Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Side 33

Stúdentablaðið - 01.12.1966, Side 33
stjórnmálaástand eins og hér eða hliðstætt ástand í menntamálum, er aldrei nema eitt national union. SHI og SISE geta vitaskuld hvort fyrir sig átt ýmis samskipti við erlend stúdentasamtök og munu væntan- lega gera það í framtíðinni. Hins vegar mun aðeins eitt íslenzkt þjóð- arsamband verða viðurkennt í al- þjóðlegu samstarfi, á Alþjóðaþingi stúdenta — ISC, eða á norrænum formannaráðstefnum, svo að dæmi séu tekin. SHI er nú viðurkennt sem þjóðarsamband íslenzkra stúdenta og getur haldið þeirri stöðu ef því sýnist svo. Spurningin er þá aðeins hvort eðlilegra sé að SHÍ eða SÍH gegni þessu hlutverki. I samkomulagsgrundvellinum 1965 og því sem af er þessari grein, hefur verið gert ráð fyrir að væntan- legt samband yrði þjóðarsamband ís- lenzkra stúdenta. Hins vegar hefur þeirri hugmynd verið hreyft að SHI verði eftir sem áður „National Union of Icelandic Students". Aður hefur hér verið sýnt fram á að sam- starf á sviði utanríkismála hafi gefizt vel og geti í framtíðinni gert ís- Ienzkum stúdentum kleift að taka miklum mun virkari þátt í alþjóða- samstarfi en verið hefur. Frá almennu sjónarmiði hlýtur að verða rökréttara að SIH sé þjóðar- samband íslenzkra stúdenta. Yerði það ekki svo er hætt við að SÍSE missi áhuga á að starfa með SHI á þeim vettvangi, og væri þá sá á- vinningur sambandsins horfinn. En það væri líka beinn fjárhagslegur ávinningur fyrir SHI að láta SIH taka við þessu hlutverki. Utanríkis- málin eru tiltölulega hæsti útgjalda- liðurinn í reikningum okkar. Þótt þátttaka okkar sé mjög takmörkuð er hún samt dýrari á hvern stúdent en hjá samtökum nágrannaþjóða. Þegar SÍH tæki við stöðu þjóðar- sambands, yrði SÍSE vitanlega að taka þátt í kostnaði við utanríkismál. Utanríkismálanefnd SHI mundi eigi að síður halda mikilvægi sínu sem vettvangur fyrir umræður um stefnu og framkvæmdir í utanríkismálum. Ekki þykir mér ósennilegt að hægt væri að komast að samkomulagi um að formaður utanríkismálanefndar SHI ætti sæti í stjórn SIH og færi þar með þau mál. Ut á við yrði hann eftir sem áður talsmaður og fulltrúi fyrir „National Union of Icelandic Students", svo að breytingin yrði að- eins sú að hann ætti nú aukið tilkall til starfs SISE-manna og hefði greið- ari aðgang að ýmsum upplýsingum um það sem erlendis er að gerast. SHÍ hefur allt að vinna en engu að tapa Mér finnst undarlegt að raddir gegn stofnun Sambands íslenzkra háskóla- stúdenta hafa komið fram innan SHÍ en ekki hjá SISE. SHI er óneitanlega sterkari aðilinn og kemur til með að ráða meiru. Samband og samstarf við SISE getur aðeins aukið styrk SHÍ. SISE tekur hins vegar nokkra á- hættu; þá að SHÍ gleypi samtökin, SÍSE fulltrúar á stúdentaþingi verði áhrifalausir og málefni SÍSE sjálfs falli í skuggann. Þó álít ég að þessi hætta sé ekki veruleg. Miklu líklegra er hitt að samstarfið muni veita starf- semi SÍSE þá kjölfestu og það sam- hengi sem hún þarfnast, og efla þannig samtökin. Þetta er auðvitað eingöngu undir SÍSE-mönnum sjálf- um komið. Ekki held ég þeir þurfi að óttast að reynt verði að draga úr mætti samtaka þeirra. íslenzkir stúd- entar heima og erlendis hljóta að skilja þá grundvallarstaðreynd að það er hagur hvorra um sig að sam- tök hinna séu sem sterkust. Hvernig á aS stofna SÍH? Raunhæft samstarf milli SHÍ og SÍSE er komið vel af stað og hefur gengið vel. Ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að samstarfsnefndin sem nú starfar, gæti lagt fram álit sitt svo snemma að það stúdentaráð sem nú situr, geti rætt það og tekið afstöðu til þess áður en það lætur af störfum. Það er vitanlega mikil- vægt að nokkurn veginn alger ein- inggeti orðið um stofnun SÍH.Fram- tíð þess veltur á framkvæmd sam- starfsins. Ef þessi framkvæmd lenti í upphafi í höndum manna sem vildu sambandið feigt, væri ekkert auðveldara fyrir þá en koma því fyr- ir kattarnef. Vitaskuld dettur mér ekki í hug að væna forystumenn stúdenta um slíkan ódrengskap, en eigi að síður er rétt að fara að öllu með gát ef einhver verulegur ágrein- ingur verður innan ráðsins um mál- ið. Ég leyfi mér því að leggja fram tvær tillögur um það hvernig stofna eigi Samband íslenzkra háskólastúd- enta. Sú fyrri miðast við það að eining verði um stofnun, en sú síðari er e. k. varatillaga, miðuð við það að fram komi verulegar efasemdir um gagnsemi sambandsins og fram- kvæmanleik áætlana um það: 1) Haldið verði stúdentaþing næsta sumar með fulltrúum frá SHÍ og SÍSE. Lagt verði fyrir þingið á- kvörðun um að stofna SÍH þá þeg- ar og uppkast að lögum, sem áður hefur verið lagt fyrir hvor samtökin um sig. SÍH verði stofnað og kosin stjórn. 2) Haldið verði stúdentaþing næsta sumar þar sem rætt verði um sambandsstofnun auk þeirra mála sem gert er ráð fyrir að stúdenta- þing fjalli venjulega um. Akveðið verði að starfa saman næsta ár alveg eins og gert hefði verið, ef samband hefði verið stofnað, til að reyna hvort skipulagið sé framkvæman- legt. Sumarið 1968 verði svo haldið stúdentaþing, þar sem endanleg á- kvörðun verði tekin um sambands- stofnun. Niðurstaða Þessi grein er nú orðin óheyrilega löng. Astæðan er að ég tel það mjög miður farið ef skortur á þekkingu og skilningi á þessu mikilvæga máli yrði til að hindra framkvæmd þess. Þess vegna þorði ég ekki annað en ræða allrækilega um sem flestar hliðar málsins. Að lokum skal ég draga fram nokkur grundvallaratriði sem ég álít að skipti meginmáli: 1) Islenzkir háskólastúdentar heima og erlendis eru sérstakur þjóð- félagshópur. Sameiginleg vandamál þeirra eru í jmsum grundvallaratrið- um ólík vandamálum annarra þjóð- félagshópa. 2) Þessi sameiginlegu vandamál eru þess eðlis að nauðsynlegt er að sameina alla krafta við lausn þeirra. 3) íslenzkir háskólastúdentar eru svo fáir og samtök þeirra þess vegna svo veik að fásinna er að hafa ekki fullt og skipulegt samstarf á sviði sameiginlegra mála. 4) Mjög miklar líkur eru til þess að efling samtaka íslenzkra stúd- enta sem nám stunda erlendis og aukið samstarf þeirra og skipulags- leg tengsl við stúdenta hér heima, verði til að styrkja tengsl þeirra við íslenzkt þjóðfélag, efla með þeim þá tilfinningu að þeir séu hluti íslenzks þjóðfélags og innan þess ríki skiln- ingur á þörfum þeirra og þörf fyrir krafta þeirra. Þetta gceti orðið til að fcekka tölu þeirra sem ekki snúa heim frá námi og hefði þannig ómet- anlega þýðingu fyrir þjóðfélagið. 5) St/ídentar við Háskóla Islands eru tiltölulega einangraðir frá stúd- entum við aðrar ceðri menntastofn- anir. Það er því lífsnauðsyn fyrir þá að fylgjast með því sem gerist í stúdentalífi annarra þjóða og glímu erlendra stúdenta við sín vandamál. Náið skipulegt samstarf við islenzka stúdenta sem erlendis nema, í tug- um landa og við tugi eða hundruð menntastofnana, getnr haft mikil áhrif í þá átt að rjúfa einangrun stúd- enta hér heima og skapa lífrcen tengsl milli þeirra og hins alþjóðlega stúdentaheims. 6) Ef íslenzkir háskólastúdentar vilja stofna með sér samband, eru engar hindranir í vegi þeirra. Þeir geta gert það nú strax næsta sumar. 33 STÚDENTABLAÐ

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.