Stúdentablaðið - 01.12.1966, Blaðsíða 16
er dýr yfir að fara og því ekki verið
eins mikill möguleiki á að kynnast
og bjóða heim erlendum stúdentum
eins og kostur hefði verið. Stúd-
entaskipti hafa þó verið talsverð og
hafa þeir stúdentar, sem erlendis
hafa farið, notið nokkurs styrks til
þessa. Félagið er aðili að alþjóðasam-
tökum læknanema, I. F. M. S. A.,
sem vinnur að aukinni kynningu
milli læknanema, svo og kynningu á
læknisfræðilegu efni, og bótum á
kennslufyrirkomulagi o. fl.
Umbætur í kennslumálum í
læknadeild H. I. hafa verið í brenni-
punkti s. I. misseri, enda brýn þörf
róttækra umbóta. Hefur nefnd, skip-
uð til að vinna að breytingartillög-
um, unnið dyggilega og haft náið
samband bæði við kennara í lækna-
deild svo og læknanema. Er niður-
stöðu að vænta inn-'.n skamms.
Eitt er þó augljóst, en það er, að
læknadeildin er að sprengja Háskól-
ann utan af sér og er brýn þörf á að
byggja sér stofnun yfir læknadeild
einkum ef hið nýja kennslufyrir-
komulag á að verða að nokkru gagni
og er það ekki hvað sízt beinn hag-
ur fyrir kennara deildarinnar, en
hann mætti svo sannarlega bæta.
Félagið hefur mikil samskipti við
aðila utan háskólans; lækna, sjúkra-
hús o. fl. og hefur þetta einkum
komið til af því að læknanemar
stunda með námi margs konar störf,
er lúta að heilbrigðismálum. Má sér-
staklega geta þess að samvinna milli
Félags læknanema og læknafélag-
anna er nú með ágætum og er það
mikill styrkur fyrir læknanema.
Núverandi formaður F.L. er
Snorri Sveinn Þorgeirsson.
Reykjavík, 17. nóvember
Guðni Þorsteinsson, ritari F. L.
Frá Orator
Svo sem nafnið bendir til, er greinar-
korni þessu ætlað að gefa nokkrar
upplýsingar um það, hvað laganem-
ar hafa haft fyrir stafni að undan-
förnu. Það skal þó tekið fram þegar
í upphafi, að hér verður svo til ein-
ungis fjallað um atburði, sem fyrir-
fram hafa verið skipulagðir af stjórn
Orators, með almennri þátttöku fé-
lagsmanna. Fréttir þessar munu því
bera ólíkt meiri keim af skýrslu
stjórnar en slúðursögum um ein-
staka félagsmenn, eða afrekaskrá
þeirra sem einstaklinga. Mér er ljóst
að deildarfréttir þær, sem ég ætla að
þegja yfir myndu vekja ólíkt meiri
athygli en þær, sem ég ætla að segja.
Eru þetta einkenni lélegs frétta-
manns. Þetta eru einnig einkenni
góðs fréttamanns. Það fer því eftir
lesandanum hvort þetta eru góðar
eða lélegar fréttir.
Nú verða sagðar fréttir. Þórður
Asgeirsson segir fréttirnar. Ur laga-
deild Háskóla Islands er ekkert að
frétta síðan 4. nóv. s. 1., en þá var
aðalfundur Orators hátíðlegur hald-
inn. A aðalfundi drepur fráfarandi
formaður ævinlega á flest það er
stjórn hans hefur skipulagt og fram-
kvæmt, og þar sem það er það, sem
ég er á höttum eftir, er ekki úr
vegi að seinka klukkunni, þannig
að hún sé nú 2100 að kvöldi 4.
nóv., og bregða sér á aðalfund Ora-
tors.
Aðalfundur Orators, haldinn að
Hótel Sögu 4. nóv. 1966 er nýhaf-
inn. Hér eru saman komnir 80—90
laganemar, og er þetta hin virðuleg-
asta samkoma. Fráfarandi formaður
er í pontu og flytur skýrslu stjórnar.
Verður það ljóst af hinni löngu
ræðu hans, að Oratorar hafa haft
ýmislegt fyrir stafni skólaárið 1965
—66. Mun nú reynt að geta þess
helzta er þar hefur komið fram.
I.
Almennir félagsfundir voru haldnir
hvorki fleiri eða færri en 13 á tíma-
bilinu, og voru allir hinir merkustu.
