margt þarf að gera til að skapa rannsóknaraðstöðu við hæfi, bæði um húsnæði, rannsókn- artæki, starfslið til rannsókna svo og bókakost ýmiss konar. Yér ber- um ábyrgð gagnvart oss sjálfum, sögu vorri og menningu, en einnig gagnvart vísindum umheims. Þegar þjóðin veitir viðtöku handrit- unum, tekst hún á herðar gífurlegar skuldbindingar — og ég ber það traust til íslenzkrar þjóðar, að hún muni vel axla þær byrðar. Á þessum merku tímamótum minnist Háskóli íslands með virð- ingu og þökk Kaupmannahafnarháskóla og þess mikla starfs, sem starfsmenn háskólans eða stofnana, sem honum eru tengdar, hafa unnið að rannsóknum og útgáfu íslenzkra handrita. Rektorar há- skólanna tveggja hafa skipzt á kveðjum og látið í ljós sérstaka von um, að tengslin milli háskólanna megi enn eflast og treyst verði samvinnan milli danskra fræðimanna og íslenzkra á þeim sviðum, sem varða íslenzk handrit. Lokaþáttur handritainálsins fór fram á vettvangi danskra dóm- stóla. Enginn íslendingur gat haft á móti því, að lagalegur grund- völlur að afhendingu handrita yrði staðreyndur til hlítar. Vér, sem bezt þekkjum til gerhygli, hlutlægni og lærdóms danskra dómara, vissum, að á þeim vettvangi myndu málaefnin ein ráða. Hæstiréttur Danmerkur hefir með dómi sínum í málinu bætt við merkum þætti í þriggja alda sögu sína. Dómstóllinn hefir kveðið upp dóm, sem lengi verður í minnum og ávallt mun þykja í tölu markverðustu dóma þessa virðulega dómstóls. Megi íslenzkum handritum vel byrja á heimleið sinni, og megi heill og gift fylgja þeim mörgu vísindamönnum, sem helga munu líf sitt og starf hinum óþrjótandi rannsóknarverkefnum, er tengd eru íslenzkum handritum. 7 STÚDENTABLAÐ

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.