Stúdentablaðið - 01.12.1966, Qupperneq 26
í grein þessari verður drepið á nú-
verandi aðstöðu í hinu margum-
rædda félagsheimilismáli stúdenta
og síðan vikið í beinu framhaldi af
því að hinu furðulega máli, sem upp
kom, er vararektor, próf. Halldór
Halldórsson, synjaði Stúdentafélag-
inu um fundarhald í húsakynnum
skólans nú í nóvemberbyrjun.
Stúdentar við Háskóla Islands
hafa í fjölda ára barizt fyrir því að
fá reist félagsheimili, eða stúdenta-
heimili, þar sem auk góðs fundarsal-
salar væru félagsherbergi fyrir
deildafélög, stúdentaráð og stúd-
entafélagið og ennfremur aðstaða til
framkvæmda á sumum þeim sviðum
félagslífsins, sem við höfum orðið
að vanrækja að meira eða minna
leyti undanfarin ár vegna húsnæðis-
skorts. Nokkuð er um liðið síðan
lögð var fram teikning að slíku fé-
lagsheimili áföstu við Gamla Garð.
Höfum við stúdentar hér verið sam-
mála um, að þessu máli bæri að
hraða sem mest, enda eru stofnanir
af þessu tagi hvarvetna taldar ómiss-
andi við erlenda háskóla. Staðsetn-
ing væntanlegs félagsheimilis við
Gamla Garð hefur hlotið samþykki
Garðsstjórnar og mætti þá ætla að
allmikið væri fengið. Við stúdentar
höfum fengið viðurkennda a. m. k.
að verulegu leyti þá kröfu okkar, að
ríkið byggi stúdentaheimilið að
mestu fyrir sitt fé. A fjáriögum ríkis-
sjóðs árið 1964 voru ætlaðar til
byggingarinnar kr. 500 þús., 1965
fengust kr. 800 þús. og aftur kr. 800
þús. á fjárlögum þessa árs. I fjárlaga-
frumvarpi fyrir 1967 eru áætlað-
ar kr. 1. milljón til framkvæmdar-
innar. Til viðbótar þessu eru til í
sjóði ca. 300 þús., en fjárhagsáætlun
hljóðaði í fyrra upp á ca. 15 millj.
Arleg fjárveiting ríkisins nú til bygg-
Björn Teitsson, stud. mag.:
Um aðslöðu studenta
til félagsfunda
ljósi nvjuslu atburða
r
1
ingarinnar vegur því ekki upp á móti
árlegri hækkun vísitölu byggingar-
kostnaðar. Af þessari ástæðu einni
er ekki sýnt, að hafizt verði handa
í bili, og kemur þá þar einnig ann-
að til, en það er, að ekki virðist rílcja
fullt samkomulag sem stendur milli
arkitekts byggingarinnar, Jóns Har-
aldssonar, annars vegar og háskóla-
ráðs hins vegar um ýmislegt í sam-
bandi við fyrirkomulag og útlit
byggingarinnar. Við verðum að
sjálfsögðu að vona, að sá ágreining-
ur verði hið fyrsta úr sögunni, en á
meðan svo hefur ekki orðið, er
a.m.k. augljóst, að stúdentar gera
ekki haldið fundi sína í væntanlegu
félagsheimili.
Almennir stúdentafundir, bók-
menntakynningar og ýmsar fleiri
alm. samkomur stúdenta, hafa að ég
hygg frá því að háskólinn var byggð-
ur farið átölulaust fram í húsakynn-
um skólans. Einnig hafa deildafé-
lögin haldið marga fundi sína í sömu
húsakynnum, á sama hátt átölulausr.
Meira að segja er vitað, að stjórn-
málafélög stúdenta hafa iðulega
haldið aðalfundi sína innan veggja
skólans, sömuleiðis átölulaust af
hálfu háskólayfirvalda, enda engum
dottið í hug að hreyfa mótmælmri,
þar eð stúdentar hafa ekki í önnur
hús að venda endurgjaldslaust, en
kennslustofurnar hins vegar jafnan
flestar lausar á kvöldin. Sérstakrar
fyrirgreiðslu í þessum efnum hafa
þó að sjálfsögðu heildarsamtök stúd-
enta, stúdentaráð, stúdentafélagið og
nefndir á vegum þeirra notið, og
hefur t. d. núverandi rektor, Armann
Snævarr, sem manna bezt hefur vitað
um húsnæðisskort stúdenta til fé-
lagslegra iðkana almenn, haft full-
an skilning á þörf okkar í því að fá
afnot af húsnæði skólans og aldtei
lagt á nokkurn hátt stein í götu okk-
ar svo að kunnugt sé.
Til mun einhvers staðar nokkurra
ára gömul samþykkt háskólaráðs
þess efnis, að Ieyfa skuli alþjóðasam-
tökum, sem ísland er aðili að afnot
af húsakynnum háskólans til funda-
halda, þegar þess er óskað og ástæð-
ur leyfa af skólans hálfu. Hefur m. a.
verið haldin hér stúdentaráðstefna á
vegum Varðbergs og það verið talið
falla innan ramma þessarar sam-
þykktar. Þessi samþykkt hefur bó
ekki, að því er bezt verður séð, kom-
ið í veg fyrir að aðrir aðilar hafi
notið samskonar fyrirgreiðslu, enda
óskir um slíkt líklega næsta fátíðar.
Verður á meðan naumast sagt, að
brotið sé gegn akademiskum hugs-
unarhætti og anda.
Mánudaginn 31. okt. s. 1. var á-
kveðið af hálfu fundarnefndar og
stjórnar hins nýendurreista stúdenra-
félags að bjóða sænska rithöfundin-
um Söru Lindman að halda fyrirlest-
ur um ástandið í Víetnam á vegum
félagsins, en rithöfundur þessi var þá
staddur hérlendis í boði annarra sam-
taka. Var fengið leyfi húsvarðar og
skrifstofu háskólans til að fundur
þessi mætti fara fram í I. kennslust.
á þriðjudagskvöld 1. nóv. Almenn
samtök stúdenta og önnur samtök
sem venja er að fái að halda fundi
sína í I. kennslust., hafa yfirleitt lát-
ið nægja að leita um slíkt til fyrr-
nefndra aðila, þó að rektor og há-
skólaráð hafi að sjálfsögðu raunveru-
leg vfirráð yfir húsakynnum skól-
ans lagalega séð. I þetta skipti gerð-
ist sá einstæði atburður, að vara-
rektor, próf. Halldór Halldórsson,
sem gegndi störfum rektors vegna
utanfarar Armanns Snævarr, lagði
um leið og hann komst á snoðir um
að þessi fundur væri fyrirhugaður,
STÚDENTABLAÐ
26