Fálkinn - 15.08.1931, Page 3
F Á L K 1 N N
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Frarnlcvœmdastj.: Sravar Hjaltested.
AÖalskrifstofa:
Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa i Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
BlaSið kemur út hvern laugardag.
Áskriftarverð er kr. 1.70 á mánuði;
kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Aiiglýsingaverð: 20 aura millimeter
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Skraddaraþankar.
Aldrei hefir Jjað verið brýnt jafn
ósleitilega fyrir fólki, að best sje að
búa að sínu, eins og einmitt j)essi
síðustu árin. Styrjjjjdin hrinti hinu
gamla úr skorðúm, viðskiftalífið lam-
aðist, lánstraust einnar þjóðar til
annarar hvarf og undir cins og það
hvarf varð viðskiftalífið eins og
ryðguð vjel, sem hætti að snúast
nema ineð ískri og crfiðismunum
vegna þess að áhurðinn vnntaði —
cða liltrúna.
Islendingar hafa orðið varir við
þetta eigi síður en aðrir. Hjer hafa
hin síðari árin verið stórfeldar verk-
legar framkvæmdir, sem gleyptu of
fjár og aðrar biða, enn stærri. En
það vanlar fje. Útlent fje til l)ess að
kaupa fyrir byggingarefni, vjelar, að-
fengna kunnáttu og ótal margt fleira.
Og þetta fje verður að fást að láni,
ef að framkvæmdirnar eiga að
verða.
Land hinna stóru möguleika gæti
jafnan haft fje á reiðum höndum
til margra og mikilla, þarflegra
framkvæmdá’, ef íslemlingar kynnu
að láta sjer haldast á fje sinu, en
sólundúðu l>ví ekki úl úr landinu
fyrir óþarfa, eða nytjávörur, sem
þeir geta framleitt sjálfir. Enn hafa
stjórnarvöldin ekki gripið til harðra
ráða til þess að kippa þessu i lag,
en fyrirsjáanlegt er, að til þeirra
verður að gripa, ef þjóðin sem heild
vaknar ekki lil skilnings á því, að
ef fjárhagslegu sjálfstæði íslands á
að vera borgið, verður liún að leggja
hömlur á allan öþarfan fjáraustur úr
landinu og láta innlenda framleiðslu
jafnan sitja fyrir útlendri, jafnvel
þó hún væri dýrari. Þetta hafa all-
ar þjóðir orðið að gera á síðari ár-
um. — íslendingar einir hafa að
fullu og öllu vanrækt það. — Þeir
eru svo ríkir?
Það er stórt rannsóknarverkefni
að komast l'yrir það, livað spara má
al' erlendum innflulningi með því
að nota samskonar framleiðslu inn-
lenda, þar sem hún er til, en auka
bana þar sem hún ekki mundi full-
nægja eftirspurninni. JCngin þjóð
l'ramleiðir tiltölulega eins mikið af
mat og' íslendingar gera, þegar korn
er frálalið. En hvernig stendur þá
á því, að jafnvel á skipum, sem gerð
eru út al' rikinu sluili farþegum
vera boðin erlend mjólk, erlendur
ostur, erlent kjöt, erlendur fiskur,
erlent kex. Ætti ekki hið opinbera
að ganga á undan öðrum með góðu
eftirdæmi og sýna að það er hægt
að halda lífinu í farþegum milli ís-
lenskra hafna, með íslenskum mat.
Sjónaukar mjög ódýrir. — Leslr-
arglcraugu, með ókeypis mátun.
Sólskygni, Sólglcraugu o. l'l.
F.A.Thiele
Bankastr. 4.
Þar fást
/ bienum Lincoln hefir Nebreska-
fglkið bggt nýtt stjórnarráöshús,
sem jafnframt á að vera minnis-
merki fgrstu landnámsmánna vest-
urrikjanna. Á miöri bgggingmini er
ÍHO metra hár tnrn, sem sjest á
mgndinni.
Um víða veröld.
