Fálkinn - 01.02.1930, Page 6
6
F A L K I N N
JEG ER ALVEG
HISSA
Ilvergi í heiminum er jafn mikið
af læknum að tiltölu við fólksfjölda
og í Bandaríkjunum. Þar eru 149.521
lögskráðir læknar, auk fjölda af aiis-
konar skottulæknum. Á hverja
100.000 íbúa koma þar 127 læknar,
í Ungverjalandi 73, í Ítalíu 71, í Dan-
mörku 70, í Þýskalandi 64, í Tjekko-
slovakíu 58, í Noregi 57, í Svíþjóð
35, í Finnlandi 25 og í Mexico 24.
-----------------x----
Nýjasta bók Kristmanns Guð-
mundssonar, „Livets Morgen“ hefir
fengið sjerlega góðar viðtökur í
Noregi. Að því er bóksalarnir segja,
selst hún svo vel, að aðeins tvær
skáldsögur sem út komu í haust á
norsku hafa seist betur. Eru það
bækur þeirra Johan Bojers og Peter
Egge. Má Kristmann vel við una, að
skipa þriðja sætið, þegar jafn þjóð-
kunnir menn og þessir tveir sitja i
tveimur þeim- efstu.
----x----
George Kojac, sem liefir heims-
met í baksundi hefir nýlega sett
nýtt met. Hann synti 220 yards á 2
min. 36,2 sekúndum. W. Laufer lieit-
ir sá, sem hefir heimsmetið á 200
metrum: 2 mín. 38,6 sek.
----x----
John Gilhert, hinn frægi kvik-
myndaleikari og kvennagull og Ina
Claire eru skilin. Það eru ekki nema
sex mánuðir síðan þau giftust og
voru sammála um, að ekkert i ver-
öldinni skyldi skiija þau að. Aðalá-
stæðan er talin sú, að frúin var
altaf að láta flytja til húsgögnin í
stofUnum,
Ýmsir heldri menn i London hafa
gengist fyrir samskotum til þess að
reisa Foch aðmírál minnisvarða. Á
það að vera afsteypa af minnisvarða
þeim, sem nýlega var afhjúpaður í
Cassel, eftir myndhöggvarann Georg-
es Malissard og er það riddaralík-
neski. Hertoginn af Westminister,
sem er stærsti lóðaeigandi í London,
hefir gefið lóð undir líkneskið í Gros-
venor Gardens.
K. Wilson heitiú kona ein í Kirks-
ville í Missouri. Rjeðist þorpari á
liana nýlega og skaut hana með
skammbyssu í hjartastað, eða rjett-
ara sagt þar sem hjartað er vant að
vera í fólki. En í stað þess að deyja
samstundis, komst konan undan og
undir læknishendi. Voru þá teknar
Röntgenmyndir af sárinu og kom þá
í ljós, að hjartað í konunni var liægra
megin, og það hafði orðið henni til
lífs. Það einkennilegasta var, að
konan hafði ekki hugmynd um þetta
áður. Hún hefir ekki verið kvalin af
hjarslætti um • æfina.
----x----
Norska skipið „Stavangerfjord“
hafði 600 farþega moðferðis á síð-
ustu ferðinni heim frá Ameríku fyr-
ir jólin, en skipshöfnin er 280manns.
A leiðinni að vestan gengu upp
10.000 flöskur af öli, 9000 kg. af
kartöflum, 18.000 egg, 2000 litrar af
mjólk, 400 lítrar af rjóma, 10000 kg.
af osti, 8000 kg. af kjöti, 2500 kg. af
grænmeti og 2000 flöskur af soda-
vatni.
----x----
Glæpamennirnir í Ameríku kosta
þjóðina 13.000 miljón dollara á ári
Hvergi er eins mikið af bifreiðunum og i Bandaríkjum. Jafnvel Indíána-
höfðingjar hafa keypt sjer bifreiðar.
Þó hausinn á svertingjunum í Afríku sje sterkur, stenst hann varla sem-
kepnina við bifreiðarnar til lengdar.
þurfa að fara á milli húsa, held-
ur setjast þeir upp í „ricksliaw“,
ljettan tvíhjólaöan vagn, og láta
innfædda menn „kulía“ svo-
kallaða draga sig. I heimskauta-
löndunum beita menn liundum
fyrir sleða sína og sumstaðar
hreindýrum. Og meðal frum-
þjóðanna í Afríku liafa menn
ekki einú sfnni kómist upp á að
Uxavagn í Colombo á Ceylon.
Á Ceylon hinni frjósömu hita-
beltiseyju nota menn ennþá ak-
neyti til að draga vagna sina.
