Fálkinn - 11.10.1930, Blaðsíða 4
4
F A L K I N N
Hjer í blaðinu hafa áður verið birtar myndir af
veitinga- og samkvæmissölum gistihússins Borg, er
teknir voru til notkunar í vor. Hinsvegar hefir blað-
ið eigi birt áður myndir af þeim hluta gistihúss-
ins, sem færri þekkja en veitingasalina, nefnilega
af gistiherbergjunum. Veitingasalirnir og allur frá-
ga.ngur á þeim hefir verið rómað, en eigi er síður
ástæða til að dáðst að því, hve gistiherbergin eru
fullkomin og smekklega úr garði gerð og hve hús-
gögnin eru falleg og vönduð. Herbergin eru flest
fyrir einn eða tvo. Fylgja sjerstök baðherbergi
sumum þeirra, þannig að innangengt er úr gistiher-
berginu í baðklefann en aulc þess eru almenn bað-
herbergi á hverjum gangi í gistihúsinu, til afnota
handa þeim, sem eigi hafa sjerstakt baðherbergi.
Herbergin eru nokkuð mismunandi að stærð, eftir
því hvar þau eru í húsinu;eru herbergin frá götunni
yfirleitt minni svo og herbergin á efstu hæð húss-
ins, en fyrir framan þau eru svalir og af þeim
hið fegursta útsýni yfir bæinn. Hvergi er þó útsýni
jafn gott og af turnþakinu, enda er það í um 30
metra hæð yfir götu — Það mun mega fullyrða,
að enginn bær á stærð við Reykjavík eigi jafn full-
lcomið gisliliús og Hotel Borg er, nema ef til vill
baðstaðir úti í löndum, sem aðeins eru til vegna
ferðamanna og hafa allar sínar tekjur af þeim. En
ferðamanna og hafa allar sínar tekjur f þeim. En
þrátt fyrir þetta er verði á gistiherbergjum hótels-
ins svo í hóf stilt að það nemur í íslenskum krón-
um eigi meiru en verði á meðal gistihúsum norð-
urlanda í mynt þeirra landa, sem þó er um fimt-
ungi verðhærri. Heitt og kalt vatn er á hverju ein-
asta herbergi, Ijósmerki i stað hringinga, svo að
óþægindi eru engin af bjölluklið. Iiúsgögnin öll
úr vönduðum viði og bæði þægileg og smekkleg
og rúmfatnaður mjög vandaður. Tvöfaldar hurðir
eru á öllum herbergjum og klæðaskápar bygðir inn
i veggina, korkfóður allstaðar á veggjum, svo að
ekki verður vart við hljóð frá nábúunum eða utan
af göngunum. — Það var fyrsta verk gistihússins
að hýsa hina göfugu gesti er landið bauð heim á
Alþingishátíðina. Ljetu þeir í Ijós furðu sína á því,
að svo fullkomið gistihús skyldi vera til hjer á
landi og hafa ýmsir þeirra minst með þakklæti
á gistihúsið í skrifum sínum um ferðina, þ. á m.
enski fulltrúinn, þingmaðurinn R. J. Davies,
sem segir að Borg hafi veitt öll þau þægindi,
sem hægt sje að krefjast af gistihúsi og að fara
verði í mildu stærri bæi erlendis en Reykjavík
er, til þess að hafa þar upp á eins góðum gisti-
húsum. Furðar hann sig á áræði eigandans, að
þora að ráðast i að byggja eins stórt og full-
komið gistihús og hjer er um að ræða.
Á myndunum er hjer fylgja sjest efst mót-
tökusalur gesia, en þaðan ganga stigar og lyft-
ur upp á gangana til herbergjanna. Næst sjest
eins manns herbergi með baði og neðsta mynd-
in sýnir tveggja manna stofu.
Alls eru í gistihúsinu 16 eins manns herbergi
og 25 tveggja manna, svo að 66 gestir geta
verið þar samtímis án þess að þrengt sje að. 1
kjallara aðalhúsins er vistageymsla og m. a.
fullkomið íshús, miðstöð hússins og loftræst-
ingarumbúnaður en í bakhúsi þvottahús, eld-
hús og framreiðsluklefar, norðan við sam-
kvæmissalina. — Alls er starfsfólk gistihússins
og veilingasalanna 72, að meðtöldum hljóm-
leikurunum.