Fálkinn - 11.10.1930, Síða 3
fAlkixn
3
Hjónin Þórunn og Davíð Sch. Thorsteinsson læknir áttu af
mæli á sunudaginn var. Varð frúin sjötug en læknirinn 75 ára.
VIKUBLAD MED MYNDUM
Itilsljóriir:
Vilh. Finscn og Skúli Skúlasnn.
1'rainkuu‘iiiilaHtj.: Svavar lljaltcsted
AAtihkrifslnfa:
llanknstra-li ’A. Itcykjnvik. Sími 2210
Dpin virkn iltiKti kl. 10—12 og 1—7
Skrifstufa i Oxlo:
Anton Sclijöthsgade 14.
Itliiftið kcmur t'it hvcrn lnngnrilng
Xskriflnrvcrð cr kr. 1.70 ú mntitiöi.
kr. 5.U0 á ársfjiSrðungi ng 2U kr. árg
Lrlcndis 24 kr.
Allar ðskriftir greiðist fyrirfram
Auglýsininwerð: 20 aiira millimeler
nerhcrtsprent. Hankastræti 3.
Skraddaraþankar.
íslendingar eru söngelskir menn.
Þeir halda enn upp á tvísönginn sinn,
þrátt fyrir það, að meiri hluti þjóð-
arinnar er farinn að dansa útlenda
tiskudansa og raula lögin eftir dans-
inn. Og Reykvikingarnir — tísku-
broddur þjóðarinnar — gera húsfyll-
ir þegar rimnakveðskapur er í boði.
Fyrir fimtíu árum rjeðist nýbakað-
ur guðfræðiskandídat i það að sigla,
út í veröld til þess að mentast i
músík. Hefði hann farið til alþingis,
sem þá var varla búið að fá fjár-
veitingavald, og beðið um styrk,
hefðu allir þingmenn hlegið að hon-
um. Hann átti því láni að fagna, að
foreldrar hans gátu styrkt il»ann til
utanfarar og því komst hann þá leið,
sem hann vildi. Ef hann hefði lot-
ið vilja fjárveitingavaldsins, hvort
heldur það hefði verið á íslandi eða
Danmörku, mundi hann hafa orðið
prestur í útkjálkahjeraði, og senni-
lega orðið poki, því að hugur hans
var annarsstaðar en i prestskapnum.
En hann fjekk það sem hann vildi.
Hann fjekk að læra þá list sem hug-
ur hans stefndi til, og hann varð
mikilmenni i list sinni. Ættjörð hans
var þess ekki um komin, að veita
honum þá aðbúð, sem henni bar,
og þvi ilengdist hann erlendis. Úr
útlegðinni kom frá honum lag, sem
allir Islendingar kunna. Það var
gjöf til fósturjarðarinnar. Hann hjelt
áfram að yrkja í tónum, og þeir tón-
ar gerðu mörg íslensk góðkvæði lang-
lifari cn ella mundi. En hann orkti
jafnframt við ensk kvæði, og þá
stundum ekki verri tónsmíðar en
við islensku ljóðin.
Svo kom hann heim á gamals aldri.
Honum var farinn að fúna fótur og
skapandi þróttur listamannsins var
farinn að dvína. Hann langaði til
að fara ekki aftur. Fjárveitingavaldið
veitti honum æfilöng heiðurslaun,
en hið íslenska ríki tónlistarinnar
gat ekki veitt honum þá aðbúð, sem
hann gasti unað við. í þeim heimi
var alt annað hvort of ungt eða of
gamalt. Hann fór aftur, vann til síð-
ustu stundar og hnje örendur við
hljóðfæri sitt — i framandi landi.
En hann hvarf i islenska mold, og
þar hvíla bein hans. Hefði hann
lifað þrjátíu árum áður, mundu þeir
sem lifa hann harma jafn sárt að
höfundur þjóðsöngs íslendinga væri
grafinn i útlendum reit, — og þeir
harma nú, að „listaskáldið góða“,
Jónas Hallgrímsson, er jarðaður í
gröf sem varla finst nema af kunn-
ugum, úti við Eyrarsund, á Assistent-
kirkjugarðinum í Kaupmannahöfn.
