Fálkinn


Fálkinn - 06.06.1931, Síða 6

Fálkinn - 06.06.1931, Síða 6
o F Á L K I N N Snnnudasshugleiðlng. Sælir eru hjartahreinir, því þeir munu Guð sjá. (Matt. 5, 8). Þegar vjer virðum fyrir oss sæluboðanir fjallræðunnar sjá- um vjer að ekki ein einasta þeirra stefnir að jarðneskum gæðum, og má af þvi draga þá ályktun að Jesús Kristur hafi lit- ið svo á að mennirnir gætu verið sælir þó þeir færu á mis við þau gæði, er þeir samt sem áður gera sjer svo mikið far um að hreppa. — Það væri mikils vert fyrir æskumanninn, sem er að leggja út á áfanga starfsáranna, með fjöldann allan af áformum til nytsemdarverka, sjálfum sjer og öðrum til hagsmuna — það væri vert fyrir hann að liugsa eftir því, að svo gott sem þetta er, þá er það þó ekki eitt af því, sem Jesús telur liann sælan fyrir. Einkenni þeirrar sælu, sem Jesús hoðar er það að hún hefir gildi ekki einungis fyrir þetta líf, og ekki einungis fyrir annað líf, heldur alla vora æfi, bæði nú og síðar. Svo er þá lika um hið lireina hjarta, að það er liin dýr- mætasta eign, þvi þaðan á alt liferni vort með orðum og at- höfnum rót sína að rekja; því mættum vjer líka allir biðja með sálmaskáldi gamla testa- mentisins: „Skapa i mjer hreint lijarta, ó guð“. Það vantar nú ekki að vjer sjeum mintir á þörfina á þessari endursköpun hjartans, það vantar ekki að menn kvarti um ólireinlyndi og undirferli, það vantar heldur ekki að menn þykist sýna hrein- leik síns eigin hjarta með því að álasa öðrum fyrir yfirsjónir þeirra, en fyllast reiði ef þeim eru gerð sömu skil; það þykir hjer mörgum sælla að gefa en þiggja. Það er ekki nema gott að þú, kristinn maður, hver sem þú ert, viljir stuðla að því að lireinsa hjörtu annara, en þá skyldirðu fyrst hreinsa til í þinu eigin hjarta, annars geturðu naumast árætt að skifta þjer af öðrum og árangur þeirra af- skifta í mesta máta tvísýnn. — Fyrst er að þú megir finna sælu al' lireinleik þíns eigin lijarta og síðan að lijálpa öðrum til að öðlast þessa sælu. En í hverju er þá fólgin sæla hins hreina hjarta og livert er liámark henn- ar? Þeirri spurningu svarar Jes- ús er liann segir, að hjartahrein- ir muni guð sjá. Það má nú segja að vjer sjáum guð ef vjer með öllum innileik sem oss er gefinn hugsum um liann, elsk- um hann og treystum lionum og þessi sjón þarf ekki að bíða ei- lífðarinnar. En fullkomnun sinni mun þetta fyrirheit ná, þegar þangað er komið þar sem engin synd nje afleiðing syndar nær framar að gera oss dimt fyrir augum. Um víða veröld. .----X--- SKEMTILEGIIt Þessir tveir ljóns- LJÓNSUNGAR. ungar hafa verið ------------ sýndir á mörgum fjölleikahúsum í Englandi í vetur og vakið mikla athygli fyrir það, hve vel þeir eru vandir. Kunna þeir alls- konar listir, og eru mjög lagnir á að láta fólk hlægja að sjer. Giftnr án þess að vita nm það. Ungur maður nokkur af heldra fólki í Madrid fór ekki alls fyrir löngu til bæjarfógeta til þess að fá leyfisbrjef, svo að liann gæti gift sig. Fulltrúi sló upp i bókum sínum, leit á vottorð þau, sem hann var með, liorfði mjög alvarlega á hinn unga mann, hristi síðan höfuðið og sagði mjög stranglega: — Ungi maður, jeg geri ráð fyrir því að þjer vitið sjálfur að við getum ekki orðið við þeirri ósk yðar að láta yður hafa leyfisbrjef? — Því þá ekki? spurði ungi mað- urinn undrandi. — Af því að þjer eruð giftur. Hjerna sjáið þjer það svart á hvítu, þjer giftuð yður í fyrra um þelta leyti senoritu X. •— Ef þetta á að vera gaman, þá verð jeg að segja að mjer finst það nokkuð grátt, svaraði ungi maðurinn reiður. Jeg hjelt að hægt væri að fá mál sín útkljáð með alvöru og kur- teisi á opinberum skrifstofum. — Einmitt, svaraði, fulltrúinn. Eða eruð þjer að liugsa um að gera yð- ur sekan í tvíkvæni? Ef svo er, mun eg kæra yður strax. Og það gerði hann. Ungi maðurinn var kallaður fyrir rjettinn. Hann gat fært fullgild rök fyrir því að hann þekti ekki senoritu X, og að hann hefði aldrei gengið í löglegt hjóna- band hvorki með henni eða nokkurri annari konu. Vitni þau, sem leidd voru báru hið sama, og var hann sýknaður. En sögunni var ekki með öllu lokið. Tengdafaðir hans tilvonandi rjeði honum frá að koma í hús sitt framar. Hann væri skráður, sem giftur mað- ur af yfirvöldunum og það yrði ekki af því að hann fengi dóttur sína fyr en búið væri að rannsaka hvernig á þessu stæði. Ungi maðurinn sendi nú áskorun til „óþekts manns“ sem stolið hefði nafni hans. Og að nokkrum dögum liðnum fannst sökudólgurinn. Það var senor N., vinur unga