Fálkinn - 01.11.1930, Síða 8
X
P A L K I N N
1 hitunum í London í sumar
fanst stimu kvenfólkinu nóg um
að þurfa að ganga fullklæddar.
Ljetu iumar sjer nægja baðföt
en aðrar notuðu föt eins og sýnd
eru hjer á myndinni.
Hjer að ojan er mynd af þingsal alþjoðasambandsins, tekin dagmn efiir að þingið var sett
í haust. Var það að þessu sinni haldið i nýjum sal, sem er stórum rúmbetri en sá, sem not-
að hefir verið hingað til. Eru nú milli 50 og 60 þjóðir í bandalaginu og þó að ýmsir verði til
þess að kvarta undan aðgerðaleysi þess þá er það efalaust, að það hefir þegar komið mörgu
góðu til leiðar. Á þinginu var skift um þrjú sæli i ráðinu og fjekk Noregur eitt hinna lausu
sæta, i stað finska fulltrúans Procopé, sem gekk úr.
Eftir að þeir dr. Horn og fjelagar hans liöfðu fundið leifar
Andrées á Ilvítey gerði sænska stórblaðið Dagens Nyheter og
fleiri blöð út leiðangur á skipinu „Isbjörn“ norður til Ilvíteyj-
ar, undir forustu Knut Stubbendorffs blaðamanns. Fann hann
lík þriðja mannsins í Andréesförinni og auk þess höfuðskel
Andrées og fjöldann allan af munum, sem hinir höfðu ekki
fundið. Að Stubbendorff var heppnari og fann meira, stafaði af
því, að is hafði bráðnað mikið við kofa Andrées eftir að dr.
Horn fór þaðan. Var það heilt safn af munum, sem Stubben-
dorff hafði með sjer iil Noregs aftur, en þar afhenti hann það
Svium þeim, sem höfðu verið sendir til Tromsö til þess að taka
við því, sem dr. Ilorn og mennirnir á Bratvaag höfðu fundið.
Líkin eru nú komin lil Svíþjóðar. Myndin er af skipinu „lsbjorn".
Feneyjar eru annálaðar fyrir það, að skurðir ganga um borg-
ina þvera og endilanga, svo að víða verður að fara eftir skurð-
síkjunum i stað þess að fara stræti. Kemur þetta af því að borg-
in er bygð á fjölmörgum smáhólmum. Frægasta síkið er Canal
Grande; þar siglir fólk eða rær bátum sínum, „gondólunum".
Einu sinni á ári er þreyttur kappróður á gondólunum og sýnir
myndin þá athöfn.