Fálkinn - 06.06.1931, Blaðsíða 5
F Á L K I N N
5
Úr mjólkurskálanum: Til vinstri sjást m. a. frystivjélarnar og lokaða kælivjelin en t. h. gerilnseyðingarvjelin og bak við hana hreinsivindan, opinn
kælir og hreinsivjelar, en vogin á upphœkkkuðum palli yst t. h.
fariö gegnum þessa vjel hefir
enga tilhneiging til þess að
senda það feitasta úr sjer upp
ó yfirborðið, lieldur er hann jafn-
þykkur efst og neðst í flöskunni.
Er þessi vjel notuð fyrir rjóma
þann, sem soðinn er á flöskur
og' seldur í verslanir sem kaffi-
rjómi og gerildrepinn (sterilis-
eraður). Rjóminn er látinn á
flöskurnar í töppunarskálanum
en síðan eru flöskurnar hitaðar
í eimkatli upp í 140 stig, svo að
enginn gerill kemst lífs af. Er
hægt að geyma rjóma þennan
von úr viti, marga mánuði eða
15 talsins og þurfa nákvæma
hirðingu, en við mjaltirnar sjálf
ar getur einn maður annað 4—5
vjelum. Við kýrnar sem barna-
mjólkin er tekin úr er þó notuð
gamla aðferðin, handmjólkun.
Til forstöðu mjólkurbúsins
hefir Thor Jensen ráðið útlend-
an mann, sem er kandidat í
mjólkurfræði, en til þeirrastarfa
verða menn fyrst að hafa
margra ára nám og starfsemi á
mjólkurbúi og síðan að nema
sjerstaklega gerlafræði og ann-
að, sem að fullkominni þekk-
ingu á mjólkurvinslu lýtur. Er
legum samlagsbúum eru að
jafnaði um fjórar miljónir.
Korpúlfsstaðabóndinn gerir sjer
far um, að rýra þennan ósýni-
lega her eftir föngum og hefir
von um, að takast megi að
lækka gerlafjöldann í mjólkinni
sinni um helming eða jafnvel
meira frá því sem gerist í venju-
legri fyrsta flokks nýmjólk.
Og þeir sem hafa sjeð mjólk-
urbúið á Korpúlfsstöðum efast
ekki um að honum takist það.
Þvi þarna hefir ekkert verið til
sparað, heldur er alt miðað við
að gera lilutina „fullkomnari en
Úr fjósinu á Korpólfsstöðum. Þarna sjást ekki flórlæri. Strokkurinn og skyrsíurnar í mjólkurskálanum.
jafnvel ár. Þá eru þarna strokk-
unaráhöld og skyrgerðar og tæki
til að gera með ísrjóma.
í sjerstökum klefa er útbún-
aður til þvotta á flöskum öllum
og brúsum, sjerstakur eimketill
til að taka á móti hrúsunum og
skila þeim aftur lausum við alla
gerla og þvottavjel og skolunar
fyrir flöskurnar. Eru vjelar þess
ar mikið til sjálfvirkar, svo að
sá eini maður sem starfar þarna
inni er jafnan margra manna
maki.
Þá er sjerstakur þvottaklefi
fyrir mjaltavjelarnar. Þær eru
þessi sjergrein svo til ný, í hinu
mikla fyrirmyndarlandi mjólk-
uriðnaðarins, Danmörku, og
hefir Orla Jensen prófessor þessa
sjerfræðikenslu á hendi. Mjólk-
urfræðingurinn hefir til umráða
sjerstaka rannsóknastofu, þar
sem hann rannsakar daglega alt
ástand mjólkurinnar og herjar
á sóttkveikjurnar. Og þar er alls
ekki við lítinn andstæðing að
eiga þvi að venjulega er um liálf
miljón af gerlum í hverjum ten-
ingssentrimetra af góðri fyrsta
flokks mjólk, en í mjólk sem
látin er i fjórða flokk á venju-
það fullkomnasta". Fyrirtæki
það, sem hjer er um að ræða
er svo merkilegt, að þegar aldir
líða munu menn áreiðanlega
minnast þessa þáttar í hinu
mikla og góða starfi mesta land-
námsmannsins á íslandi.
