Fálkinn - 01.11.1930, Blaðsíða 9
F A L K I N N
9
Óvenjulegt kapphlaup fór nýlega fram í Belgíu. Voru það hvorki
hlaupamenn, hestar nje bílar sem keptu heldur naut. Hjer sjest
einn þáttlakandinn, en skemtilegra hefði verið að hafa lifandi
mynd af honum á spretlinum.
1 kaþólskum löndum er það víða siður, að fólk safnast saman
á haustin að aflokinni uppskerunni til þess að þakka drottni sín-
um fyrir uppskeruna. Hefir hver sinn dýrling til árnaðar, þó
flestir hafi Maríu mey, og krjúpa fyrir altari hans i kirkju
sinni og bera fram þakkir sínar og bænir.
Ameríkanskir hugvitsménn hafa á síðustu árum hvað eftir ann-
að verið að koma fram með tillögur um að sprengja hafís með
sterku sprengiefni, til þess fyrst og fremst að varna honum að
komast niður á siglingaleiðina við New Foundland en þar að
auki telja þeir að hægt sje að bæta veðráttu á Labrador með
þessu. Hafa verið gerðar tilraunir í þessa átt og sýnir hvíta belt-
ið á myndinni ís, sem sundrað hefir verið með sprengiefni sem
heitir „termit“.
Nýlega auglýsti enskur leikhússtjóri eftir stúlkum í söngflokk
á leikhúsi sínu. Áttu þær að vera 70 þumlunga háar. Nægar
stúlkur fengust af þessari hæð, og á myndinni er verið að prófa
röddina í þeim.
Dýragarðurinn í Berlín hefir nýlega eignast grip, sem mörgum
þykir gaman að sjá. Er það sæfill svonefndur og er 2000 kíló
á þyngd. Veiddist lmnn suður i islmfi. Hjer sjest hann vera að
skríða ofan í laugina sína.