Fálkinn - 05.07.1930, Page 4
4
FÁLKINN
Alþingishátíðin er sá viðburð-
ur, sem öll þjóðin hefir talað
um undanfarnar vikur. Þáttaka
í henni varð öllu meiri en nokk-
ur hafði gert sjer vonir um og
veðrið sæmilegt fyrsla daginn,
en fór batnandi síðari dagana.
Munu öllum sem sóttu hátíðina
ógleymanlegir dagarnir á Þing-
völlum. Fálkinti mun síðar
segja ítarlega frá hátíðinni en
i þetta sinn skutu nokkrar
mytidir af hátíðahöldunum
sýndar. í efstu röð sjest frá
vinstri: Guðsþjónustan í Al-
mannagjá; sjást fánar sýslufje-
laganna hjer og hvar í mann-
þyrpingunni, næst mannfjöld-
inn við Öxará, þá konungur og
krónprins Svía á kappreiðunum
í Bolabás. Miðröð frá v.: kon-
ungur setur Alþingi og næst
tvær myndir af sögulegu sýn-
'ngunni. Neðsta röð: Konungur
heilsar stúdentunum við tjöldin
í Hvannagjá, næst: Iionungur
heilsar alkunnum Reykvíkingi
og loks mynd af hestaatinu.
Staka myndin er af Svíakrón-
prins og Matthiasi Þórðarsyni
fornmenjaverði.
Ennýall.
Þessari bók dr. Helga Pjeturs,
sem í rauninni er framhald af
athugunum hans á alheimslíf-
fræði og lífmagnan, þeim sem
höfundurinn segir frá i „Nýal“,
Fimleikaflokkur Ármanns.
Hjer birtist mynd af fimleikaflokki
Ármanns, þeim, sem vann fimleika-
samkepnina um „Farandbikar Ósló
Turnforening“, 16. apríl s. 1. meS
506.29 stigum. Hinn flokkurinn, sem
kepti á móti og einnig var frá Ár-
mann fjekk 466.52 stig.
Nöfn þáttakenda eru þessi:
Bakröð: Sigurbjörn Björnsson,
Guðm. Kristjánsson, Helgi Kristjáns-
son, Gísli Sigurðsson, Karl Gíslason
og Jón Guðmann Jónsson. Sitjandi:
Ragnar Kristinnsson og Óskar Þórð-
arson, Jón Þorsteinsson í miðjunni.
hefir að svo stöddu ekki verið
sá gaumur gefinn sem vert er. En
þeim, sem lesið hafa „Nýal“ er
ómissandi að eignast framhald-
ið, því þar er gerð nánari grein
fyrir ýmsum atriðum hins
merlcilega fræðikerfis dr. Helga,
en gert var í fyrri bókinni.
„Ennnýall“ er ritaður á sama
gullfagra málinu og fyrri rit
höfundarins og bókin þrungin
af skarplegum athugunum, sem
menn hafa gott af að kynnast,
hvort sem þeir eru sammála
niðurstöðum höfundarins eða
ekki.