Fálkinn - 05.01.1929, Blaðsíða 5
F A L K I N N
5
Sunnudagshugleiðing.
Menn minnast úr æsku frá-
sögninni um það, er tveir af
lærisveinum Jesú voru á leið til
Enunaus, daprir í huga yfir því
að hafa mist læriföður sinn. Þeir
höfðu fengið vitnisburð um, að
Kristur væri upprisinn: höfðu
verið spurðir hversvegna þeir
leituðu „hinna lifandi meðal
hinna dauðu“. En þeir átta sig
ekki ennþá á hinum mikla við-
hurði kristninnar, sem þeir þó
áttu að vita fyrir, — að Kristur
væri upprisinn.
Og Jesús slæst í för með þeim
á veginum. En „augu þeirra
voru haldin, svo að þeir þektu
hann ekki“. — — —
Kristnir menn á vorúin dög-
um vita allir um upprisu Krists
cg trúa á hann krossfestan og
upprisinn. En samt er eins og
þeir sjeu sömu lögum háðir og
lærsveinarnir, sein guðspjallið
segir frá. Þeir eru daprir í huga,
þeim finst Kristur horfinn úr
augsýn, finst hann ekki cins ná-
lægur og hann var þeim, þegar
þeir i bernsku lærðu biblíusög-
urnar sínar, finst svo margt,
sem við ber í lífi þeirra vera
þess eðlis, að guð sje þar ekki
alt í öllu.
„En augu þeirra voru haldin,
svo að þeir þektu hann ekki“,
stendur í guðspjallinu. Kristn-
Um mönnum á öllum öldum hef-
ir verið eins farið og sagt er frá
um lærisveinana tvo og eigi á
þessa sist við á vorum dögum.
Augu vor eru haldin, svo vð vjer
þekkjum hann ekki.
— Alstaðar er Jesús nálægur,
í öllum störfum vorum, alt sjer
hann sem fyrir oss her. Kær-
leiksverki hans var ekki lokið
með dauða hans á krossinum,
heldur hefir hann ávalt siðan
verið ár-naðarmaður vor hjá
Guði. Hann er alstaðar nálægur,
hvort heldur það er í velgengn-
inni, þegar lífið leikur við oss
eða í mótlætinu, þegar oss finst
alt svo erfitt og mótdrægt, og
])egar oss finst eins og almætti
Guðs hal'i gleymt okkur og vjer
af veikleika förum að efast um,
að Guðs verndarhönd sje yfir
oss.
Alt þetta kemur af því, að
augu vor eru haldin, svo að vjer
þekkjum hann ekki. Við þekkj-
um hann ekki í mótlætinu, en
gleymum honum í meðlætinu.
Hann, sem er með oss að eilifu.
Við rennum augunum yfir lið-
ið ár og horfum fram á ]iað
næsta — frain í komna tímann
og óvissuna. Við gerum upp
það sem liðið er og leggjum
áætlanir fyrir hið ókpmna, hvað
við æthim að gera og hvernig
það eigi að vera. En er það ekki
oft svo, að þetta sje gert án þess,
að hafa þann með i ráðum, sem
öllu ræður, hann sein cr með oss
bæði í vöku og svefni, hann sem
gleðst yfir hverri göfugri hug-
sjón, sem við ásetjum okkur að
framkvæma, en grætur yfir því,
sem vansæmir hvern þann, sem
heita vill Guðs barn.
Við reynum við áramótin, að
gera oss grein fyrir því, sem
varðar jarðneska lífið. En er
okkur jafn umhugað um, að
gera oss grein fyrir því, hvort
við á liðna árinu höfum þokast
nær því marki, að komast í tölu
þeirra, sem Guðs riki erfa?
Ef augu vor væri ekki svo
haldin, að vjer þektum Krist, er
hann slæst í för mcð oss,
mundum vjer fyrst og fremst
hugsa um það eina nauðsynlega,
er vjer gerðum upp reikningana
við sjálfa oss og legðum fram-
tíðaráætlanirnar. Þá mundum
vjer fyrst og fremst leita Guðs
ríkis og hans rjettlætis og trúa
fyrirheitinu um, að þá mundi alt
annað veitast oss.
Bækur.
