Fálkinn - 30.08.1930, Blaðsíða 1
Þjóðernishreyfingin í Finnlandi.
Hin svonefnda Lappó-hreyfing í Finnlandi hefir alstaðar vakið feykimikla athygli. Hreyfing þessi er mynduð af þjóðernissinnuð-
um bændum og beinist einkum gegn kommúnistum og rússneskum undirróðri í Finnlandi. Er þessi þjóðernishreyfing svo öflug,
að Lappómenn ráða nú að heita má lögum og lofum l landinu. Myndin hjer að ofan er frá för finskra bænda til höfuðborgar-
innar. Efst á myndinni sjest fylking brenda, er hún kemur til borgarinnar og er þeir taka sjer handlaugar eftir ferðalagið, en
neðst á myndinni sitja þeir að snæðingi í höfuðstaðnum. Maðurinn í miðið er hinn mikli foringi Lappómanna, Vithori Kosola.
Er hann lalinn mikill stjórnmálamaður og þykir sumum hann svipa til Mussolinis hins ítalska um skörungsskap og forustuhæfileika.