Fálkinn - 06.06.1931, Blaðsíða 4
4
F Á L K I N N
Mjólkurbúið á
Korpúlfsstöðum
Fyrir rúmu ári birti „Fálk-
inn“ nokkrar myndir af bygg-
ingunni miklu á Korpúlsstöðum,
sem þá var fullgerð. Var þar
sagt nokkuð frá stærsta býlinu,
sem risið hefir á íslandi fyr og
siðar, húsinu mikla, sem rúmar
undir sama þaki 160 kýr á bás-
um, haughús, nær 3000 rúm-
metra, heybirgðir nægar handa
öllum kúafjöldanum, ibúðir
handa mörgu fólki og loks eitt
enn, sem sjerstaklega verður
vikið að hjer.
Fyrir einu ári var verið að
byrja að koma fyrir vjelum og
áhöldum í mjólkurbúið á Korp-
úlfsstöðum. Þvi er fyrir löngu
Iokið, en í nærfelt fimm mán-
uði hefir Korpúlfstaðabóndinn
verið að gera tilraunir og afla
sjer reynslu um, hvað að gagni
megi koma við notkun þessara
vjela. Einhverjum mundi nú
hafa farið svo, að hann hefði
byrjað að láta búið starfa undir
eins og allar vjelar voru tilbún-
ar, en Thor Jensen er maður
sjervitur í orðsins bestu merk-
ingu og þessvegna vill hann
tryggja sjer vissuna um, að alt
verði þannig, að ekki sje hægt
að finna að því, eftir að byrjað
er. Nú fyrst er Korpúlfsstaða-
injólkin að koma á markaðinn
i flöskum, bæði gerilsneydd ný-
injólk og barnamjólk.
Það eru ekki nema stórbænd-
ur, sem geta sjeð sjer fært að
liafa mjólkurbú með fullkomn-
um áhöldum, aðeins fyrir sig.
En Korpúlfsstaðabúið er stórt
og i nágrenninu er annað bú
sama bóndans, á Lágafelli. Eins
og sakir standa vinnur mjólkur-
búið eingöngu fyrir þessi tvö bú,
en á þeim eru samtals um 250
kýr mjólkandi. Mjólkurbúið
liefir þó verið gert svo við vöxt,
að það mundi geta tekið við
mjólk úr helmingi fleiri kúm
eða meira.
Skal nú þessu mjólkurbúi lýst
nokkuð, með því að fullyrða má,
að langt líði þangað til nokkurt
mjólkurbú á landinu geti stað-
ið því jafnfætis, hvað snertir
vöruvöndun. Þvi að eigi aðeins
eru vjelar allar þær fullkomn-
ustu, sem völ er á í heiminum,
heldur kemur það líka til greina
að kýrnar, sem leggja til mjólk-
ina eru allar svo að segja á sama
bænum og undir eftirliti sama
húsbóndans. Korpúlfsstaðabúið
stendur að þessu leyti betur að
vigi, en þau mjólkurbú, sem fá
mjólk sína víðsvegar að, sína
löggina úr hverri áttinni.
Þegar komð er inn í mjólk-
urskálann blasa við ógrynnin
öll af allskonar vjelum, sem eng
inn grynnir i, nema hann sje
sjerfróður eða að einhver kunn-
ugur maður sje við hendina til
að skýra frá. Gefur myndin efst
á næstu síðu nokkra hugmynd
um þetta. Svo að byrjað sje til
liægri handar sjest fyrst mjólk-
urvogin, en að henni koma brús-
arnir beint úr fjósinu inn um
lílið op á veggnum. Er vogin
þannig, að liægt er að renna
mjólkinni úr henni i tvö mis-
munandi hólf, og er þarna á
voginn tekin sjer mjólkin, sem
seld er handa börnum og verð-
ur á flöskum, sem merktar eru
nafninu Barnamjólk i glerið
sjálft. Barnamjólkin er valin
með tilliti til kúnna, og aðeins
þær kýr, sem mjólkursælastar
eru og með fullnægandi filu-
magni, og jafnframt svo hraust-
ar, að við skoðun finnist engin
veila á þeim, koma til greina.