KAFBÁ TAHERNAÐ URINN
heitir hók, sem kom út sköminu fyrir
jólin. Er ]>að fyrsta frumsamda hókin
á íslensku um eitt hið ægilegasta vopn
ófriðarins mikla. Liggja ]>au drög til
útkomu liennar, að þýskur maður,
Árni Óla.
Julius Schopka, Scm tók jiátt í ófriðn-
um sem skipverji á kafbátnum „U.
52“ ilentist hjer eftir ófriðinn o}; er
nú verslunarstjóri í Hcykjavik. Hafði
liann haldið all nákvæma dagbók um
J>að sem á dagana dreif allan Jiann
tíma, sem liann var á kafbátnum.
Voru pessir viðhurðir nægt efni i góða
bók og fróðlega, ])ví „U. 52“ varð einn
JUI.IUS SCHOPKA.
af afrekadrýgstu kafbátum Þjóðverja
i ófriðnum og háði marga hildi. Hafð-
ist hann einkum við í Norðursjó og
kringum Hjaltland og Orkneyjar, fór
einnig i herferð suður í Miðjarðarliaf
og suður með Afríkuströndum og sökti
fjölda skipa. Meðal heirra var norska
ísiandsfarið Flora. Seinasti stórvið-
burðurinn er á daga kafbátsins dreif
var sá, að liann sökk á liöfninni í
Kiel með nokltrum hluta áhafnarinn-
ar, þar á meðal Juliusi Schopka.
Arni Óla blaðamaður hefir fært sögu
kafbátsins .i letur og stuðst við dag-
bækur og frásögn Scliopka. Er frá-
sögnin ijós og skipuleg og rás viðburð-
anna fylgt í rjettri timaröð, svo að
lesandinn fær ]>arna samanhangandi
sögu af einni grein ófriðarins. Er ]>að
á l)orð við hestu skáldsögu að iesa
sum atriðin úr hernaðarsögu kafháts-
ins. Frásögnin er injög látlaus og
hvergi verður maður ]>ess var, að
reynt sje að gera viðburðina ægilegri
en þeir voru i raun og veru, en hitt
er og vist, að margt af því hefir verið
ægilegt, sem bar fyrir skipverjana.
Einmitt vegna þess, að frásögnin öll
her merki þess, að hvergi sje hallað
rjettu máli, er vcrulegur fengur að
bók þessari, svo og vegna ])ess, að les-
andinn fær þarna lýsingu, sem er ljós
og skiljanleg vegna þess að öðrum
efnum er þar livergi blandað inn i.
Sem lýsing á þvi hvað kafbátahernað-
urinn i raun og veru var, tekur hók-
in fram mörgu af ])ví, sem ritað hefir
verið um það efni á eriendum mál-
um. Og hafa höfundarnir báðir lieið-
ur af bókinni.
JUST BING:
VÉRDENS LITTERATURHISTORIE.
Norski bókmentafræðingurinn Just
Bing hefir skrifað sögu heimsbókment-
anna og er 1. bindi ritsins komið ut
og hefst með Homer en lýkur með
enskum bókmentum um 1600. Bók-
mentasaga ]>essi er einkar skipulega
rituð og aðgengileg. Er þar i liverjum
kafla gefið yfirlit yfir hvert tímabil
og lýsing á einkeunum þess og síðan
iýst helstu skáldum. Fyrstu sex kafl-
arnir segja frá bókmentum Grikkja,
er sá fyrsti um Homer, annar um
sorgarleikina grisku, þriðji um leiklist
Grikkja, fjórði um gamanleiki Grikkja,
fimti um griskar bókmentir í óbundnu
máli og sjötti um bókmentir Hellcna.
Þá koma tveir langir kaflar um upp-
haf latneskra bókmenta og blómgun
þeirra, en næst segir frá bókmentum
Gyðinga og bibiiuritunum, bókment-
um frumkristninnar, Austgota, ridd-
arakvæðum o. fl. Höfundur lýsir
greinilega miðaldabókmentunum og
segir frá bókmentum Evrópulandanna
fram á aldamótin 1600. En eigi minn-
ist hann einu orði á norrænar bók-
mentir, og er það einkennilegt, úr því
að ritið er alraenn bókmentasaga.
