Fréttablaðið - 23.09.2009, Page 30

Fréttablaðið - 23.09.2009, Page 30
26 23. september 2009 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. land, 6. kúgun, 8. mál, 9. gapa, 11. guð, 12. strengjahljóðfæri, 14. skammt, 16. ólæti, 17. bar, 18. orlof, 20. persónufornafn, 21. baktal. LÓÐRÉTT 1. hróss, 3. stefna, 4. trjátegund, 5. fæða, 7. klína, 10. stefna, 13. umfram, 15. rótartauga, 16. styrkur, 19. klaki. LAUSN LÁRÉTT: 2. kúba, 6. ok, 8. tal, 9. flá, 11. ra, 12. sítar, 14. stutt, 16. at, 17. krá, 18. frí, 20. ég, 21. last. LÓÐRÉTT: 1. lofs, 3. út, 4. barrtré, 5. ala, 7. klístra, 10. átt, 13. auk, 15. tága, 16. afl, 19. ís. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Boris Jeltsín. 2 Klæðning. 3 Ragnar Bjarnason. „Ég er í skóla en hlusta oftast á Rás 2 við heimavinnuna og þá helst Poppland. Aðalheiður Erlendsdóttir, stendur fyrir pönksýningu í Kópavoginum. Gísli Þór Guð- mundsson, eða Gis von Ice, er hættur sem umboðsmaður rokksveitarinnar Sign eftir að hafa eytt mörg- um árum í að koma henni á framfæri erlendis. Þetta er annað áfallið sem sveitin verður fyrir á skömmum tíma því stutt er síðan trommarinn Egill Rafnsson sagði skilið við hana eftir að bróðir hans og söngvarinn Ragnar Sólberg neitaði að skrifa undir freist- andi plötusamning við þýskt útgáfufyrirtæki. Stutt- og heimildarmyndahátíðin Nordisk Panorama hefst um helg- ina. Verk Friðriks Þórs Friðriks- sonar verða áberandi og meistara- verkin Rokk í Reykjavík og Kúrekar norðursins verða bæði sýnd í bíó, sem og Sólskinsdrengurinn með tali Kate Winslet. Einnig er líklegt að svokallaður opinn kvöldverður með Friðriki og Lars Von Trier fari fram í Norræna húsinu á sunnudaginn. Flughræddi Lars verður auðvitað heima hjá sér og mun slafra í sig síld og tala við Friðrik í gegnum tölvuskjá. Yfir 400 erlendir gestir mæta á Nordisk Panorama. Þessi fjöldi sýnir vel hversu vinsæl og mikilvæg hátíðin er orðin en 72 myndir keppa um verðlaunin. Einn af starfsmönnum hátíðarinnar er Bergur Ebbi Benediktsson sem nýverið lýsti því yfir að hann væri hættur í Sprengjuhöllinni. Ætti hann að hafa í nógu að snúast við að sinna öllum þessum gestum. -fb, drg FRÉTTIR AF FÓLKI Kvikmyndin Algjör Sveppi og leitin að Villa verður frumsýnd á fimmtu- daginn, en stjarnan Sveppi er strax farinn að pæla í næsta verkefni. Hann er ekkert að flækja hlutina og breytir bara endingunni: fer úr Algjör Sveppi í Algjör sveppur. „Já, það stendur til að setja upp nýja leikgerð eftir Gísla Rúnar Jónsson, sem hann hefur gert upp úr plöt- unni Algjör sveppur,“ segir Sveppi. Platan kom út árið 1978 og er fyrir löngu orðin klassísk. „Það er svona verið að skoða handritið núna og fikta í því,“ segir Sveppi sem mun leika aðalhlutverkið. Björgvin Franz Gíslason leikur á móti honum, Felix Bergsson leikstýrir og Jón Ólafsson sér um tónlistina. Sveppi segir að frumsýnt verði fljótlega eftir ára- mót en ekki er búið að ákveða hvar verður sýnt. En er Sveppi ekkert orðinn leiður á að vera alltaf í barnasýningum? „Ég neita því ekki að ég var kom- inn með hálfgert ógeð eftir Kalla á þakinu og Gosa, en svo kemur bara alltaf eitt- hvað nýtt ögrandi verkefni. Dramatísku hlutverkin eru heldur ekkert að heilla mig. Mig myndi ekkert langa til að leika í Sjálfstæðu fólki. Mig langar ekkert að leika í einhverju sem mér finnst leiðinlegt. Ég er söngleikjavitleysingur og ætli Frank-N-Furter sé ekki bara draumahlutverkið.“ En hvað með nýju bíómyndina – er hún jafn góð og Skoppa og Skrítla? „Þeirra mynd er fyrir eins árs og upp úr, en mín er fyrir þriggja ára og upp úr, svo þetta er ekki samanburð- arhæft,“ segir Sveppi. „Þótt myndin sé fyrir börn verður að vera eitthvað fyrir fullorðna líka. Eftir að ég fór að fara með krakkana mína í bíó fattaði ég að það eru bestu myndirnar sem maður hefur gaman af að fara á sjálfur, eins og sumar þessara Disney-mynda, Shrek, Toy Story og Ice Age svo ég nefni eitthvað. Það er sumt í Algjörum sveppi sem bara fullorðnir skilja.