Fálkinn - 09.08.1930, Blaðsíða 8
8
F A L K T N N
Til minningar um breytingu brauðsins í líkama Krists í kvöldmáltíðinni er árlega haldinn hátíðisdagur í ýmsum kaþólskum
löndum; er dagur þessi einn u/ mestu hátíðisdögum rúmversk-kaþólsku kirkjunnar. Er þá gengið í skrúðgöngu um strætin með
vígð brauð í skríni í fylkingarbroddi. Myndin hjer að ofan er af slíkri skrúðgöngu í fíerlín. Sýnir myndin er prelátar kaþúlskra
koma að Hedvig-kirkjunni í fíerlín. í skrúðgöngu þessari tóku þátt ríkiskanslarinn þýski og margt annað stórmenni.
Engispretlur hafa slórlega spill uppskerunni i ýmsum löndum
Suður-Evrópu. í Rúmeníu hefir stjórnin boðið út herlið og sent
út flugvjelar lil þess að reyna að stöðva þessa plágu. Er reynt
að grafa skurði til þess að stöðva torfurnar og halda vörð við þá,
svo að engisprelturnar komist ekki lengra.
Myndin hjer að ofan er tekin í Kaupmannahöfn þegar kon-
ungshjónin voru að leggja upp í Islandsförina. Á efri myndinni
sjest konungsskipið „Niels Juel“, en á þeirri neðri sjesl konung-
urinn vera að kveðja ráðherra sína. Sjásl af þeim (frá vinstri).
Dalil kirkjumálaráðh. L. Rasmussen hermálaráðh., P. Munch
ulanríkisráðherra og Stauning forsætisráðherra.