Voru allir fundirnir að einum und-
anskildum haldnir að Hótel Sögu,
og var það gagnrýnt af einum laga-
nema, sem vill að allir fyrirlestrar
um lögfræði séu mótteknir á hörð-
um bekkjum Háskólans. Aðrir laga-
nemar þóttust hafa verið fullmót-
tækilegir fyrir erindum þeim er boð-
ið var upp á á fundum þessum. Voru
enda úrvalsfyrirlesarar á ferðinni á
ofangreindum fundum, og verða
þeir tilgreindir hér í þeirri röð er
þeir komu fram í: Halldór Þor-
björnsson sakadómari, Guðmundur
I. Sigurðsson hrl., Benedikt Sigur-
jón'son Hrd., Þór Vilhjálmsson
borgardómari, Hallvarður Einvarðs-
son fulltr. saksóknara, dr. Þórður
Eyjólfsson Hrd., prófessor Ólafur
Jóhannesson, dr. Bjarni Benedikts-
son íáðherra, Jónatan Þórmundsson
fulltr. saksóknara og Gísli Isleifs-
son Hrl.
Þá er að geta þess, að Orator
gekkst fyrir þeirri nýbreytni að
bjóða öðru deildarfélagi á alm. fé-
lagsfund. Fundur þessi var haldinn
1. nóv. s. 1. og var læknanemum þá
boðið að hlýða á erindi Gísla ísleifs-
sonar hrl. um réttarlæknisfræði, þ. e.
þátt læknisfræði í lögfræði og öfugt.
Var fundur þessi vel sóttur af liðs-
mönnum beggja félaganna og gerður
að honum góður rómur.
Þá var einn fundur haldinn í sam-
ráði við lögfræðingafélag Islands og
voru framsögumenn þeir Benedikt
Sigurjónsson Hrd. og Garðar Gísla-
son stud jur. Var fundur þessi fjöl-
sóttur mjög af laganemum og lög-
fræðingum, og fjörugar umræður að
loknum framsöguræðum eins og
reyndar alltaf.
Er ljóst að fundir þessir hafa verið
mikið og gott framlag í þágu félags-
lífsins í deildinni, og til lögfræða
yfirleitt, þar sem mörg af erindum
þeim, sem þarna hafa verið flutt
verða birt í Úlfljóti, tímariti laga-
nema, sem vakið hefur mikla athygli
frá upphafi og áunnið sér þann sess
að vera nefnt „merkt fræðirit".
II.
Orator hélt 16. febr. hátíðlegan með
svipuðu sniði og undanfarin ár.
Hófust hátíðahöldin kl. 10.00 f. h.
með erindi Gauks Jörundssonar,
fulltr. yfirborgardómara um vernd
mannréttinda og náttúrurétt.
Eftir hádegið var málflutningur
háður í Lindarbæ, og þaðan var ekið
með langferðabílum til Bessastaða
að þiggja heimboð Forseta Islands,
herra Asgeirs Asgeirssonar.
III.
Samskipti við útlönd voru mikil á
tímabilinu. Er þar fyrst að geta þess,
að dagana 16.—25. júní sóttu 10
laganemar og tveir cand. juris. Nor-
rænt laganemamót, sem haldið var
í Uppsölum í Svíþjóð. Einnig var
prófessor Ármanni Snævarr boðið á
mótið og flutti hann þar merkan
fyrirlestur. Þetta er í fyrsta sinn sem
Islendingum er boðið að senda jafn-
marga þátttakendur og öðrum Norð-
urlöndum og ber að fagna því, þar
sem mót þessi eru hin gagnlegustu
þeim er þau sækja. Á móti þessu
hlýddu þátttakendur þannig á eina
10 fyrirlestra hinna fremstu laga-
prófessora á Norðurlöndum. Eftir
sérhvern fyrirlestur var mönnum
skipt niður í 6 „grúppur", þannig að
í hverri „grúppu" voru tveir frá
hverju landi eða 10 menn alls.
Grúppurnar ræddu síðan um fyrir-
lesturinn og útbjuggu hver fyrir sig
spurningar, sem síðan voru lagðar
fyrir fyrirlesarann. Einnig var þarna
margt til skemmtunar, veizlur, Ieikir,
keppt í íþróttum, stofnað til kynna
og skipzt á skoðunum.
Orator er aðili að NSJR eða Nor-
ræna laganemaráðinu. Stofnun þessi
eða ráð var stofnuð 1964 og hefur
það hlutverk m. a. að koma á Nor-
rænni samvinnu á sviði laganáms, og
vinna að samnorrænni viðurkenn-
ingu á prófum og verkþjálfun í lög-
fræði. Er starfsemi þess þegar orðin
allmikil og voru 3 fundir haldnir á
síðastliðnu starfsári, í Danmörku, í
Noregi og í Finnlandi. Orator tókst
að senda fulltrúa sinn á alla þessa
fundi, og er vonandi að takast megi
að afla fjár til að halda starfi þessu
áfram, því það getur orðið ákaflega
mikilvægt fyrir íslenzka laganema.
Loks má geta þess að Orator hefur
STÚDENTABLAÐ
16