ÚRELT LÖG. ÞingmaSur einn í
------------- neðri málstofunni
ensku vakti nýlega athygli á því í
i ræðu, að lög um seiö og galdra,
sem sett voru á timum Jacobs fyrsta,
væri enn í gildi, og að samkvæmt
þessum lögum og öðrum líkum frá
dögum Georgs þriðja, mætti setja
menn i gapastokk fyrir t. d. aS hafa
afskifti af sálnarannsóknum.
Ljet þingmaSurinn þess getiS, aS
ýmsir spiritistar drægi sig í hlje af
ótta viS þessi lög. Þeir tækju aS vísu
þátt í miðilsfundum með fullum á-
huga, en hliðruSu sjer viS, að segja
opinberlega frá reynslu sinni, lag-
anna vegna. Þessvegna væri rjett að
nema þau úr gildi. Vel gæti það hugs-
ast, að þröngsýnir menn sem færu
með dómsvald, notuðu þessi úreltu
lög til þess að ná sjer niðri á mönn-
um, og á þann hátt gæti hneyksli orð-
ið að. Samkvæmt lögunum væri menn,
eins og t. d. Sir Arthur Conan Doyle
og vísindamaðurinn Sir Oliver Lodge
margsekir fyrir afskifti sín af sálar-
rannsóknum, og enginn gæti vitaö,
hvenær einhverjum dómaranum gæti
dottið í hug, að nota lagabókstafinn
Mjólkurfræðingurinn við starf á rannsóknarstofunni.
gegn frægum og viðurkendum vís-
indamönnum. Og ef farið væri að
beita lögunum, mundu margir enskir
þingmenn ekki sleppa við refsingu,
því að fjöldinn allur af þeim, mundi
oft hafa verið viðstaddir á miðils-
fundum.
Neðri málstofan ákvað í einu hljóði
að koma fram með frumvarp um af-
nám gömlu laganna.
ER FEGURÐIN Kvenlæknir í Paris
KVENLÆKNUM var á leið til sjúk-
MIKILS VIRÐI? lings í bifreið sinni
----------------og rakst á aðra bif-
reið og særðist mikið í andliti. Vá-
tryggingarfjelagið borgaði sjúkraliús-
reikninginn orðalaust, en þegar
kvenlæknirinn, sem var ung og fríð,
heimtaði 20.000 franka í bætur fyrir
lýti, sem hún hafði fengið á andlit-
ið, neitaði fjelagið og nú er hún kom-
in i mál við það.
Hún heldur því fram, að konu i
hennar stöðu sje fríðleikurinn ekki
síður ómissandi en leikkonu. Ljót
leikkona nær ekki valdi á fólkinu og
kvenlæknir, sem ekki er lagleg, fær
ekki sjúklinga. Fjelagið svarar því
til, að leikkonunni sje fegurðin nauð-
synleg, því aS sum hlutverk krefjisl
andlitsfegurðar, en læknirinn geti al-
veg eins vel rannsakað sjúkdóma og
gert læknisaðgerðir, þó hann sje ljót-
ur. — Dómurinn var ekki fallinn
þegar siðast frjettist, en Parísarbú-
ar eru vitanlega á konunnar bandi
og telja víst og sjálfsagt, að liún fái
þessa 20.000 franka fyrir örið, sem
hún fjekk á kinnina.
í Buffalo i Bandarikjunum varð
mikil snjókoma snemma í apríl og
notuðu börnin tækifærið til að fara
í snjókast. En kapp liljóp í báða flokk-
ana og fullorðna fólkið skarst í leik-
inn. En þvi nægðu ekki snjóboltar
heldur var nú gripið til hnifanna og
loks var farið að nota skammbyssur.
Orustulokin urðu þau, að einn full-
orðinn karlmaður úr hvorri fjöl-
skyldu, þeirra er við áttust, beið
bana, en þrent særðist hættulega.
----------------x---
ItlSS
Engin
ferðalög
án
K í K I S.
SkoðiÖ og kaupiS þá á
Laugaveg 2.
„TVÍBURA“-
ferðamannahnifar ó-
misandi. — Fást á
Laugaveg 2.
Munið ennfremur: Tjöld, útilegu-
áhöld, kompásar, skátavörur.
BRUUN, Laugaveg 2.