mannsins. N. hafði verið giftur i mörg ár, en ekki tekið það neitt liátíðlega. Þvert á móti. Hann ljet aldrei neina unga slúlku vita að hann væri giftur. Fyr- ir eitthvað tveimur árum siðan hafði hann kynst senoritu X. Þau urðu mjög ástfangin hvort af öðru og sóru hvert öðru ævarandi trygðir og varð það ekki án nokkurra afleiðinga. Reyndi hann að draga brúðkaupið viku eftir viku, en þá tók faðir meyjarinnar til sinna ráða og hótaði honmn að kæra liann fyrir yfirvöldunumef hann ekki þegar i stað kvongaðist dóttur sinni. Senor N. reikaði í örvæntingu sinni fram og aftur um götur Mad- ridar án þess að vita sitt rjúkandi ráð. Loksins datt honum það snjall- ræði i hug að stela vottorðum vinar síns og nafni og gekk að þvi búnu að eiga senoritu X. N. liefir nú verið tekinn fastur en vinurinn, sem hann ljek svona grátt, hefir aftur fengið að koma til unn- ustu sinnar og búa þau sig nú sem óðast undir brúðkaupið. ÓHEILLARÍK í vetur bar það AFBRÝÐISSEMI. við í gistihúsi í ---------------- St. Moritz, að kunnur svissneskur rithöfundur, Kuno Hofer að nafni, fanst dauður í herbergi sinu og hafði verið skotið á hann fjórum skotum. Frú ein, sem Emmy Boulter heitir, sat yfir líkinu, með skotsár á hökunni. Var þegar farið með hana á sjúkrahús, en hún var svo örmagna, að ekki var hægt að yfirheyra hana. Frú Boulter er ekkja eftir Reginald Boulter, sem eitt sinn var forstjóri Savoy gistihússins fræga í London. Kom það upp úr kafinu, að hún liafði ung átt heima í París og komist þar í vinfengi við Hofer. En liann giftist seinna ungversku greifaynjunni Flora Dessewffy og lifðu þau mörg ár HERBEMTSPMENT BANKASTRÆTI 3 REYKJAVÍK SÍMI 635 PRENTSTOFA OG HEFTISTOFA HÖFUM ALLSKONAR SKRIF- PRENT- OO LÍM-PAPPÍR, KARTON, NAFN- SPJÖLD (HANDGERÐ OG VENJULEG) Í MISM. STÆRÐUM OG GERÐUM. í farsælu hjónabandi. Hofer og frú Boulter höfðu ekki sjest nje skrifast á síðan á æskuárunimi í París, þang- að til þau hittust af tilviljun i St. Moritz. Þangað kom hún árlega og sópaði mikið að lienni, því að hún er ung, rík og falleg. Hafði hún tekið þátt i öllum mannfagnaði þar og not- ið lífsins í ríkuin mæli, þangað tii hún hitti Hofer, sem kom þangað með konu sína og börn. Þegar frú Boulter jafnaði sig aftur var liún yfirheyrð og játaði þá, að hafa drepið Hofer, út af afbrýðis- semi. Hafði hún ætlað að stytta sjer aldur á eftir, en það mistókst. Nú bíður hún dóms fyrir afbrot sitt. Jack Diamond, sem oft er nefndur í sömu andránni sem glæpamannafor- inginn A1 Capone, var nýlega særður svo hættulega með byssuskotum, að honum er ekki hugað lif. Nokkrum vikum áður var hann kominn á fæt- ur eftir annað banatilræði. Hugðu menn að það væru bófar i andstæð- ingaflokki hans, sem valdir væri þessa, en nú er sagt, að tilræðið hafi verið framkvæmt af bændum, sem áttu heima í sveit sinni skamt frá New York, en þar í sömu sveit átti Diamond víggirtan bústað. Jafnan þegar Diamond dvaldi þarna varð svo róstusamt í nágrenninu, að bænd- ur óttuðust um.líf sitt. Og segir sagan, að þeir hafi framið tilræðið til þess að losna við hann úr bygðarlaginu. -----0—0--- Nýlega hefir rithöfundurinn John Knox gefið út bók, sem nú er aðal- umtalsefni Ameríkumanna og heitir „Misskilningurinn mikli“. Er hún um Hoover forseta og lýsir honum sem slyngum og 'ófyrirleitnum kaupsýslu- manni, sem stundum, einkum árin sem hann dvaldi í Kína, hafi gengið lengra en viðskiftalegt velsæmi leyfði, þó að liann liinsvegar liafi ekki orðið brotlegur við lög. Ennfremur segir höfundur frá málarekstri, sem Hoov- er átti i London 1905, og sem þykir miður fallegur frásagnar. Fullyrðir höfundur, að Bandaríkjamenn þekki ekki hinn rjetta Herbert Hoover og segir, að skrum og auglýsingar leigðra agenta hans hefðu ekki vilt þjóðinni sýn, mundi hann aldrei hafa verið kjörinn forseti Bandríkjanna. Blöðin geta flest ítarlega um bókina og sum þeirra taka í strenginn með höfundinum. ----x----- Þegnr kafbáturinn „Nautilus", sem á að fara með Wilkins undir norður- liafsísinn var í reynsluför á Hudsons- fljótinu fyrir nokkru, lá við að hon- um hlektist á. Báturinn var á tíu metra dýpi, er leki kom að honum um sjónpipuna og gat hann ekki lyft sjer. Kafbátsforinginn ljet þá kasta út allri auka-kjölfestunni, en það dugði ekki að heldur. Þegar loks tókst að lyfta bátnum stóð öll skipshöfnin í vatni upp í bringu í klefum sínum. Þetta atvik hefir orðið til þess að veikja trú manna á leiðangrinum. ----x—*—

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.