Fréttablaðið - 23.09.2009, Qupperneq 16
23. september 2009 MIÐVIKUDAGUR2
„Við höfum stundað þetta í nokkur
ár og líklega er áhuginn bara með-
fæddur,“ segir Birgir Kristinsson
glaðlega en hann og Björn, bróðir
hans, vinna báðir í fjölskyldufyr-
irtækinu Tómstundahúsinu, sem
selur fjarstýrða bíla.
Þeir bræður héldu utan helg-
ina 4. til 6. september síðastliðinn
ásamt félögum sínum, Marteini
Sigurðssyni og Sigurjóni Sigur-
jónssyni, til að taka þátt í loka-
keppni Evrópumótaraðar stórra
fjarstýrðra bíla sem haldin var í
Þýskalandi, nærri Nürburgring-
brautinni.
„Þetta var 24 tíma löng þol-
aksturskeppni sem fimmtán lið
frá nokkrum löndum tóku þátt
í,“ útskýrir Birgir en þeir félag-
ar skiptust á að keyra brautina og
tóku tveggja tíma tarnir.
Hvert lið hefur yfir að ráða
einum bíl og svo fjölda varahluta
enda margt sem getur bilað og
brotnað í svo langri keppni. Bíl-
arnir sem keppt er með eru enda
engin venjuleg leikföng. „Þeir eru
knúnir áfram af mótorum svip-
uðum þeim sem eru í sláttuorf-
um nema öflugri, þeir ganga fyrir
bensíni, eru um 82 cm langir, vega
um 10 kíló og geta keyrt yfir 100
km/klst,“ útskýrir Birgir.
Fyrsta æfingin var á föstudegi
og þá var farið með bílinn í tækni-
skoðun hjá dómurum. Þá gáfust
tveir tímar til að prófa brautina
sem var við Off-road park sem
er hluti af Nürburgring-svæð-
inu. Eftir það var klukkutímalöng
tímataka í stíl við gamla F-1 form-
ið sem ákvarðaði hvar í röðinni
bíllinn yrði við upphaf keppninn-
ar daginn eftir.
Sjálf keppnin hófst á hádegi
á laugardeginum. „Keppnin var
ræst með tilheyrandi æsingi, allir
voru að berjast fyrir stöðu í braut-
inni,“ rifjar Birgir upp. Íslend-
ingunum gekk ágætlega en urðu
þó fyrir nokkrum skakkaföllum.
„Það brotnaði stýri þegar klukku-
tími var liðinn, svo gekk hraðar á
varahlutina og dekkin en við höfð-
um hugsað okkur,“ segir hann.
Um tíma voru þeir í neðsta sæti
en gátu með seiglu unnið sig upp
aftur og enduðu að lokum í tíunda
sæti af fimmtán.
„Við fundum lítið fyrir þreytu
enda adrenalínið alveg í botni
meðan á keppninni stóð,“ segir
Birgir en keppninni lauk á hádegi
á sunnudaginn. Tékkar voru efstir,
Þjóðverjar í öðru sæti og Hollend-
ingar í því þriðja.
En á að fara aftur næsta ár? „Það
væri mjög gaman en ræðst af því
hvort við fáum einhverja styrktar-
aðila,“ segir hann og bætir gletti-
lega við: „Nema keppnin verði
haldin hér á landi, hver veit?“
solveig@frettabladid.is
Engin venjuleg leikföng
Fjórir Íslendingar, þeir Birgir og Björn Kristinssynir, Marteinn Sigurðsson og Sigurjón Sigurjónsson héldu
til Þýskalands á dögunum til að taka þátt í lokakeppni Evrópumótaraðar stórra fjarstýrðra bíla.
Keppnin fór fram nærri Nürburgring-brautinni í Þýskalandi. MYND/ÚR EINKASAFNI
Fjórmenningarnir voru vel stemmdir fyrir keppnina sem stóð í 24 tíma samfleytt.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Gönguferð um fjölskrúðugt
landslag eyjunnar Tenerife er á
döfinni hjá Úrval-Útsýn í næsta
mánuði. Fararstjóri er Margrét
Árnadóttir.
Margrét Árnadóttir er nýlega
gengin til liðs við Úrval-Útsýn sem
umsjónarmaður gönguferða og
heldur í þá fyrstu hinn 10. októb-
er. Þá verður hin fagra Kanaríeyja,
Tenerife, lögð undir fót. Hún segir
göngurnar alls ekki erfiðar, þar sé
um margar skemmtilegar leiðir að
velja og mjög fjölbreyttar. „Það er
með ólíkindum hvað ein eyja hefur
upp á að bjóða,“ segir hún og nefn-
ir framandi gróður, flott gil og frá-
bært útsýni. „Svo heimsækjum við
hellisbúa,“ bætir hún við.
Farið er á miðvikudegi og komið
heim viku síðar. Gist verður á
tveimur stöðum og alltaf komið
heim á hótel að kveldi. „Þetta er
bara lúxus,“ segir Margrét létt í
máli. Verðið er 169.000 krónur og
inni í því er allt; flug, gisting, fullt
fæði og drykkir með mat, flutning-
ur og fararstjórn.
Margrét hefur mikla reynslu af
fararstjórn og kveðst hafa gengið
á fjöll síðan 1993, bæði hérlendis
og erlendis. Hún telur það forrétt-
indi að fá að labba á stuttbuxum
um suðrænar eyjar þegar komið
er haust hér á norðurhjara. „Þetta
er yndislegur tími til að fara á og
lengja með því sumarið og það er
svo margt að skoða að hver einasti
dagur verður ævintýri.“
- gun
Gönguferðir í stuttbuxum
„Þetta er bara lúxus,“ segir Margrét um
væntanlega gönguferð um Tenerife.
AUDI E-TRON er ofursportbíll sem
gengur eingöngu fyrir rafmagni.
Hann var kynntur á bílasýning-
unni í Frankfurt fyrir skömmu.
Eftirtektarverð ný leið til að losna á skjótan hátt
við verki, streitu og vanlíðan.
Námskeið:
I) Fyrir alla – sjálfshjálp gegn verkjum og STRESSI
Haldið: 29. September 9:00-17:00
II) Framhaldsnámskeið fyrir fagfólk
Haldið: 30. September 9:00-17:00
Kennari: Daniel Benor, geðlæknir
Wholistic Psychotherapist (Can), MD,
Psychiatrist, ABIHM (US).
Höfundur WHEE aðferðafræðinnar.
Verð: Þriðjudagur 19000 krónur Tveir dagar 38000 Krónur
Ef þú tekur með þér félaga færð þú 25% afslátt af námskeiðgjaldinu.
„Ég hvet alla fagaðila sem vilja kynna sér þessa einföldu og
árangursríku aðferð til að mæta„ Örn Jónsson, sjúkranuddari
Upplýsingar veitir Lilja í síma 6990858 eða liljaogelli@internet.is
LÆRÐU AÐ LOSNA VIÐ
VERKI Á 7 MÍNÚTUM