Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Side 13

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Side 13
ent vil ég hér þakka sérstaklega fyrir vináttu þá og góðvild, sem mér hefur verið sýnd, bæði af prófessorum og samstúdentum. Þessi góðvild og vin- átta skifta miklu máli, þegar maður kemur til framandi lands, og ekki hvað sízt þegar hann á við nýtt og erfitt tungumál að etja, sem hann getur ef til vill skilið, þegar það er ritað, en ekki alltaf, þegar það er tal- að. Góðan stuðning í þessu máli veitir Háskóli Islands með kennslu fyrir erlenda stúdenta. Auk þess er Háskóli Islands ekki of stór — hann er of lítill, mundu margir Islending- ar segja, og með réttu hvað kennslu varðar, þar sem hún verður ekki veitt í öllum venjulegum háskólagreinum — en það er hrein blessun fyrir út- lendinga að sleppa undan hinum risavöxnu háskólum í öðrum lönd- um. Þegar háskóli er tiltölulega lítill, verður einnig auðveldara að halda góðu sambandi milli kennara og stúdenta og milli stúdenta innbyrðis, og andrúmsloftið innan Háskóla ís- lands virðist mjög til fyrirmyndar. A Islandi er margt, sem útlend- ingum finnst ánægjulegt, en engu að síður er auðvitað ýmislegt, sem hægt er að gagnrýna. Margir ferða- menn eru hissa á ísenzkum áfengis- lögum, sem virðast vera einstök í sinni röð. Líka mætti benda á þann skort á stundvísi, sem kemur fram hjá mörgum Islendingum. Þetta hef- ur sennilega sérstakar þjóðfélagsleg- ar ástæður, og enginn skyldi gagn- rýna þetta án þess að hafa hliðsjón af sögu landsins og þjóðarinnar. „ísland er ekki Evrópa”, sagði mér Islendingur einu sinni. Þetta getur verið rétt frá sagnfræðilegu og land- fræðilegu sjónarmiði. Island hefur vissulega þróazt mjög á sinn hátt. Hins vegar finnst mér sem þjóðin reyni að sumu leyti að taka upp evrópska og bandaríska siði meira en góðu hófi gegnir t. d. í skemmt- analífi. Eða ef til vill væri réttara að segja, að menn geti ekki barizt gegn þess konar erlendum áhrifum. Eitt þeirra vandamála, sem Islend- ingar eiga sammerkt mörgum öðr- um mannfáum þjóðum, er hvernig hægt sé að vinna úr erlendum áhrif- um sér til gagns og jafnframt við- halda þjóðareinkennum sínum. Enda mun þetta vera mjög erfitt viðfangs- efni á Islandi, sem hefur orðið fyrir meiri tæknilegum og félagslegum umbyltingum á skemmri tíma en margar aðrar þjóðir. Erlendur fræðimaður hefur borið íslendingasögurnar saman við landið sjálft. Hvorttveggja virðist við fyrstu sýn kalt og óárennilegt, en þegar þau eru rannsökuð nánar, kemur í Ijós, að þau hafa til að bera mikla hlýju, laugar og glóandi hraun er í jörð- inni, og ólgandi tilfinningar í sög- unum. Eins og minnst var á hér að fram- an, væri freistandi að færa þessa mynd yfir á þjóðfélagið. Margir út- lendingar hafa komizt að raun um, að ríkt tilfinningalíf felst í hugum Islendinga. Það sannast einnig af íslenzkum skáldskap, bæði að fornu og nýju. Þó notaði ég viljandi sögn- ina „felst" af því að það er ekki allt- af auðvelt að komast að þessu til- finningalífi í daglegri umgengni við Islendinga. Maður þarf að leggja nokkuð á sig til þess að komast að hugsunum og tilfinningum þeirra. Sumir erlendir stúdentar hafa þess vegna kvartað yfir því, að erfitt sé að kynnast þessari þjóð. Nú er það xtuðvitað algengt fyrirbrigði, að menn reyni oft lítið til að koma til móts við útlendinga í samskiptum þeirra við þá, ekki hvað sízt vegna þeirra vandræða, sem ólík tungumál manna geta valdið. Að öðru leyti er margt undir hinum erlendu stúdent- um sjálfum komið. Því miður sýna þeir oft tilhneigingu til þess að halda hópinn um of og umgangast hver annan meira en Islendinga. A þennan hátt bindast þeir í einskonar „circulus vitiosus", sem þeim stendur næst að brjóta. Ef þeir leitast við af fremsta megni að læra málið og reyna að kynnast og skilja menningu og þjóðlíf íslendinga, gætu þeir haft mika ánægju af samvistum við þá. Islenzkir stúdentar halda einnig skemmtilegar samkomur, sem eru ágætt tækifæri til að auka kunnings- skapinn milli íslenzkra og erlendra stúdenta. Lesendur geta nú spurt sjálfa sig: Hver er niðurstaða þessara „ber- söglisvísna"? I fáum orðum gæti hún verið á þessa leið: Island er hrífandi land, ef til vill einmitt af þeirri ástæðu, að það býður sig ekki beinlínis fram eins og mörg önnur lönd, heldur lætur það útlendingun- um sjálfum eftir að uppgötva sig. Þetta tekst ekki vel án nokkurrar á- reynslu. Hins vegar felst í því ögr- un, sem útlendingar ættu að sinna. Þar er til mikils að vinna. Erik Simensen, Noregi Hvað réði vali þínu Gunnar Björnsson, stud. theol. Vali mínu réði vissan um nauðsyn á eflingu kristninnar, og löngun til þess að verða þeim málstað að liði. Bergþór Konráðsson, stud. oecon. Sá hugsanagangur virðist ríkjandi í menntaskóla og jafnvel allt upp í háskóla að læknisfræði og verkfræði sé fyrir þá sem eitthvað vilja læra, en aðrar deildir og þá sérlega við- skiptafræði sé fyrir þá, sem ætli að taka lífinu rólega að loknu stúdents- prófi — tossadeildin. Staðreyndin er hins vegar sú, að engin deild býður upp á jafn fjöl- breytta atvinnumöguleika og ein- mitt viðskiptadeildin. Það verður að teljast stór kostur, að viðskiptafræðinám tekur aðeins fjögur ár, en sé maður ekki ánægður að því loknu, eru möguleikar til framhaldsmenntunar óþrjótandi. Fáar þjóðir eru eins háðar utan- ríkisviðskiptum og Islendingar, en þar er við óþrjótandi vandamál að glíma, en efnahagsmálin hér bera það með sér, að vart sé vanþörf há- skólamenntaðra manna við þau að eiga. Viðskiptadeidin er ung og vart fullmótuð, en hefur þó sýnt og sann- að gildi sitt og ég vona að hún haldi ávallt áfram að vera ung, en staðni aldrei í formsatriðum, því þá hef- ur hún misst tilverugildi sitt. Refurinn Mágus, „symbol" deild- arinnar, kvað vera skýrður eftir Bragða-Mágusi jarli, sem frægur var fyrir viturleg ráð, brögð og fjöl- kynngi — í trausti þess að viðskipta- fræðinemar næmu þessar listir land og þjóð til heila og með trú á nauð- syn viðskiptafræðinga í þjóðfélag- inu, valdi ég þessa deild. 13 STÚ DENTABLAÐ

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.