Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Page 29

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Page 29
starfa. Ætlun mín með þessari grein er að skýra frá því helzta sem mér er kunnugt um málið, leggja fram röksemdir með og móti stofnun SIH og gera grein fyrir hugmynd- um mínum um stofnun og starfsemi SIH. Vænti ég að þeir sem ákvörðun eiga að taka um þetta mál, verði þá einhverju nær svo að þeir geti sjálfir tekið til að afla sér annarra upplýs- inga um það og mynda sér sínar eig- ín skoðanir. Almennar ástœSur mœla með stofnun SÍH Fyrst skal líta á nokkrar ástæður al- menns eðlis sem virðast mæla með stofnun sambandsins, en taka síðan til athugunar þær mótbárur sem komið hafa fram, og aðrar sem hægt er að hugsa sér gegn stofnun þess. SHI og SISE standa andspænis sam- eiginlegum vandamálum sem þeim ber skylda til að reyna að leysa. Sameiginleg vandamál eru alltaf auðveldar leyst með samvinnu: tveir menn sem ætla að lyfta þungum hlut verða að samstilla krafta sína. Sam- starf er, þegar aðstæður leyfa, væn- legra til árangurs ef það er í föstu formi, skipulagsbundið. Fyrri máls- greinina geta væntanlega allir fall- izt á, en sú síðari er ekki jafnaf- dráttarlaus. Hvort æskilegt sé að binda samvinnu í föstu formi eða öllu heldur setja henni ákveðinn ramma, fer eftir eðli þeirra aðila sem þurfa að vinna saman, og eftir vandamálum þeim sem við er að glíma. Lítum fyrst á það síðarnefnda. Verkefnum íslenzkra stúdenta- samtaka má skipta í þrennt. í fyrsta flokknum eru þau sem varða stöðu stúdentsins í þjóðfélaginu. Skapa þarf hjá almenningi og ráðamönn- um skilning á sérstöðu stúdenta og sérþörfum. Slíkur skilningur skap- ast ekki allt í einu, heldur smátt og smátt með þrotlausu starfi, honum þarf að halda vakandi. Þar að auki breytist sérstaða og sérþarfir stúd- entsins smám saman, eftir því sem þjóðfélagið breytist. Hér er því ekki um að ræða verkefni sem hægt er að ljúka með einu átaki, heldur framtíðarstarf. Vænlegast hlýtur að vera að samstarf að slíku langvar- andi verkefni sé skipulegt og skipu- lagt. í öðrum flokki eru vandamál er varða menntun stúdenta. Samtök stúdenta heima og erlendis hljóta að láta sig menntamál heimalands- ins miklu varða; stúdentum hlýtur að vera það kappsmál sjálfra sín vegna að menntun þeirra sé traust og svari kröfum tímans, jafnframt því sem það er skylda þeirra gagnvart þjóðfélaginu að leggja vit sitt og þekkingu af mörkum til eflingar menntamála. Stúdentum erlendis hlýtur einnig að vera það kappsmál að skilyrði til menntunar heima fyrir séu aukin og bætt, svo að sem allra flestir sem þesss óska, geti hlotið menntun sína heima fyrir. Þeir sem stunda nám utan lands, afla sér, þeg- ar saman kemur, geysivíðtækrar þekkingar á menntamálum annarra þjóða, og þeir hljóta að hafa margar frjóar hugmyndir fram að færa á þessu sviði. Um starf að mennta- málum er svipað að segja og starf að þjóðfélagsmálum. Þar er um að ræða langvarandi starf. Einn vandi tekur við þegar annar er leystur. Skipulagt samstarf hlýtur hér að eiga bezt við. Þriðji þáttur í starfi stúdentasam- takanna varðar alþjóðlegt stúdenta- samstarf. Þessi þáttur starfsins er eins og nú háttar talsverðum erfiðleikum bundinn, og liggja til þess margar ástæður. Stúdentar við Háskóla Is- lands eru svo fáir og samtök þeirra svo fjárhagslega veik, að jafnvel lágmarksþátttaka í alþjóðlegu sam- starfi er mjög dýr fyrir samtökin eins og augljóst er, ef litið er í reikn- inga SHÍ. Önnur ástæðan er að erfitt er að vekja áhuga nógu margra á þessari starfsemi vegna þess hve hún snertir lítið áhugamál flestra stúdenta. Alllangan tíma og tals- verða reynslu þarf til að verða fær um að sinna trúnaðarstörfum á þessu sviði. Enn er það reynsla þeirra sem eitthvað að ráði hafa fengizt við þessi mál, að til þess að hafa eitthvað jákvætt fram að færa á alþjóðavett- vangi, þarf starfsemin heima fyrir á sviði þeirra tveggja málaflokka, sem áður voru nefndir, að vera allöflug. Annars er hætt við að þátttakendur á alþjóðlegum ráðstefnum og fund- um verði í raun og veru aðeins óvirk- ir áheyrendur, en hafi fátt til mála að leggja. Orðagjálfur og sýndar- mennska mundu lítið bæta þar úr skák. Islenzkum stúdentum er nauð- syn, fyrst og fremst sjálfra sín vegna og þjóðar sinnar að taka þátt í al- þjóðlegri starfsemi, og þeim ber að að keppa að því að geta orðið virkir á þessum vettvangi. Til þess að svo geti orðið þurfa þeir