Fálkinn - 05.07.1930, Page 1
16 siðnr 40 anra
UR ÞORSMORK.
Þórsmörlc er einn af merkilegnstu stöðum landsins. Þó er hún frekar stórfengleg en beinlínis fögur. Alt er þar svo hrikalegt. Það
cr eins og hún sje full af tröllum, sem dagað hefir uppi í ýmsum stellingum. Nokkur húka hálfbogin og horfa fram yfir mörk-
ina, önnur bera hönd fyrir augu og horfa til sólar. Stóreflis klettur stendur þar á miðjum söndum. Það er Þórskirkjan. Tröll
eitt mikið stendur i hálfopnum dyrum og spyrnir við, það er að reyna að draga menska mey með sjer inn í klettinn. Fleira er
þar furðulegt. Sækir fjöldi fólks á sumri hverju inn á Mörkina þrátt fyrir alla vatnavexti og bestu málarar vorir þreytast
aldrei á að sækja pangað viðfangsefni sin.