Eru kýr þessar undir stöðugu
eftirliti sjerfræðings. Og fitu-
magn barnamjólkurinnar verð-
ur aldrei minna en 3*4% eða
0.35% meira en lögskipað er um
nýmjólk.
Barnamjólkin er ekki eymd
eins og venjuleg gerilsneydd
mjólk heldur látin renna gegnum
hreinsisíjur, svo að öll óhreinindi
nemist burt. En annars er áhersla
lögð á, að aldrei komist óhrein-
indi í mjólkina. Eftir síjunina er
hún kæld niður í 3 stig. Hin
mjólkin rennur i velgjara (For-
varmer) og hitnar þar upp í
36 stig en þaðan rennur hún
í hreinsivinduna. Er það skil-
vinda, sem nota má eftir vild
til þess að hreinsa mjólkina eða
skilja hana, og getur hún hreins-
að eða skilið um 1000 lítra á
klukkustund. Þaðan fer svo
mjólkin um kæliáhald, sem er
að því leyti frábrugðið venjuleg-
um áhöldum þessarar tegundar,
að mjólkin er innilukt í því, og
er því fyrirbygt að mjólkin geti
tekið i sig ryk eða sóttkveikjur
úr loftinu. En annars er loftrás-
in í góðu lagi, því að sjerstök
snælda sjer fyrir því að gjör-
skifta um loft í skálanum á svip-
stundu, livenær sem þörf gerist.
Þegar mjólkin kemur úr kæl-
ingunni er hún sett i kældan
klefa og geymist þar þangað til
hvm er send á markaðinn. Sið-
asti áfangi mjólkurinnar er sá,
að henni er rent í flöskur með
sjerstakri vjel, sem er sjálfvirk
og býsna hraðvirk. Fer þetta
fram í sjerstökum klefa, töppun-
arhúsinu, þar sem bæði barna-
mjólk og gerilsneydd nýmjólk er
látin á flöskurnar og málmloki
smelt yfir. Hefir þessi útbúnaður
þann kost fram yfir pappalokin,
að stútröndin helst jafnan hrein
og getur þvi ekki komið til mála,
að óhreinindi komi að mjólkrjni
þegar helt er úr flöskunni.
Nú skal vikið aftur að upp-
hafinu, og horfið frá Barpa-
mjólkinni, sem hjer hefir verið
drepið nokkuð ítarlega á vegja
þess, að þessi framleiðsla er gl-
gjörlega ný hjer á landi. Er þá
næst að lýsa gerilsneyðingunni.
Frá voginni, sem áður var minst
á, er mjólk sú, sem gerilsneyða
skal látin renna gegnum ýms
hreinsunaráhöld og loks i eim-
kistuna, en lokið á henni sjest
t. v. á stærstu myndinni. Þar
hitnar mjólkin upp i 63 stig og
lekur hálftíma að gerilsneyða.
Kistunni er skift í fjóra liluta,
sem fyllast og tæmast sjálfkrafa
þannig að þegar gerilsneydd er
mjólkin i einu hólfinu þá tæm-
ist liún úr og ný kemur í stað-
inn. Með þessu áhaldi er hsegt
að gerilsneyða lOOOlítraafmjólk
á klukkustund. Þá tekur við
kælingin, í hinu lokaða kæliá-
lialdi, sem getið var um að fram-
an og siðan leggur þessi mjólk
leið sína í kæliklefann, eins og
barnamjólkin og þaðan í töpp-
unarskálann.
En eigi er þar með upptalið,
Þarna stendur t. d. inni lítil vjel
en furðuleg, sem hefir það hlut-
verk að sprengja fitukornin í
rjómanum. Rjómi, sem hefir
Úr þvottaskálanum. Skolunarvjelin (t. h.) og brúsaþvottavjelin á miöri myndinni.
Eimpotturinn, sem gertldrepni rjóminn er soöinn í. Fyrir framan dyrnar
á miöri myndinni sjest tappavjelin fyrir rjómaföskur, en til hægri hin sjálf-
virka mjólkurtöppunarvjel.