Bókin er skemtilega og alþýðlega
rituð, svo að telja má víst, að marg-
ir þeir, sein annars ekki hafa gaman
af bókmentafræðslu, muni lesa hana
sjer tii Ánægju. — H. Ascliehoug
& Co. liefir gefið bóltina lit og
er útgáfan liin vandaðasta, á ágætum
pappír og prýdd fjölda góðra mynda.
O. E. RÖLVAAG:
PETER SEIER.
Höfundur bókár þessar er norskur
mentamaður i Ameríku og liefir iiann
áður skrifað nokkrar bætur, er lýsa
lifi norskrá landnema vestra. Hciti
bókar þessarar segir til um, að sögu-
iietjan heiti Peter Seier. Þegar mað-
nr iýkur lestri hókarinnar finst manni
þó, að hann iiafi eiginlega ekki komið
frekar við söguna en ýmsar aukaper-
sónurnar, cn liinsvegar verður móðir
iians sú persónan, sem minnistæðust
er. Er mætavel lýst baráttu hennar
fyrir lífinu á præriunum vcstra, með
barnahópinn sinn, eftir að liún hefir
mist manninn sinn, sem hefir orðið
úti i byl. En jafnframt berst liún fyr-
ir þvi, að börn hennar gleymi ekki
ættjörð sinni, tungu og siðum. Sú
barátta verður til lítils og hún sjer
afkomendur sina verða að Ameriku-
mönnum og gleyma þjóðerni og tungu
er þau vaxa. Höf. lýsir einnig itarlega
trúmálasundrungunni og ofstækinu hjá
landnemum vestra.
GrýD
U M V I Ð A
VERÖLD.
RETLARARMR í TOIÍIO
fylgjast vel með kröfum tímans.
Þeir liafa öflugan fjelagsskap og hef-
ir fjelagið nú fyrirsltipað, að vinnu-
tími þeirra skuli ekki vera nema þrjár
stundir á dag. Viðurkenna þeir þó, að
]>essi ráðstöfun sje ckki sprottin af
ieti heldur sje liún gerð vegna þcss,
að „vinnuframboðið" i þessari grein
sje svo mikið. Borginni er skift í sex
hverfi og starfa ákveðnar betlara-
sveitir í liverju hverfi — þrjá tima i
einu. Undir cins og þeir eru liðnir
verða „vaktaskifti“ og næsti betlara-
flokkur tekur við.
ÍÞRÓTTIR FYRIR ÞRJÚ ÞÚS. ÁRUM.
í eyðimörkinni miili Kartagó og
Utica hafa menn fundið rústir af 3000
ára gömlum leikvangi. Þar hafa kpm-
ist fyrir 300.000 áhorfendur, svo að
þetta iiefir ekki verið neitt smásmíði.
Við leikvanginn hefir fundist* minnis-
merki yfir frægan linefleikamann, sem
verið hefir eftiriætisgoð manna á þeim
timum. Stendur á minnismerkinu, að
þessi hnefaleikamaður hafi fengið
hærra kaup fyrir einn bardaga, cn
embættismenn fengu i árslaun. Svo
heimurinn hefir ekki verið svo ólikur
sjálfum sjer fyrir 3000 árum.
cflffiöst yéar yeía
aufiisí um 23°\o.
Enskir læknar
sem sjerstaklega hafa rannsakað
þreyfu, hafa orðið þess vísari að
við notkun Sanatogen aukast af-
köst mannsins um 23°/o.
Danskir Iæknar
hafa í sjerstökum yfirlýsingum stað-
fest, að notkun Sanatogen slyrki
bæði líkama og sál.
Læknar um víða veröld
hafa í yfir 24.000 yfirlýsingum
kveðið upp hagstæða dóma yfir
Mmimíaákn
Þjer ættuð sjálfur að notfæra yður
þessa staðreynd og bæta yður upp
eydda orku og taugastyrk með því
að nota Sanatogen. Þjer áorkið meiru
og færið sál yðar nýjan styrk!
I pökkum frá kr. 1,85 í öllum iyfjabúðum.
Veröiö hefir veriö lækkað aö mun.
Ef þjer óskið frekari upplýsinga þá
fyllið út miðan hjer fyrir neðan og
sendið hann til
A/S Sanatogen Co, Köbenhavn V.
________Sct. Jörgensallé 7.____
öendið m|er ókeypis og burðargjaldsfrítt:
Sanatogen-sýnishorn og bækling.
Nafn: ........................
Staða: ........................
Heimili: ......«