á öllum kröft- um sínum að halda, bæði fjárhags- Iega og einnig öllum þeim mannafla og þekkingu sem tiltækur er og hægt er að sjá af til þessara starfa. Virðist því einsætt að þetta starf þurfi að skipuleggja eftir því sem aðstæður leyfa. Samstarf SHÍ og SÍSE er framkvœmanlegt Lítum þá á samstarf SHI og SISE. Eru eiginleikar þessara samtaka slík- ir að þeir kunni að hindra skipulagt samstarf þeirra. Vissulega eru á- stæður ekki eins góðar og bezt yrði á kosið, og stafar það af aðstöðumun þessara samtaka. SHI hefur að mín- um dómi tiltölulega traust skipulag, sem á að geta fullnægt þörfum þess fyrir órofna starfsemi. Það er því til- tölulega vel við samstarfi búið. Erf- iðleikar í starfi SISE eru hins vegar tiltölulega miklir af augljósum á- stæðum. Félagarnir eru 8—II mán- uði ársins dreifðir um allar jarðir, og er mjög erfitt að halda sambandi við félagana og halda starfsemi gangandi. (Miklu hægara er um vik hjá hliðstæðum samtökum norskra stúdenta erlendis, ANSA, vegna þess hve miklu fjölmennari þeir eru og mynda því sterkari félagslegar heild- ir á hverjum stað og hafa meira fjárhagslegt bolmagn til að halda uppi stöðugu sambandi og starf- semi). Helzti vandi SISE virðist mér vera hve fáir félagar eru virkir í starfsemi þess. Því hljóta stúdenta- ráðsmenn að spyrja þessara spurn- inga: Er hægt að vinna með SISE, eins og skipulagi þess og starfi er háttað? Eru líkur til að SÍSE muni eflast vegna samstarfs við SHI? Og ef svo er, er einhver ástæða til þess fyrir SHÍ að stuðla að eflingu SÍSE. Eg vil byrja á að svara tveimur síð- ari spurningunum. Eg tel engan vafa geta leikið á því að SISE muni eflast að mun við fast- bundið og skipulagt samstarf við SHI. Samstarfið hlýtur að vekja metnað hjá SISE-mönnum að láta ekki sinn hlut eftir liggja og verða á þann hátt til að virkja meiri krafta í þágu samtakanna en nú starfa þar. Þá hlýtur þátttaka í markvissu starfi að þeim málefnaflokkum sem ég nefndi áðan, að vekja áhuga SISE- manna á sams konar starfi í löndum þar sem þeir eru við nám, og þetta mun aftur óhjákvæmilega hafa frjóvgandi áhrif á starfsemi heildar- samtakanna. I rauninni ætti ekki að þurfa að eyða að því orðum hvort æskilegt sé fyrir SHÍ að SÍSE eflist. Barátta fyrir sameiginlegum hagsmunamál- um hlýtur að verða markvissari ef allir eru með. SHÍ og SÍSE munu ó- hjákvæmilega með auknu samstarfi styrkja hvort annað. Þær röksemdir sem ég hef fært fram til þessa eru í raun og veru allt sjálfsagðir hlutir. Astæðan til að ég hef lagt það á sjálfan mig og lesendur að setja þær fram svo sund- urgreindar og í svo löngu máli er að ég hef heyrt stúdenta — og það menn sem nokkra reynslu hafa af félagsmálum — halda því fram að engin þörf sé á skipulögðu samstarfi milli SÍSE og SHÍ. En nú erum Að þá komin að lykilspurningunni: Er þetta framkvæmanlegt? Er hug- myndin um SIH eitthvað annað er draumórar og óraunsæi? Hér verður miðað við að skipulag SÍH verði byggt á samkomulagsgrundvellinum frá 1965, aðeins til að benda á eina leið sem ég tel færa. Þar með er ekki sagt að ekki séu aðrar leiðir einnig hugsanlegar, og væri að sjálfsögðu gott ef nefndin sem nú starfar, gæti fundið betri leið. Hvemig á SÍH að starfa? Frumatriðið er vitanlega að hvor- ugur aðili skiptir sér af sérmálefnum hins nema þess sé óskað að hann styðji einhverjar kröfur. Af þessu leiðir að Stúdentaráð blandar sér ekki í það óbeðið hvernig SÍSE- menn fá bættan aukakostnað (ferða- kostnað o. þ. u. 1.) eða hvað náms- yfirfærslur eru háar á hverjum stað o. s. frv. SISE mun ekki heldur skipta sér af sérmálum Stúdentaráðs eins byggingu félagsheimilis og stúdenta- garða eða umræðum við yfirvöld Háskóla Islands um málefni þeirrar stofnunar eða þá stúdentaskiptum stúdenta við Háskóla Islands við stúdenta við aðra háskóla og öðrum tvíhliða (bilateral) samskiptum. Virðist mér ekki ástæða til að óttast að upp geti komið ágreiningur um nein mikilvæg mál hvort þau séu sérmál eða ekki. Sjálfsagt er þó að ræða um þetta í undirbúningssamn- ingum og ákvarða nánar í lögum SÍH. Þyngdarpunkturinn í starfi SIH hlýtur að verða stúdentaþingið, sem gert er ráð fyrir að haldið verði í ágúst ár hvert. Þar skapast stúdent- um vettvangur til að ræða sameigin- leg hagsmunamál sín og önnur á- hugamál á samkomu þar sem sjónar- mið ólíkra námshópa ættu að koma fram. Jafnframt yrði þetta ákjósan- 29 STÚ DENTABLAÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.