Fálkinn - 11.10.1930, Síða 8
8
FÁLKINN
Þrátt fyrir allar afvopnunarráðagerð-
ir og friðarfundi halda þjóðirnar
stærri sem smærri áfram að verja stór-
fje til hers og flola og hjá sumum
þeirra hefir aldrei verið varið meira
fje til hernaðarþarfa en einmitt nú.
Heræfingar eru haldnar á sjó og landi
og enginn skyldi halda, að stjórnendur
ríkjanna væri orðnir afhuga stríði,
þegar litið er á það, hve mikil alúð er
lögð við þær. Frakkar hafa að þessu
sinni látið aðal-heræfingar sínar fara
fram við landamæri Ítalíu og Þýska-
lands og hefir vakið nokkurn kurr hjá
þessum þjóðum. Hjer á myndinni til
vinstri sjest herdeild Alpaliðs Fraklca
á göngu í smáibæ suður í Alpafjöllum.
Alpaliðssveitirnar eru eftirlætisgoð
þjóðanna, sem þær eiga, einkum
Frakka og Itala. Veljast þangað bestu
íþróttamennirnir, þvi að hvergi reynir
eins mikið á þol og hjá þeim, sem
þurfa að klifra í fjöllum. Þessir liðs-
menn þurfa einnig að kunna á skíðum.
árlega þing sitt í Moskva. Átti að
Bolsjevikar hafa í sumar haldið hið
á-rlega þing sitt í Moskva. Átti að
halda þing þetta í maímánuði en það
dróst af ýmsum ástæðum, m. a. af því,
að Stalin átti í vor í stímabraki við
ýmsa menn innan flokksins og vildi
útkljá deilumálin áður en þingið kæmi
saman. Hjer er að neðan mynd af ýms-
um aðalmönnum í þinginu. í miðju
sjest Stglin sjálfur, blíður og brosandi
og ánægður yfir úrslitum þingsins, en
til hægri handar honum Blucher, sem
nú er hermálaráðherra Rússa og Iiag-
anovits. Hefir ráðsþingið í Moskva al-
drei verið fjölmennara en í þetta sinn.