Fréttablaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 26
22 23. september 2009 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is Rúnar Páll Sigmundsson tilkynnti í gær að hann væri hættur sem þjálfari 1. deildarliðs HK. Hann mun í nóvember næst- komandi taka við þjálfun norska C-deildarliðsins Levanger og mun samhliða því vera í mastersnámi í íþróttafræð- um. „Konan mín er líka að fara í nám og okkur hefur alltaf langað til að fara út. Við ákváðum því að gera þetta núna,“ sagði Rúnar Páll í samtali við Fréttablaðið. Rúnar tók við HK um mitt síðasta sumar og var þá ekki með tilskilin þjálfararéttindi. „Ég kláraði það allt saman á einu ári sem er líklega Íslandsmet,“ sagði hann og hló. Hann er því nú með UEFA-A þjálfarapróf auk þess sem hann útskrifaðist úr grunnámi í íþróttafræðum frá Háskólanum í Reykjavík í vor. „Ég er nú þegar byrjaður í mastersnáminu við Háskóla Íslands en mun halda því áfram í Noregi frá og með næsta hausti,“ sagði Rúnar. Hann segir það hafa komið nokkuð óvænt upp að hann fékk þjálfarastarfið hjá Levanger. „Ég sendi bara ferilskrána mína til félagsins. Þeim leist greinilega ágætlega á mig og höfðu samband. Ég á reyndar eftir að skrifa undir en það gerist væntanlega fljótlega.“ Rúnar segir starfið henta vel með náminu. „Það er frá- bært að geta samtvinnað atvinnu og nám og um leið haft fjárhagslegan grundvöll á meðan maður er í námi. Þess vegna kýldum við á þetta nú. Þetta verður örugglega nýtt ævintýri fyrir mig og mína fjölskyldu. Ef við hefðum ekki farið nú þá hefðum við kannski aldrei farið.“ HK varð í þriðja sæti 1. deildarinnar í haust og var nálægt því að endurheimta sætið sitt í efstu deild. „Við höfðum háleit markmið sem voru að mínu mati raunhæf. Auðvitað vildum við komast upp. Þótt það hafi ekki tekist er ég býsna ánægður enda var liðið eingöngu byggt upp á okkar strákum og var enginn nýr leikmaður fenginn fyrir tímabilið.“ Hann segir að það hefði þó engu breytt hefði HK komist upp. „Nei. Ég var búinn að taka mína ákvörð- un og hefði staðið fast á mínu.“ RÚNAR PÁLL SIGMUNDSSON: HÆTTUR HJÁ HK OG Á LEIÐ TIL NOREGS Nýtt ævintýri fyrir mig og mína fjölskyldu FÓTBOLTI Enska dagblaðið hefur komist að því að Manchester United fær lengri uppbótartíma í heimaleikjum sínum þegar liðið er ekki yfir þegar venjulegum leik- tíma lýkur. Umræða um uppbót- artíma knattspyrnuleikja hefur verið áberandi síðan að Michael Owen skoraði sigurmark United í 4-3 sigri liðsins gegn grönnum sínum í Manchester City þegar vel var komið fram yfir venjuleg- an leiktíma. Uppbótartíminn var sagður vera að minnsta kosti fjórar mínútur en Owen skoraði markið á sjöttu mín- útu uppbótartímans sem var sam- tals tæpar sjö mínútur þegar leik- urinn var flautaður af. Eftir þetta ákvað The Guardian að skoða alla leiki United síðustu þrjú tímabil. Niðurstaðan er sú að United fær að meðaltali lengri uppbótartíma í leikjum sínum þegar þeir þurfa á því að halda. United hefur samtals verið í for- ystu þegar venjulegum leiktíma lýkur í 48 heimaleikjum sínum á undanförnum þremur árum. Í þeim leikjum hefur uppbótartím- inn verið að meðaltali 191,35 sek- úndur. Í þeim tólf leikjum þar sem Unit- ed hefur ekki verið að vinna var uppbótartíminn að jafnaði 257,17 sekúndur. United fær þó ekki jafn lang- an uppbótartíma í heimaleikjum sínum á þessum þremur árum og hin stórliðin í ensku úrvalsdeild- inni. Meðallengd uppbótartímans á Old Trafford er 205 sekúndur en 210 sekúndur á Anfield (Liver- pool), 224 sekúndur á Emirates Stadium (Arsenal) og 229 sekúnd- ur á Stamford Bridge (Chelsea). Marga hefur þó grunað að Unit- ed njóti liðsinnis dómara í þessum efnum og sumir hafa gengið svo langt að fullyrða það í fjölmiðl- um. Rannsókn Guardian virðist sýna að þeir hafi eitthvað til síns máls og að þróunin hafi versnað eftir árum. Munurinn var rúmar 20 sek- úndur tímabilið 2007-8, tæp mínúta ári síðar og svo aftur í fyrra. Sama munstur er á leikjum liðs- ins á heimavelli til þessa í ár. Í þeim tveimur leikjum sem Unit- ed