Fálkinn - 06.06.1931, Side 11
F Á L K I N N
11
Yngstu lesendurnir.
Fuglarnir byggja hreiður.
Ef viö athugum hreiður fuglanna,
sjáum við að lag það, sem hinir
vængjuðu byggingameistarar velja
heimilum sinum og efnið, sem þeir
gera þau úr er af ýmsri gerð alveg
eins og hjá mönnum. Meðal fuglanna
eins og manna á meðal er fengist við
að byggja úr timbri, tágum og leir
eða mold og þar eru jafnvel til bæði
múrarar og námugrafarar. Málmiðn-
aður þekkist ekki hjá fuglunum.
Flórgoðahreiöur.
fer aldrei af eggjunum meðan hún
er að unga þeim út og karlfuglinn
her matinn til hennar á meðan.
Topphænan vandar lireiðrið sitt
mjög mikið áður en hún fer að verpa
og þarf hún því ekki að liggja á.
Hreiðrið gerir fuglinn úr grasi, sem
hann safnar í dyngju, og eru dyngj-
ur þessar stundum á stærð við sátu.
Hann tinir grasið með tánum og flyt-
ur það svo í hreiðrið á þann liátt, að
hann ber það í öðrum fætinum og
hoppar á hinum. Þegar sátan er búin
eftir mikið erfiði, verpir kvendýrið
eggjunum þar, og er þá skyldustarfi
hennar lokið. Síðan skiftir hún sjer
ekki framar af eggjunum eða ungun-
um. Hún veit sem sje, að hitinn sem
kemur i vott grasið er nægilegur til
þess að unga út fyrir hana eggjunum.
Litlu ungarnir búast svo sem held-
ur ekki við neinni umönnun af hálfu
foreldra sinna. Strax og þeir koma
úr egginu sópa þeir grasinu burtu,
og fljúga út í víða veröld, við því
húnir að verða einir að taka upp
baráttuna fyrir tilverunni.
Þjer finst nú ef til vill lítið til
flórgoðans koma, en jeg skal segja
þjer, að það er reglulega duglegur
sundfugl.
Hann byggir sjer hreiður i starar-
flóðinu. Þú sjerð hreiðrið hans stund-
um á sveimi á smátjörnum. Ef að
kvenfuglinn er hræddur um að fá
ekki að vera i friði með eggin sín,
stingur hún öðrum fætinum niður í
vatnið og rær svo af stað með hreiðr-
ið á annan stað i tjörninni, þar sem
hún heldur að hún hafi meira næði.
Hún gætir þess vel að fela hreiðrið
innan um störina svo að óvinirnir
komi ekki auga á hana og eggin
hennar.
lsfuglinn býr sjer til hreiður niðri
i jörðinni.
Isfuglinn á heima við ósa og er
hinn mesti veiðimaður. Frakkar kalla
hann skritnu nafni, þeir kalla hann
sem sje „Martein fiskimann“. Hann
sest á grein fyrir ofan yfirborð vatns-
ins og horfir niður í það, ef hann
sjer fisk á sveimi stingur liann sjer
eins hratt og skotið væri af byssu og
grípur fiskinn með nefinu. Hann
syndir síðan aftur upp á vatnsborðið
með vængjunum og flýgur í land með
veiði sina og etur hana þar.
ísfuglinn er ekki sundfugl og er
þessvegna ekki lengur í vatninu en
hann endilega má til með.
Þegar hann býr sjer til hreiður á
vorin, grefur hann löng göng með
nefinu, sem er mjög hvast, inn í ár-
bakkann. Síðan býr hann sjer til
hreiður úr fiskbeinum. Kvenfuglinn
Lýðvaldisfuglinn.
Skritnustu hreiðrin, sem til eru, eru
hreiður lýðveldisfuglsins (republik-
anerfuglen). Það eru litlir fuglar, sem
lifa i hópum saman. Þeir lima hreiðr-
in sín hver við hliðina á öðru, það
er engu líkara að sjá þau, en að það
væru pípur á orgeli. Það hafa verið
talin upp að 300 hreiðrum i slíkum
sambýlum. Náttúrufræðingur einn,
Iíreiður skraddarafuglsins.
tók einu sinni eitt slíkt sambýli heim
með sjer og varð að setja það á vagn
og átti mjög erfitt með að koma því.
Þið getið ráðið af nafninu hvern-
ig hreiður þessa fugls muni vera bú-
„J?aá getur
Þvottar
mínir
veröa
hvítari
meó
RINSO
LKVER BROTHERI LtMITEB
PORT SUNLIOHT, ENOLAND.
verið jeg sé gamaldags*4
segir húsmóðirin
„En jeg er ekki svo heimsk, að jeg snui
baki við einhverju góðu, af þvi það er
nýtt. Til dæmis Rinso. Gamla aðfer-
ðin, að núa og nudda tímum saman og
brúka sterk bleikjuefni til að gera þvot-
tana hvita, vann verkið helmingi ver en
Rinso. Rinso gefur ljómandi sápusudd,
nær út öllum óhreinindum og gerir
þvottana hvíta. Þeir þurfa enga bleikju og
endast pví miklu lengur. Fylgdu með
tímanum eins og jeg og þvoðu með
Rinso."
Er aðeins selt i pökkum
— aldrei umbúðalaust
Lítill pakki—30 aura
Stór pakki—55 aura
ISIORPVOTTIMH
W-R 82-047*
ið til. Hann saumar saman langar
blöðkur með jurtatægjum, síðan fyll-
ir liann pokann, sem hann býr þann-
ig til með bómull, og verpir svo eggj-
unum í hana. Hann þarf ekki að
rugga ungunum sínum því hreiður
þetta er svo ljett að það þarf ekki
nema svolítinn vindgust til að sveifla
því fram og aftur.
Ef þú finnur fuglshreiður þá
máttu ekki hræða litlu ungana, og
sjeu engir ungar í því, þá skaLtu ekki
rífa það í hugsunarleysi, þú verður
að bera virðingu fyrir vinnu annara
— næsta ár verður ef til vill bú-
ið í þvi aftur.
•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
! j
iMálninga-i
vörur
: ;
Veggfóður
j !
: Landsins stœrsta úrval. :
UMÁLARINN«j
■ ■
Reykjarík.
Vállriim er viölesnasta blaðið.
Idmllill er besta heimilisbiaðið.
HYGGINN Drengurinn sem sjest
HUNDUR hjer á myndinni er að-
---------- eins 7 ára, og á heima í
Freienwald í Þýskalandi. í vetur datt
hann ofan í vök og var enginn mað-
ur nálægt til þess að bjarga honum.
Hefði hann vafalaust druknað, ef
liundurinn sem með honum var, hefði
ekki lilaupið lil og glefsað i jakkalaf-
ið hans og haldið í hann þangað til
fólk kom að og bjargaði. Hundur-
inn fjeklc vitanlega heiðurspening fyr-
ir vikið, en hvort hann er svo liygg-
nn að meta þáð nokkurs, skal ó-
sagt látið.