“ - drg Sveppi í nýju barnaleikriti Gísla Rúnars DRAMATÍKIN HEILLAR EKKI Sveppi mun leika aðalhlutverkið í nýju ALGJÖR SVEPPUR Plötuumslag meistara- verksins frá 1978. „Þetta er bara í starfslýsingunni, maður verður að fórna sér fyrir listina,“ segir Jörundur Ragn- arsson leikari sem gengur nú um með hatt eða húfu meðal almenn- ings. Ástæðan er ekki sú að hann sé haldinn einhverjum sjúklegum áhuga á höfuðfötum, síður en svo. Jörundur er nefnilega kominn með skalla. Þó ekki af fúsum og frjáls- um vilja eða af því að það er svo töff heldur vegna þess að persóna hans í leikverkinu Heima er best, sem frumsýnt verður á föstudag- inn í Borgarleikhúsinu, er með rak- aðan skalla. Jörundi hefur ætíð þótt vænt um hárið sitt en þarf nú að raka á sér kollinn næstu mánuðina. Hann segist loksins skilja gremju Jóns Gnarr, mótleikara síns í Vaktar- seríunni, en eins og alþjóð veit þá rakaði Jón á sig skalla fyrir hlut- verk Georgs Bjarnfreðarsonar. „Ég finn alveg svakalega til með honum núna. Ég hitti hann í gær og hann lýsti yfir samúð sinni með mér,“ segir Jörundur og bætir því við að honum hafi þótt Jón væla fullmikið yfir skallanum á sínum tíma. „En núna, þegar maður er kominn með þetta sjálfur, þá er þetta meira en að segja það. Maður er farinn að fjárfesta í höttum og húfum og maður getur ekki farið í sund svona.“ Jörundur er ekki í vafa um að þetta sé um það bil það heimsku- legasta sem hann hafi látið hafa sig út í. Og ekki vekur skallinn mikla hrifningu heima fyrir þar sem mótleikkona hans í verkinu og unn- usta, Dóra Jóhannsdóttir, ræður ríkjum. Sjálf þurfti hún að dekkja á sér hárið, sem Jörundi finnst nú bara smámál miðað við það sem hann þarf að þola. Og Dóra hefur mjög ákveðnar skoðanir á skall- anum. „Henni finnst þetta ekkert sérstaklega flott. Þetta var fynd- ið í tíu mínútur en nú er ég bara ofboðslega asnalegur. Enda ætla ég að ganga um með hatt, líka heima hjá mér.“ freyrgigja@frettabladid.is JÖRUNDUR RAGNARSSON: NÚ SKIL ÉG GREMJU JÓNS GNARR Sköllóttur eins og Georg MIKIÐ Á SIG LAGT Jörundi Ragnarssyni fannst fyndið að vera með skalla í tíu mínútur. Nú sé hann bara asnalegur. Menn leggi þó ýmislegt á sig fyrir listina. „Tökunum er lokið og ég er bara kominn heim. Þetta var ekki stórt hlutverk og ekki langur tími í tökum, bara nokkrir dagar,“ segir leikarinn Sigurður Skúlason. Eins og Fréttablaðið greindi frá í sumar var Sigurður ráðinn í kvikmynd rússneska leikstjórans Aleksandr Sokurov. Tökur fóru fram í tveim- ur gömlum kastölum í Tékklandi. Mikil leynd hvíldi yfir handritinu á sínum tíma en nú er orðið opin- bert að myndin er um Faust, mann- inn sem seldi kölska sálu sína. Sokurov skrifar sjálfur handrit- ið sem er byggt bæði á leikritinu eftir Gothe og skáldsögu Thomas Mann. Myndin er hluti af fjórleik rússneska leikstjórans um mann- inn og valdið. Þótt hlutverk Sigurðar sé kannski lítið á pappírunum er það nokkuð stórt í samhengi hlutanna. Því hann er pabbi Fausts. Sigurður vildi samt sem áður lítið tjá sig um kvikmyndina en sagði þetta hafa verið einstakt tækifæri fyrir sig sem listamann. „Sokurov er alveg frábær maður, eiginlega bara frá- bær manneskja og það var virki- lega gaman að sjá hvernig hann vinnur hlutina. Það var allt mjög vel gert, hann er mikill nákvæmn- ismaður og vandvirkur og hugar að öllu og öllum af mikilli umhyggju,“ segir Sigurður. Sokurov, með tökulið sitt, er síðan væntanlegur til Íslands í lok október og verða þá teknar upp lokasenurnar fyrir Faust. Aðalleik- arar myndarinnar koma einnig til landsins en heimildir Fréttablaðs- ins herma að Þingvellir muni koma þar töluvert við sögu. Sokurov fór þangað í tengslum við RIFF-kvik- myndahátíðina fyrir þremur árum þegar hann var heiðursverðlauna- hafi og heillaðist af staðnum. Fimm íslenskir leiklistarnemar á síðasta ári við leiklistardeild Listaháskól- ans koma við sögu í þeim tökum en Saga film þjónar tökuliðinu. - fgg Einstakt tækifæri Sigga Skúla Í HLUTVERKI PABBA FAUST Leikstjór- inn Aleksandr Sokurov heillaðist af frammistöðu Sigurðar Skúlasonar í áheyrnarprufum og fékk hann til að leika pabba Fausts í mynd sinni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.