hefur verið með forystuna var uppbótartíminn að meðaltali 304 sekúndur en hann var 415 sekúnd- ur gegn City um helgina. - esá The Guardian segir Manchester United njóta stuðnings dómara í leikjum sínum: Fær lengri uppbótartíma þegar þess er þörf ÓSÁTTUR Mark Hughes ræðir við aðstoðardómara eftir að Michael Owen skoraði sigurmark United gegn City um helgina. NO R D IC P H O TO S/ G ET TY FÓTBOLTI Heimir Guðjónsson, þjálf- ari Íslandsmeistara FH, hefur byrjað þjálfaraferil sinn á sögu- legan hátt og vann á sunnudaginn sinn annan Íslandsmeistaratitil að öðru ári sínu í starfi. Jón Rúnar Halldórsson, formað- ur Knattspyrnudeildar FH, er eins og aðrir FH-ingar í skýjunum með að hafa ráðið Heimi þegar Ólafur Jóhannesson ákvað að hætta með liðið. „Þetta var mjög auðveld ákvörð- un og við erum ákaflega fegnir að það sem við töldum vera rétta ákvörðun hefur reynst vera rétt ákvörðun,“ sagði Jón Rúnar og bætti við: „Það kom ekkert annað til greina en að leita til hans. Hann hafði verið með Óla og sýnt það að hann hafði þetta í sér. Þegar að þessu kom þá var hann spurður einnar spurningar, treystir þú þér í þetta, og hann sagði já,“ rifjar Jón Rúnar upp. „Hann lifir fyrir fótboltann og er búinn að pæla í honum fram og til baka. Auðvitað vissi ég að hann tæki einhvern tímann við sem þjálfari FH. Ég held að þetta hafi verið frábær tímapunktur fyrir hann,“ segir Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari og fyrirrennari hans hjá FH-liðinu. Þurfti klókan mann „Það er magnað afrek að vinna titilinn tvö fyrstu árin og sýnir úr hverju hann er gerður. Hann hefur náð að halda einstaklega vel utan um þetta og þá sérstaklega í sumar þar sem liðið gekk í gegnum mikil meiðsli en náði samt að klára það með sæmd. Á hans fyrsta ári komu þeir svona skemmtilega aftan að Keflvíkingunum og kláruðu það. Þeir héldu þá haus síðustu vikuna og það þarf klókan mann til þess að halda því gangandi,“ segir Ólaf- ur. FH-liðið hefur unnið 31 af 43 deildarleikjum undir hans stjórn og tapleikirnir eru ekki nema átta talsins. Vinni FH-liðið Fylki á laug- ardaginn hefur liðið náð í hundrað stig undir hans stjórn. „Hann hefur verið mjög farsæll með sína leikmenn. Hann er með góðan hóp en hann hefur hald- ið mönnum vel á tánum og það er enginn að slaka á þessu liði,“ segir Ólafur sem játar að Heimir sé öðruvísi þjálfari en hann sjálfur. Heimir er heiðarlegur „Styrkur Heimis sem þjálfari er að Heimir er heiðarlegur og kemur hreint fram við leikmenn. Hann hefur ákveðnar og góðar skoðanir á fótboltanum. Ég held að hann eigi gott með að stjórna skapi sínu og það er hans styrkur,” segir Ólafur. Jón Rúnar segir það hafa skipt miklu máli að ráða mann sem þekkti vel til í herbúðum félagsins. „Það var ekki eins og hann væri að koma í fyrsta skiptið í Krik- ann. Hann bjó að því að hafa verið þarna og áttað sig á hvernig hlut- irnir virka,“ segir Jón Rúnar. „Hann hefur komið mér á óvart að sumu leyti. Hann er mjög yfir- vegaður og lætur ekkert koma sér úr jafnvægi. Ég held að hann sér einbeittari en maður hafði hald- ið fyrir einhverjum tíma þótt að það komi mér ekkert á óvart leng- ur,“ segir Jón Rúnar sem sér alveg fyrir sér að Heimir Guðjónsson geti verið þjálfari FH í mörg ár til viðbótar. Eins lengi og Ferguson „Ég sé hann vera eins lengi hjá okkur og hann telur sig hafa eitt- hvað fram að færa. Það getur verið langur tími og menn þurfa ekki að horfa langt til annarra landa þar sem menn hafa verið lengi við stjórnvölinn en eru alltaf að ná árangri og alltaf að gera betur,“ sagði Jón Rúnar og vísar þar í Alex Ferguson, stjóra Manchest- er United, sem hefur verið á Old Trafford í 23 ár. „Ég er alveg klár á því að hann á eftir að taka marga titla í viðbót,“ segir Ólafur sem hefur aldrei falið FH-inginn í sér. „Þó að ég sé lands- liðsþjálfari þá hlýt ég að mega halda með einhverju liði öðru en landsliðinu. Ég hef aldrei farið leynt með það að ég held með FH,“ segir Ólafur sem á mikið í liði FH enda var hann fyrsti maðurinn í sögu félagsins til