Fréttablaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI 35% 72% Fr ét ta bl að ið M or gu nb la ði ð Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009. Fréttablaðið er með 106% meiri lestur en Morgunblaðið Allt sem þú þarft... MIÐVIKUDAGUR 23. september 2009 — 225. tölublað — 9. árgangur Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 SAMTÖK FERÐAÞJÓNUSTUNNAR afhenda á hverju ári nýsköpunarverðlaun samtakanna fyrir athyglisverðar nýj- ungar. Óskað er eftir tilnefningum til verðlaunanna en þau má senda til SAF fyrir 15. október. www.saf.is „Það æxlaðist þannig að matur og drykkur varð meginþema ferðar-innar,“ segir Andrés Ingi Jónsson, verkefnisstjóri hjá Alþjóðamála-stofnun Háskóla Íslands, um brúð-kaupsferð hans og Rúnu Vigdísar Guðmarsdóttur, verkefnisstjóra á alþjóðaskrifstofu háskólastigsins. Þau hjónin komu í þessum mánuði úr tveggja vikna ferð um Þýska-land og nágrenni. „Við flugum til Frankfurt og fórum svo þaðan til Bamberg sem er ægi-lega falleg borg. Miðbærinn þar er á heimsminjaskrá UNESCO og þar er að finna níu brugghús “ se ihann og b i stilla á enskuna komumst við að því að sami maður las þann texta bara með hnausþykkum þýskum hreim. Það er miklu skemmtilegra að hlusta á þannig leiðarlýsingu,“ segir Rúna, auk þess sem hún segir það hafa verið sérdeilis ánægjulega upplifun að drekka lítravís af bjór úr níðþungri krús og snæða svína-skanka og saltkringlu á stærð við bílstýri í sólríkum garði. En frá München héldu þau Andr-és og Rúna að landamærum Frakk-lands og dvöldu í tvær nætur íbænum Ribeau illé Saarbrücken hafi þó eitt sem hinir staðirnir hafi ekki, þriggja stjörnu Michelin-veitingahús. Heimsókn á slíkan stað segja þau ótrúlega upp-lifun. Staðurinn er í gömlum herra-garði þar sem aðeins um tíu borð eru ætluð gestum og af þeim hafi þau fengið það fallegasta, um það bil 15 þjónar hafi þjónað til borðs og í eldhúsinu hafi verið saman-kominn fjöldi kokka og aðstoðar-manna. Að fylgjast með þjónunumað verki hafi helst miVi Brúðkaup og reyktur bjór Brúðkaupsferð um Þýskaland og nágrenni hljómar afskaplega vel sé miðað við frásögn þeirra Andrésar og Rúnu. Í ferðinni gafst gott tóm til að rækta hamingjuna og borða góðan mat. Hamingjuna og ástina er æskilegt að rækta með góðum smekk á víni og mat, þetta vita Rúna og Andrés vel. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VEÐRIÐ Í DAG ANDRÉS INGI JÓNSSON Þambaði reyktan bjór í brúðkaupsferðinni • á ferðinni Í MIÐJU BLAÐSINS BYGGINGAR Fyrstu stálkubbarnir sem mynda eiga glerhjúp á suðurhlið tónlistarhússins í Austurhöfn eru komnir til landsins frá Kína. Að sögn Sigurðar Ragnarssonar, verkefnisstjóra hjá ÍAV, verður uppsetning á kubbunum á suður- hliðinni hafin í þessum mánuði. Eftir um tvo mán- uði megi búast við að mynd verði komin á hjúpinn. Nokkuð er síðan uppsetning á hefðbundnari gler- hjúpi hófst á vestur- og austurhlið hússins. „Þessir kubbar úr gleri og stáli verða tilvísun í íslenskt stuðlaberg,“ segir Sigurður er hann skýrir út hvernig hönnun suðurhliðar tónlistarhússins er hugsuð. Sigurður segir verkið ganga ágætlega og að mikið sé um að vera á byggingarstaðnum um þessar mundir. „Við erum að loka síðasta salnum í húsinu og það er mikið að gerast í bílakjallaranum auk þess sem unnið er við innréttingar og lagnir. Við unnum allan sólarhringinn áður en nú er bara unnin dag- vinna og við reynum að koma eins mörgum hönd- um að verkinu og við getum,“ segir hann. Um 250 manns vinna nú á byggingarstaðnum sjálfum og fleiri vinna að verkinu úti í bæ. Áætlað er að tónlistarhúsið verði tekið í notkun í maí 2011. - gar Áfram unnið af krafti við byggingu tónlistarhússins í Austurhöfn: Stuðlabergshjúpur á leið upp STÁLKUBBARNIR FRÁ KÍNA Um tvö hundruð af um tvö þúsund stálkubbum eru komnir frá Kína og niður á Austurhöfn. HEILBRIGÐISMÁL „Ég held að það geti enginn stundað þá sjálfsblekk- ingu að niðurskurður af þeirri stærðargráðu sem við verðum vitni að núna ár eftir ár bitni ekki á störfum og þjónustu. Það hlýtur hann að gera, því miður, og fráleitt að halda annað,“ segir Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra. Eins og kunnugt er stendur fyrir dyrum mikill niðurskurður í heilbrigðiskerfinu. Heildarniður- skurðurinn verður sjö milljarðar á næstu fjárlögum. Stjórnendum Landspítalans er gert að lækka rekstrarkostnað sjúkrahússins um 7,5 prósent frá 2008, eða um 2,8 milljarða króna. Ögmundur segir niðurskurðarvinnuna þrí- þætta. Horft sé til samdráttar innan hverrar stofnunar fyrir sig og það greint hvar hægt er að ná sparnaði. Þá sé horft til skipulagsbreyt- inga og síðast til sjúkratrygginga, sérfræði- og lyfjakostnaðar. Horft sé til þess að varðveita störf sem frekast er kostur. Matthías Halldórsson landlækn- ir segir ljóst að þjónustan muni skerðast að einhverju leyti en aðal- atriðið nú sé að fara vel með fé og huga vel að öryggi sjúklinga. „Niðurskurðurinn er gríðarlegur og mun hafa alvarlegri afleiðingar en margir kunna að gera sér grein fyrir,“ segir Elsa B. Friðfinnsdótt- ir, formaður Félags hjúkrunar- fræðinga. - shá / kóp / sjá síðu 4 Þjónusta skerðist og störf munu tapast Skorið verður niður um sjö milljarða til heilbrigðismála á næstu fjárlögum. Heilbrigðisráðherra segir það sjálfsblekkingu að halda í þá von að þjónusta verði söm. Landlæknir segir aðalatriði að huga að öryggi sjúklinga. UMHVERFISMÁL Fækkunar- skeið rjúpunnar sem hófst árin 2005/2006 er afstaðið og stofn- vöxtur sem náði nær eingöngu til austanverðs landsins í fyrra tekur nú til landsins alls. Heildarstærð varpstofnsins í vor var 225 þús- und fuglar og veiðistofninn eftir sumarið er talinn vera 810 þúsund fuglar. Ólafur K. Niel- sen, vistfræðingur hjá Náttúru- fræðistofnun, segir að varpstofn- inn sé helmingi stærri en hann var vorið 2007 sem gefi vonir um enn frekari styrkingu stofnsins á næstu árum. - shá / sjá síðu 8 Niðurstöður rannsókna NÍ: Rjúpnastofninn sýnir batamerki IBEN HJEJLE Ástfangin af Íslandi Ánægð að fá að koma á RIFF FÓLK 20 JÖRUNDUR RAGNARSSON Sköllóttur eins og Georg Bjarnfreðarson Rakaði sig fyrir nýtt leikrit FÓLK 26 Mikill heiður Sigurður Skúlason er ánægður með samstarf sitt og leik- stjórans Aleksanders Sokurov. FÓLK 26 Höfði er aldarspegill Móttökuhús Reykjavíkur er hundrað ára. TÍMAMÓT 16 9 8 8 8 10 SKÚRIR VESTAN TIL Í dag verða suðvestan 3-8 m/s. Skúrir á vesturhluta landsins en þurrt á austurhlutanum og bjart veður allra austast. Hiti víðast 5-10 stig yfir daginn. VEÐUR 4 STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfús- son fjármálaráðherra boðar auk- inn þunga í niðurskurði og tekju- öflun hjá ríkinu. Þetta kom fram í máli ráðherrans fyrir fund þing- manna VG og Samfylkingar í gær. „Til þess að ná betri tökum á ríkisfjármál- unum þá þurf- um við að gera hvort tveggja; fara í umfangs- miklar sparn- aðaraðgerðir og afla meiri tekna,“ sagði Steingrímur. Fram undan sé að breyta skatt- kerfinu. „Við að sjálfsögðu reynum að huga að því að verðlagsáhrifin verði sem minnst,“ sagði ráðherrann sem kvaðst hafa tröllatrú á að íslenskt atvinnulíf sýni aðlögunarhæfni og kraft og komi á óvart – að því til- skyldu að hindrunum verði rutt úr vegi. - gar / sjá síðu 2 Bjartsýnn fjármálaráðherra: Þungi á skatta og niðurskurð STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Sögulegt hjá Heimi Ólafur Jóhann- esson og Jón Rúnar Halldórs- son segja sína skoðun á Heimi Guðjónssyni, þjálfara FH. ÍÞRÓTTIR 22 Mál að linni Svokölluð dómstólaleið er opin fyrir þá innistæðueigendur sem telja sig hlunnfarna segja Dóra Sif Tynes og Silja Bára Ómarsdóttir. Í DAG 14 ÓLAFUR K. NIELSEN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.