Stúdentablaðið - 01.12.1966, Side 15
Fréttir
úr
deildar-
félögunum
Frá Félagi guðfræðinema
Guðfræði er fræðigrein, er leitast við
að túlka helg sannindi kristinnar trú-
ar, svo að þau geti orðið hverri kyn-
slóð dýrmæt eign. Þótt sannindi trú-
arinnar séu á öllum öldum þau
sömu, þarf samt sem áður alltaf að
færa þau í búning hvers tíma, gera
þau skiljanlegri nútímamanninum.
Vegur guðfræðinnar hefur á hin-
um ýmsu skeiðum sögunnar verið
misjafn. Um eitt skeið var guðfræði
eina fræðigreinin, sem menn lögðu
stud á; guðfræðingar miðalda voru
alfræðingar, með lausn allra vanda-
mála í kollinum eða a. m. k. ekki
langt frá honum. En nú er þetta allt
breytt. Af guðfræðinni fæddust
margar aðrar fræðigreinar, og sum
þeirra afkvæma eru ekki alltaf á því
að viðurkenna móður sína.
Allt um það. Guðfræði er enn til;
móðir allra fræðigreina á sér enn
sess; innan veggja H.í. í stofu V.
Þeir eru fremur fáir, sem sótt hafa á
mið hennar um þekkingu, lítill, en
þó samstæður hópur, og allir undrast
þeir fersku gömlu konunnar og fjör.
Þeir, sem að prófi komast, sjá það
allir, að þrátt fyrir svo og svo
margra ára nám, hafa þeir síður en
svo getað náð allri þekkingu; gamla
konan lumar á ýmsu enn.
Guðfræðinemar hafa undanfarið
ár haga félagslífi sínu líkt og næst-
liðin ár. Fundir í félagi þeirra hafa
verið haldnir reglulega, og er á þeim
fjallað um ýmisleg málefni, fræði-
leg bæði og hagnýt. Félag guðfræði-
nema hefur og gengizt fyrir messum
í kapellu háskólans einu sinni í mán-
uði. Sjá guðfræðistúdentar um
messugjörðina sjálfir að öllu öðru
leyti en því, er að altarisþjónustunni
lýtur. Hafa stúdentar í þessum mess-
um sínum að jafnaði notað hið klass-
íska messuform, en sívaxandi áhugi
virðist vera á meðal þeirra á endur-
nýjun messunnar, og feta þeir þar i
fótspor kollega sinna í nágranna-
löndunum. Ennfremur gengst Félag
guðfræðinema fyrir morgunbænum
á hverjum morgni kl. 10 í kapellu
skólans, og er það hvatning vor til
yðar, samstúdentar, að þér látið sjá
yður við þær athafnir dálitlu fleiri
en verið hefur undanfarið.
Hið nýjasta í félagsmálum guð-
fræðinema er það, að danskir guð-
fræðinemar buðu námsfélögum sín-
um á öðrum Norðurlöndum á ráð-
stefnu um sameiginleg málefni. Var
sú ráðstefna haldin í Danmörku dag-
ana 14.—19. nóv. 1966. Héðan af
Islandi fóru tveir fulltrúar. Er það
von vor, að til frekari kynna megi
draga milli vor og félaga vorra á
Norðurlöndum, en til þessa höfum
vér íslenzkir guðfræðinemar farið
helzti mikið varhluta af kynnum
við guðfræðilegt líf annars staðar, og
er það skaðlegt. Island er nú á allan
hátt að losna úr einangrun þeirri, er
það um langt tímabil sögu sinnar
var í. Islenzk guðfræði var dálítið
sein á sér, en þar hafa breytingar orð-
ið á á seinustu árum, og vonandi
verða frekari kynni vor við aðra
guðfræðinema á Norðurlöndum og
helzt víðar til þess að eyða þeirri
einangrun að fullu.
Að svo mæltu árna ég yður öllum
friðar og blessunar á þessum mikla
hátíðis- og vonardegi þjóðar vorrar.
Einar Sigurbjörnsson, stud. theol.:
Frá félagi læknanema
Sprengidagskvöld 4. marz 1933 var
Félag læknanema stofnað. Stóðu að
þeirri stofnun Olafur heitinn Geirs-
son, Bjarni Jónsson og Baldur John-
sen. Félagið hefur því slitið barns-
skónum og látið vel að stjórn, þrátt
fyrir sviftivinda í stjórnmálum og
lífsháttum, sem geisað hafa þessi
33 ár, enda kjörviður í kili.
Félagsstarfið er margþætt og
blómlegt. Skal hér reynt að gera því
nokkur skil.
Haldnir eru fræðslufundir um
læknisfræðileg efni og er ýmist að
stúdentar sjálfir sjái um fundina að
mestu eða fengnir eru læknar til að
halda fyrirlestra. Kynningafundur er
haldinn ár hvert þar sem nýstúdent-
um er kynnt starfsemi félagsins,
námsefni, námstilhögun o. fl. varð-
andi læknisfræði. Þá eru haldnir
skemmtifundir, árshátíð og farinn
„Vísindaleiðangur''. Félagið gefur út
„Læknanemann" hið föngulegasta
rit, sem flytur margvíslegan fróð-
leik.
Samskipti við stúdenta erlendis
hafa verið talsverð, en „Pollurinn"
15
STÚ DENTABLAÐ