í Kina nota hefðarfrúrnar enn-
þá burðarstól, og sjeu frúrnar
tignar þá duga ekki minna en
átta menn til að bera stólinn. I
borgum austurlanda leigja
menn sjaldnast bifreið er þeir
láta dýrin hjálpa sjer. Mennirn-
ir fara alt gangandi og eru sjálf-
ir burðardýr. Og þeir bera ekki
byrðar sínar í bak og fyrir lield-
ur á liöfðinu. Hafa þeir náð ó-
trúlegri leikni í þessu og geta
borið þungar byrðar frá morgni
til kvölds. Hafa Evrópumenn,
sem farið hafa í leiðangra um
Afríku dáðst að þoli þessara
innfæddu burðarmanna.
Eins og sjá má af þessum
dæmum, hefir bifreiðin ekki
lagt undir sig héiminn ennþá.
Fin varla þarf að efa, að henni
lakist það. Nema því aðeins að
einliver samgöngunýjung komi
fram ennþá hagkvæmari.
aS þvi er Enright fyrverandi lög-
reglustjóri í New York segir. Telur
hann glæpi vera „stærsta atvinnu-
veg“ þjóðarinnar, en bifreiðasmiðar,
sem eru stærsti löghelgaði atvinnu-
vegurinn, gefur af sjer 5.000 miljónir
árlega. Morð er framið að meðaltali
45. hverja mínútu og 12.000 manns
eru myrtir árlega og er það fimm
sinnúm fleira, en Bandaríkjamenn
mistu i stríðinu við Spánverja og
fjórði hluti þess, sem rikin mistu af
mönnum í heimsófriðnum. Af glæpa-
mönnum sitja um 400.000 í fangeisi,
en um miljón leikur lausum hala.
Glæpaöldin er lang alvarlegasta við-
fangsefni Bandaríkjanna, segir lög-
reglustjórinn.
----x—-—
Hvergi eru jafn margir Gyðingar
saman komnir í nokkurri borg í
heimi eins og New York. Þar voru
samkvæmt síðasta manntali 1.850.000
Gyðingar, þar af í Brooklyn 916.000,
í Bronx tæp 500.000 og í Manhattan
tæp 400.000.
----x----
Dr. Horace Calvin Day, prófessor
í líffræði við Howardskólann í Birm-
ingham i Alabama, liefir að undan-
gengnum rjettarúrskurði neyðst til
að segja af sjer embætti af þeim á-
stæðum, sem nú skal greina: í fyrir-
lestrum sínum í háskólanum hafði
prófessorinn dregið mjög í efa, að
sagan um örkina hans Nóa væri sönn
og eins taldi hann mjög hæpið, að
Jónas spámaður hefði verið þrjá
daga í hvalnum. Ákærandi prófes-
sorsins hjelt því fram, að prófessor-
inn væri ófær um að gegna embætti
úr því að hann tryði ekki orðum
hihlíunnar og dómarinn var á sama
máli.
----x----
Þriðji sttærsti demanturinn í
heiminum er um þessar mundir til
sölu í Berlín. Vegur hann 183 karöt
og heitir „La Lune“ (tunglið). Lúð-
vik fjórtándi har þennan demant er
hann var krýndur til konungs og
gaf hann síðan þáverandi soldáni í
Márokko og hefir hann gengið i erfð-
ii þar síðan. Sjerfræðinga'r virða
steininn á 750.000 krónur og er þá
ekkert tillit tekið tii söguhefðar
hans.
----x——
í Englandi hafa þrettán þjóðkunn-
ir menn stofnað fjelag til þess að
berjast gegn hjátrú. Þeir hafa skuld-
hundið sig lil að sitja ávalt 13 yfir
horðum, að mölva spegla þegar tæki-
færi gefst, að herja eklci neðan í
horðið þegar þeir hafa gumað af
heilsu sinni, að vella saltkerum, að
drekka kaffi með skeiðina i hollan-
um, að kveikja þrír á sömu eldspít-
unni og því um líkt.
•—■—x----
Kennari einn við háskólann i
Pittsburg hefir komist að þeirri nið-
urslöðu, að gáfaðir menn skrifi yf-
irleilt illa. Gefur hann þá skýringu
á þessu, að penninn þurfi að flýta
sjer svo mikið til þess að liafa við
hugsuninni. Þó tekur hann fram,
að ljót rithönd þúrfi ekki að vera
sönnun fyrir því, að maðurinn sje
gáfaður.
----x----
Heinrich Westphai heitir hann,
maðurinn sem fann upp fjaðrama-
tressuna. Varð hann nýlega áttræð-
ur. Hann er eignaiaus maður og
hefst við á elliheimili i Berlin. Hug-
myndina til matressunnar fjekk
hann er hann dvaldi í frönskum
fangaherbúðum eftir stríðið 1870.
Tók hann einkaleyfi á uppgölvun-
inni og græddi talsvert fje, en misti
það alt við verðhrun marksins.
Gamli maðurinn er ekki af baki dott-
inn enn og er nú að vinna að nýrri
uppgötvun, sem á að gera rúmin
þægilegri.
>
s