að gera FH að bæði Íslands- og bikarmeisturum. Þegar Ólafur hætti með liðið var hann búinn að gera það að meist- urum þrjú ár í röð. Hefur frábærar hugmyndir „Ég var þjálfari liðsins þegar FH vann fyrsta titilinn. Það var ákveð- inn hjalli og svo er annað að fylgja því eftir og það er ekki hægt að segja annað en að það gangi vel hjá eftirmanni mínum. Hann er með frábært lið í höndunum en hann er líka með frábærar hugmynd- ir um fótbolta. Hann hefur staðið sig feiknavel. Ég samgleðst honum innilega og öllum í FH,“ sagði Ólaf- ur að lokum. ooj@frettabladid.is Á eftir að taka marga titla í viðbót Heimir Guðjónsson varð á sunnudaginn fyrsti þjálfarinn til að gera lið að Íslandsmeisturum fyrstu tvö ár sín sem þjálfari í meistaraflokki. Fréttablaðið fékk fyrirrennara hans, Ólaf Jóhannesson landsliðsþjálfara, og þann sem réði hann, Jón Rúnar Halldórsson, til að ræða þjálfarann Heimi Guðjónsson. TITILLINN Í HÖFN Jörundur Áki Sveinsson aðstoðarþjálfari og Jón Rúnar Halldórsson, formaður Knattspyrnudeildar FH, fagna með Heimi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Hólmfríður Magnús- dóttir, leikmaður Kristianstad í Svíþjóð og íslenska landsliðsins, var í gær valin af Philadelphia Independence í nýliðavali banda- rísku atvinnumannadeildarinn- ar, WPS. „Hólmfríður er mjög góður kantmaður með hraða, tækni og mikla hæfileika til þess að leik á menn. Það verður gaman að fylgjast með henni og hún mun skapa mikil vandræði fyrir and- stæðingana,“ sagði Paul Riley, þjálfari Philadelphia Independ- ence á heimasíðu félagsins. „Hún er líka harður nagli, með góðan vinstri fót og kraft og nákvæmni. Hún verður án nokk- urs vafa uppáhald stuðnings- manna okkar,“ bætti Riley við. Philadelphia eru nýliðar í deildinni og valdi liðið einn- ig sænsku stelpurnar Caroline Seger og Charlotte Rohlin og ensku stelpurnar Fara Williams og Lianne Sanderson. - óój Nýliðarnir völdu Hólmfríði: Verður uppá- hald áhorfenda VIÐURKENNING Hólmfríður Magnús- dóttir hefur átt flott ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Powerade-bikar karla Njarðvík-Fjölnir 81-66 Stigahæstir: Friðrik Stefánsson 19 (16 frák.), Jóhann Árni Ólafsson 10 - Zachary Johnson 16. Stjarnan-Hamar 103-83 Stigahæstir: Jovan Zdravevski 38, Justin Shouse 22 - Andre Dabney26, Marvin Valdimarsson 13. Í kvöld mætast Breiðablik og Tindastóll (Kl: 19.15) og ÍR og FSU (Kennó Kl: 20.00) Enski deildarbikarinn Arsenal-West Brom 2-0 Sanchez Watt og Carlos Vela Barnsley-Burnley 3-2 Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan leikinn. Bolton-West Ham 3-1 Davies, Cahill, Elmander- Ilunga. Grétar Rafn Steinsson var á bekknum. Carlisle-Portsmouth 1-3 Leeds-Liverpool 0-1 David Ngog Nott Forest-Blackburn 0-1 Benni McCarthy Peterborough-Newcastle 2-0 Scunthorpe-Port Vale 2-0 Stoke-Blackpool 4-3 Sunderland-Birmingham 2-0 Jordan Henderson og Fraizer Campbell Þýski bikarinn í handbolta Kiel-Füchse Berlin 34-26 Aron Pálmarsson skoraði 1 mark fyrir Kiel og Rúnar Kárason var með 2 mörk fyirr Berlín. Lið Alfreðs Gíslasonar sló þarna út lærisveina Dags Sigurðssonar. Bittenfeld-Rhein Neckar Lowen 31-33 (27-27) Ólafur Stefánsson tryggði Rhein Neckar Lowen framlengingu úr vítakasti eftir að leiktímanum lauk. Ólafur skorað 5 mörk í leiknum eins og Guðjón Valur Sigurðsson. ÚRSLITIN Í GÆR > Kristín og Rakel spila ekki á sama tíma Kristín Ýr Bjarnadóttir í Val og Rakel Hönnudóttir eru efstar og jafnar í baráttunni um gullskóinn í Pepsi-deild kvenna þegar aðeins ein umferð er eftir. Báðar hafa þær skorað 23 mörk í 17 leikjum. Síðasta umferðin fer fram um næstu helgi en liðin þeirra spila samt ekki á sama tíma því leikur Vals og Aftureldingar/Fjölnis hefur verið færður fram á laugardaginn. Það þýðir að þegar Rakel og félagar í Þór/KA hefja leik á móti KR á sunnudaginn þá gæti Kristín Ýr verið búin að setja mikla markapressu á Rakel sem er einnig að reyna að hjálpa sínu liði að ná öðru sæti og tryggja sér Evrópusæti næsta sumar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.