Fréttablaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 15
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 SAMTÖK FERÐAÞJÓNUSTUNNAR afhenda á hverju ári nýsköpunarverðlaun samtakanna fyrir athyglisverðar nýj- ungar. Óskað er eftir tilnefningum til verðlaunanna en þau má senda til SAF fyrir 15. október. www.saf.is „Það æxlaðist þannig að matur og drykkur varð meginþema ferðar- innar,“ segir Andrés Ingi Jónsson, verkefnisstjóri hjá Alþjóðamála- stofnun Háskóla Íslands, um brúð- kaupsferð hans og Rúnu Vigdísar Guðmarsdóttur, verkefnisstjóra á alþjóðaskrifstofu háskólastigsins. Þau hjónin komu í þessum mánuði úr tveggja vikna ferð um Þýska- land og nágrenni. „Við flugum til Frankfurt og fórum svo þaðan til Bamberg sem er ægi- lega falleg borg. Miðbærinn þar er á heimsminjaskrá UNESCO og þar er að finna níu brugghús,“ segir hann og bætir við að sérgrein þessa svæðis sé reyktur bjór sem þau hafi þjórað stíft. Því næst lá leiðin um hina fögru borg München. Þar skemmtu þau hjónin sér konunglega í ferð um borgina með hljóðleiðsögumann, sem spilaður var af snældu. „Við höfðum fyrst stillt á þýska lest- urinn en eftir að við prófuðum að stilla á enskuna komumst við að því að sami maður las þann texta bara með hnausþykkum þýskum hreim. Það er miklu skemmtilegra að hlusta á þannig leiðarlýsingu,“ segir Rúna, auk þess sem hún segir það hafa verið sérdeilis ánægjulega upplifun að drekka lítravís af bjór úr níðþungri krús og snæða svína- skanka og saltkringlu á stærð við bílstýri í sólríkum garði. En frá München héldu þau Andr- és og Rúna að landamærum Frakk- lands og dvöldu í tvær nætur í bænum Ribeauvillé í Alsace-héraði í Frakklandi. Svæðið í kring hefur öldum saman byggst á víngerð og sveitirnar fullar af vínviði og göml- um kastölum auk þess sem mikið af 500 ára gömlum húsum er að finna í bænum. Hápunktur ferðarinnar hafi þó verið í Saarbrücken, gamalli iðn- aðarborg sem fáir sjái ástæðu til að koma við í enda lítið spennandi miðað við aðrar borgir í kring. Saarbrücken hafi þó eitt sem hinir staðirnir hafi ekki, þriggja stjörnu Michelin-veitingahús. Heimsókn á slíkan stað segja þau ótrúlega upp- lifun. Staðurinn er í gömlum herra- garði þar sem aðeins um tíu borð eru ætluð gestum og af þeim hafi þau fengið það fallegasta, um það bil 15 þjónar hafi þjónað til borðs og í eldhúsinu hafi verið saman- kominn fjöldi kokka og aðstoðar- manna. Að fylgjast með þjónunum að verki hafi helst minnt á dans. Vitanlega hafi þetta kvöld kostað skildinginn en: „Það var þetta sem gerði ferðina að brúðkaupsferð,“ segja þau sammála. Eftir viðkomu í Hollandi og fleiri stöðum enduðu þau í Berlín en þar bjuggu þau á námsárum sínum í tvö ár. Heimsóknin þar var því eins konar upprifjunarferð um fornar slóðir. Gamlir vinir voru heimsótt- ir, uppáhaldskaffihúsin heimsótt og leit gerð að gamla pylsuvagninum. karen@frettabladid.is Brúðkaup og reyktur bjór Brúðkaupsferð um Þýskaland og nágrenni hljómar afskaplega vel sé miðað við frásögn þeirra Andrésar og Rúnu. Í ferðinni gafst gott tóm til að rækta hamingjuna og borða góðan mat. Hamingjuna og ástina er æskilegt að rækta með góðum smekk á víni og mat, þetta vita Rúna og Andrés vel. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.