Fréttablaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 23. september 2009 folk@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 23. september ➜ Fyrirlestrar 12.00 Katsuhiro Natsume sendifulltrúi í japanska sendiráðinu á Íslandi, ræðir mikilvægi góðra tengsla milli Íslands og Japans á fyrirlestri sem hann heldur í Háskólanum á Akureyri í Sólborg (L 201) við Norðurslóð. Allir velkomnir. 12.00 HÍ stendur fyrir fyrirlestraröð þar sem íslenskir rithöfundar veita innsýn í tilurð þekktra ritverka. Í dag flytur Jón Kalman erindi um skáld- sögu sína „Sumarljós og svo kemur nóttin“ í stofu HT-102 í Háskóla- torgi við Sæmundar- götu. Allir velkomnir. ➜ Tónleikar 20.30 Bubbi Morthens heldur tón- leika í Bolungarvíkurkirkju. Húsið verður opnað kl. 20. ➜ Opið hús Þjóðdansafélagið við Álfabakka 14, verður með opið hús kl. 20.30-23, þar sem stiginn verður dans við lifandi tón- list. Allir velkomnir. ➜ Fjölskyldumorgnar Í Borgarbókasafni við Tryggvagötu verður boðið upp á samverustund fyrir fjölskyldur með börn á aldrinum 0-6 ára kl. 10.30-11.30. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir. Nánari upplýsingar www.borgarbokasafn.is. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Yfir eitt hundrað flytjend- ur koma fram á tónleika- röðinni Réttir sem hefst í Reykjavík í dag og lýkur á laugardag. Fréttablaðið kynnti sér nokkra af há- punktum dagskrárinnar. Danska hljómsveitin The State, The Market & The DJ, sem vakti verð- skuldaða athygli á SPOT-hátíðinni í vor og á Hróarskelduhátíðinni í sumar, spilar á Batteríi annað kvöld og á Nasa á laugardags- kvöld. Fyrsta plata hljómsveit- arinnar, New Speak, féll í góðan jarðveg hjá löndum hljómsveitar- meðlima og víðar þegar hún kom út fyrr á árinu. Tónlistinni mætti lýsa sem minímalískri og brothættri en afar vandaðri. Lögin eru vel útsett og spiluð af mikilli innlifun í bland við flókna kórsöngsparta og spenn- andi spunakafla. Hanne Hukkelberg Norska söngkonan Hanne Hukk- elberg byrjaði aðeins þriggja ára að syngja og spila á hljóðfæri í heimabæ sínum, Kongsberg. Síðan þá hefur hún spilað með alls konar hljómsveitum, þar á meðal í dauða- rokks- og djasssveitum. Sem sóló- tónlistarmaður hefur hún fengið góð viðbrögð og þykir einstaklega skemmtileg á tónleikum. Á meðal áhrifavalda hennar eru Sonic Youth, Cocteau Twins, Pixies og P.J. Harvey. Hún gaf nýverið út sína þriðju plötu, Blood From a Stone, sem þykir rokkaðari en þær fyrri. Hanne spilar á Rósenberg í kvöld klukkan 22.30. Apparat Organ Quartet Apparat Organ Quartet var stofn- uð fyrir tíu árum en hefur á ferli sínum aðeins gefið út eina plötu. Í hljómsveitinni eru fjórir hljóm- borðsleikarar og einn trommari, sem gerir hana eina þá sérstæð- ustu hér á landi og þótt víðar væri leitað. Meðlimirnir heita: Jóhann Jóhannsson, Pétur Zar Braga- son, Músíkvat ur, Úlfur Eldjárn og Arnar Geir Ómarsson. Eftir langt hlé er sveitin um þessar mundir að ljúka upptökum á nýrri plötu og bíða hennar margir með mik- illi eftirvæntingu. Apparat spilar á Nasa á laugardagskvöld á mið- nætti. Hjaltalín Hljómsveitin Hjaltalín er ein efni- legasta hljómsveit landsins, enda hefur hún verið dugleg við tón- leikahald erlendis að undanförnu. Skemmst er að minnast góðrar frammistöðu hennar á Hróars- kelduhátíðinni í Damörku. Fyrsta plata sveitarinnar, Sleepdrunk Seasons, hefur fengið góðar við- tökur bæði hér heima og erlendis þar sem fjölmiðlar á borð við The Guardian, Drowned in Sound og Plan B hafa hrósað henni í hástert. Önnur plata Hjaltalín er væntanleg snemma á næsta ári þar sem sin- fóníuhljómsveit mun setja sterkan svip á útkomuna. Tónleikar sveitar- innar verða á Nasa í kvöld kl. 23. RÉTTIR HEFJAST APPARAT Orgelkvartettinn skemmtilegi er að undirbúa sína aðra plötu. HANNE HUKKELBERG Á meðal áhrifa- valda norsku söngkonunnar eru Sonic Youth, Pixies og P.J. Harvery. THE STATE, THE MARKET & THE DJ Danska hljómsveitin spilar tvívegis á Réttum. Fyrst á Batteríi annað kvöld og síðan á Nasa á laugardagskvöld. > EKKI TIL VEGAS Það styttist í brúðkaup söngvarans Kevins Jonas og unnustu hans og standa bræður hans nú í ströngu við að skipuleggja steggjateiti. „Þetta verður góð og heilbrigð skemmtun og við ætlum að hafa það notalegt með fjölskyldu og vinum. Við ætlum ekki til Vegas, heldur eitthvert annað og betra,“ var haft eftir yngsta bróðurnum, Nick Jonas, um veisluna væntanlegu. Frestur til að skila hugmyndum í samkeppni um heildarskipulag Gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar í Reykjavík rennur út þriðjudaginn 6. október 2009. Notið fallega haustdaga til að láta hugann reika í þágu Gömlu hafnarinnar! Allar hugmyndir eru vel þegnar og þeim má skila í óbundnu eða bundnu máli, sem teikningum eða ljósmyndum eða á annan þann hátt sem höfundar telja best hæfa. Upplýsingar um framsetningu og frágang er að finna í samkeppnislýsingu. • Heildarverðlaun í samkeppninni verða fjórtán milljónir króna, þar af tólf milljónir króna fyrir tillögur fagfólks og annarra sem uppfylla tiltekin skilyrði og tvær milljónir króna fyrir hugmyndir frá almenningi. • Samkeppnislýsingu má nálgast á faxafloahafnir.is eða á ai.is • Dómnefnd gerir ráð fyrir að birta niðurstöður sínar í lok nóvember 2009. Lending að loknu hugmyndaflugi 6. október A T H Y G L I

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.