Árni Thorsteinson tónskáld
verður sextugur 15. októbcr.
Stærsta loftsMp heimsins ferst.
Aðfaranótt siðastliðins sunnudags
varð eitt af stærstu og hryllilegustu
flugslysum, sem sögur fara af. Enska
loftskipið R. 101, sem jafnframt var
nýjasta loftfar í heimi og hið stærsta,
hafði lagt upp i fyrstu ferð sína til
Indlands og átti að koma við aðeins
á einum stað á leiðinni, i Egypta-
landi. En þegar það var komið suður
undir París bilaði skipið, stakst á
endann niður á hæð eina og brann
til kaldra kola. Fórust þar 40 manns
á svipstundu, en 8 komust af, sumir
mjög skemdir, svo að þeim er ekki
hugað lif. Einn þessara átta var lát-
inn þegar síðast frjettist. Ellefu far-
þegar voru á skipinu, en hitt var
skipshöfnin. Meðal farþeganna voru
flugmálaráðherra Bretlands og for-
stjóri flugferðanna í Bretlandi og
fórust þeir báðir. Likin voru mörg
lítið brunnin og höfðu flestir af far-
þegunum auðsjáanlega dáið af köfnun.
Eklci ber mönnum fyllilega saman
um hvort sprengingin í skipinu hafi
orðið áður eða í sama bili og skipið
stakst til jarðar, en vitanlega á slys-
ið orsök sina i einhverri bilun á
skipinu sjálfu. Er þetta slys afar mik-
ill hnekkir loftskipasmíðum Breta og
verður sennilega til þess að þeir hætta
að smíða loftskip af þessari gerð.
Fyrir nokkrum árum mistu þeir skip
með mjög likum hætti; höfðu Ame-
ríkumenn keypt það og voru um-
boðsmenn kaupenda að fara reynslu-
för með því, er sprengingin varð i
skipinu og það steyptist niður i
Humberfljótið, rjett hjá Hull. Fór-
ust þar um 40 manns.
R. 100 og R. 101 voru nýjustu skip
Breta og var hið fyrnefnda ætlað
til áætlunarferða milli Englands og
Canada og hefir þegar farið hina
fyrstu ferð sina, en hið síðara átti að
verða i ferðum til Indlands. Tækist
þessar ferðir vel átti að byggja þrjú
skip til, fyrir hvora leiðina, ea nú
verður eflaust horfið frá þvi, cftir
þetta geigvænlega slys.
Skip þessi voru að stærð 185.000
rúmmetrar, en stærð loftskipa er
miðuð við rúmtak loftbelgsins. Var
rúmtak þessara skipa þannig 60.000
rúmmetrum meira en „Graf Zeppe-
lins“ sem er 125.000 rúmmetrar og
burðarmagnið að sama skapi meira.
Enda var ekki farið i launkofa með
það, að þessi skip ættu að sýna al-
heimi, að Bretar gæti smíðað loft-
skip ekki síður en Þjóðverjar. F.n
með þcssum atburði hafa Bretar beð-
ið stórkostlegan ósigur i samkeppn-
inni.
Líklegt er að sprengingin eigi rót
sína að rekja til hreyflanna. Þeir
voru af nýrri gerð og brendu hrá-
olíu en ekki bensíni, og átti þetta
að tryggja minni brunahættu og ó-
dýrari rekstur. Slysið mikla virðist
vera dauðadómur yfir þessari tegund
loftskipa.
Hjer birtist mynd af R. 101 og má
sjá, að lögunin er talsvert ólík og
„Zeppelin“. Ensku R-in eru tiltölu-
lega gildari, eins og venja er til um
loftskip af hinni svokölluðu „hálf-
stífu“ gerð. Zeppelinskipin eru al-
stíf, grind úr stáli og aluminium
hygð utan um loftbelgina. Á annari
inyndinn er sýndur þverskurður af
farþegarýminu, en að neðan matsalur-
ini,. Er þar frá öllu gengið eins og á
fullkomnustu skipum og ekkert til
þess sparað að gera þægindi sem mest.