Fálkinn - 15.03.1930, Side 2
2
F Á L K I N N
------ GAMLA B í 0 ---------
Fyrsti kossinn.
Paramount sjónleikur i 6 þáttum,
eftir skáldsögu
Tristrams Tuppers.
Aðalhlutverkin leika:
GARY COOPER og
FAY WRAY.
Gullfalleg mynd og vel leikin.
Sýnd bráðlega.
PILSNER
Best. ódýrast.
INNLENT. \
ÖLGERÐIN
EGTLTi SKALLÁGRÍMSSON.
PROTOS BONVJELAR
Ljettið yður hrein-
gerningar til muna,
með þvi að nota
PROTOS.
Sýnd og reynd heima
hjá þeim er þess óska.
Fœst hjá
raftækja-
sölum.
30S
305
ALLIR KARLMENN,
sem vilja ganga vel klæddir til fótanna,
ganga eingöngu á skóm og stigvjelum
með þcssu merki. Við liöfum nú ný-
fengið nýjar tcgundir af þcssum al-
þekta skófatnaði, i viðbót við gömlu
tegundirnar, þar á meðal lakkskó,
mjög fallega og sterka.
MMuu-makkc
Lárus G. Lúðvígsson, Skóverslun.
Æ
------ NÝJA BÍO -------------
Himininn logar.
(Hetjan frá Klondyke).
Stórfenglegur sjónleikur í 7 þátt-
um eftir hinni heimsfrægu sögu
Jack London.
Aðalhlutverk:
Milton Sills og
Doris Kenyon.
Oviðjafnanleg mynd.
Sýnd í kvöld í Nýja Bíó.
!
Hin dásamlega
TATOL-handsápa
mýkir og hreinsar hörundið og
gefur fallegan ogbjartanlitarhátt.
Einkasalar
L Brpjélfsson & Rvaran
Kvikmyndir.
FYRSTI KOSSINN.
Kvikmynd með
þessu nafni verður
sýnd bráðlega í
Gamla Bíó með
tveimur ágætis leik-
urum, Gary Cooper
og Fay Wray i aðal-
hlutverkunum. Segir
myndin frá ungum
manni. Mulligan Tal-
bot (Gary Coopcr),
sem lieidur lifinu í
gömlum föður sin-
urn, sem hefir sól-
undað öllum eigum
sínum í svalli, og
þremur bræðrum
sínum, sem aldrei
vinna ærlegt hand-
tak. En fyrrum hafði
Talbot-ættin verið
með ríkustu ættum í
landinu.
Mulligan reynir á-
rangurslaust að koma
föður sínum á betri
leið. Skömmu síðar
deyr gamli maður-
inn og er jarðaður
i kirkjugarðshorni
fátæklinganna. Við þetta ris ættar-
metnaðurinn svo í brjósti MulliganS
að hann strengir þess heit, að hann
skuli koma bræðrum sínum til manns.
Og hann fær þá til að lofa sjer, að
lesa til embættisprófs, einn á að
verða læknir, annar Iögfræðingur og
þriðji prestur.^— Mulligan segist skuli
útvega þeim fje til námsins. Hann fer
á fund afa síns, i öðru riki, sem fyrir
longu hafði afneitað þeim feðgunum
og slitið sambandi við þá. Þegar þang-
að kom,er afinn dáinn. Þá tekur
Mulligan það örþrifaráð að ráðast inn
í banka og ná þar í fje. Og seinna
lieldur hann áfram að afla sjer náms-
kostnaðar handa bræðrunum með
ránum.
Mulligan hefir um það leyti sem
faðir hans dó kynst ungri stúlku,
Önnu Marshall (Fay Wray) dóttur
ríkasta mannsins i grendinni. Og þau
unnast. Faðir hennar gerir alt scm
hann getur til að stíja þeim i sundur
og fer með stúlkuna til Evrópu til sex
ára dvalar. En hún gleymir ekki
Mulligan og um það leyti sem hún
kemur aftur deyr faðir hennar, svo
nú er 'hann ekki framar til fyrir-
stöðu. En annað hefir komið fvrir.
Mulligan hefir selt skip sem hann áttj
til þess að endurgreiða hverjum og
einum það, sem hann hafði rænt frá
þeim. Þá fyrst komast ránin upp og
Mulligan er kallaður fyrir rjett og
eru allar horfur á, að hann verði sak
feldur. En stúlkap lýsir fyrir <jöm-
inúln hvötum þeiin, sem hann háfði
haft: að koma bræðrum sinum til
manns og reisa við álit ættarinnar.
Og þegar bræður hans þrír, sem nú
eru orðnir mikilsmetnir menn bera
fram sama vitnisburð, er Mulligan
sýknaður og þau Anna ná saman.
Myndin er prýðilega vel tekin og
efnið hugnæmt og sþennandi. Leik-
stjórnina hefir Howland Lee annast.
HIMININN LOGAR,-
hin stórfenglega mynd frá Klondyke,
gerð eftir sögu Jack Londons með
Milton Sills í aðalhlutverkinu, verð-
ur sýnd núna um helgina í Nýja Bíó.
STÓRKOST- Norðmenn nokkrir
LEGUR ORKU- eru um þessar
FLUTNINGUR. mundir i samning-
------------- um við Þjóðverja
um að leiða rafmagn frá þremur
norskum fossum alla leið til Þýska-
lands, til notkunar þar. Undirbún-
ingi þessa máls er ennþá skamt kom-
ið, en þó' er ráðgert að raforkan,
sem hjcr er um að ræða verði um
600.000 kiióvatt og verði hún leidd
suður eftir Sviþjóð til Trelleborg og
þaðan með sæsima til Sassnitz og
þaðan landleið til Lúbeck, en þar á
að dreifa kraftinum til notenda. Er
gert ráð fyrir að stofnkostnaður fyr-
irtækisins verði um 500 miljón krón-
ur eða rúmar 80 krónur fyrir kiló-
vattið og þykir jiað ótrúlega ódýrt
þegar á það er litið hve langar leiðsl-
urnar eru. En kraftur sá, sem þess-
um norska rafkrafti er ætlað að
keppa við í Þýskalandi kostar frá
120—200 krónur á kílóvattárið.
Arið 1022 var mikið um það rætt
að flytja raforku frá Noregi til
Danmerkur. En þá strandaði alt á
þvi, að raforkan varð of dýr, nfl.
180—-210 kr. fyrir kílóvattárið, en
það verð var ekki samkepnisfært við
raforku framleidda með kolum i Dan-
mörku: Verð það á raforkunni, sem
nefnt er í sambandi við hinar nýju
fyrirætlanir virðist ’þvi vera ótrú-
lega lágt, enda þótt krónugildið hafi
liækkað sfðan og umbætur hafi orðið
á raforkufiutningi, því leiðin til
Þýskalands er miklu lengri en til
Danmerkur.
----x-----
Heimsmel í bananaáti setti inaður
um daginn suður á Floridaskaga,
Hann át 168 banana á einni klukku-
stund. Hann segir sjálfur svo frá, að
hann hafi ekki tuggið ávextina, en
gleypt þá heilá.
----x----- . .
Kanada frainleiðir 9% af öllu
hveitl í h’eiminum, 10% af hafra-
framleiðslunni,. 10% af gull og silf-
urframleiðslunni, 15% af trjámauks-
framleiðslunni og 90% af nikkel-
framleiðslunni.
600,000 bifreiðum var stolið í
Bandaríkjunum árið 1929. En þar er
um 42. hver bifreið, sem i gangi er
þar í landi.