----X-------
JARÐARFÖR Einn af vildar-
MORÐINJGANS vinum Al Capone,
--------------sem kallaður var
Joe Boss, en var ítalskur og lijet
rjettu nafni Guiseppe Massari var
skotinn til bana á krá í New York í
vor. Guiseppe hafði svo inörg morð
á samviskunni, að allir voru hættir
að hafa tölu á þvi. Auk þess var
hann bæði eitur- og áfengissmygl-
ari i stórum stíl, stjóruaði enn-
fremur nokkrum spilavílum i New
Yorlc — var með öðrum orðum einn
af slórlöxunum í undirheimum New
Yorkborgar.
Likfylgdin var sú stærsta, sem
sjest hefir í mörg ár í New York.
Líkkista morðingjans var <>11 silfur-
rekin og afar skrautleg og á eftir
líkvagninum ók ekkja morðingjans
í samskonar bifreið og þeim, sem
borgarstjórinn í New York notar,
við hátíðlegustu tækifæri. Síðan
kom afar löng röð af allskonar bif-
reiðum með vinum tiins látna, en
ýms verslunarhús og verksmiðjur
höfðu notað tækifærið til þess að
láta vagna sina aka með likfylgd-
inni með skrumauglýsingum uni
varning sinn. Og loks komu 15 vörú-
flutningabifreiðar l'ullar af blóm-
sveigum frá vinum liins látna.
Það borgar sig vel í Ameríku að
vera morðingi. Ilvílik menning!
BLADAÚTGÁFA í Bandaríkjunum
SVERTINGJA gefa svertingjar
------------— út 60 dagblöð, sem
aðeins fjalla um hagsmuni þeirra
sjálfra og nuk þess 110 vikublöð og
tvö tímaril. lín mánaðarril, í líkingu
Anna Sigurðardóltir frá Þjól-
anda, nú til heimilis á Njáls-
götu 58 B varð 75 ára 11. ágúst.
Andrjes Hafliðason kaupmáður
á Siglufirði verður fertugur 17.
þ. m.
Hefir Cramer farist?
Aðfaranátt föstudagsins 7. þ. m. kom liingað til Reykjavíkur
ameríkanski flugmaðurinn Parker Cramer á leið frá Ameriku til
Kaupmannahafnar. Flaug liann síðasta áfangann frá Angmagsa-
lik i Austurgrænlandi en þangað hafði hann flogið yfir þveran
Grænlandsjökul frá Holsteinborg. Hann var á lílilli en hrað-
skreiðri flugu, sem gekk fyrir dieselvjel, en þái vjelategund er
nýlega farið að nota í flugvjelar. Cramer hjelt áfram h jeðan á
föstudaginn síðdegis áleiðis til Færeyja, en varð að leiula i liafi
en komst þó óskaddaður á áfangastað og hjelt af stað áleiðis til
Bergen á laugardaginn en varð að snúa við vegna dimmviðris
og lenli i Lerwick um kvöldið. Þaðan fór hann sunnudagsmorg-
un. en síðan hefir ekkerl til hans spurst, annað en hann átti
skamt ófarið að Noregsströnd. Var gerð leit að honum á skipum
og flugvjelum, en sú leit liefir engan árangur borið þegar þetta
er ritað og óttasi menn því, að hann liafi farist ásamt fjelaga sín-
um. Að baki þessu flugi stendur auðugasta flugfjelag Banda-
ríkjanna, sem liefir i hygju að koma á föslum flugferðum milli
Améríku og Evrópu. Myiulin sýnir Cramer og vjel luins.
við ensku og amerísku ritin hafa þeir
ekki liaft fyr en núna nýlega, að
farið var að gefa út mánaðarritið
„Abbotts Monthly — A Magazine
thats different“ og ber nafn útgef-
andans Robert Sengstake Abbott,
sama mannsins, sem slofnaði og gef-
ur úl svertingjablnðið „Defender" í
Ghicago. Abbott er nú um 60 ára; er
hann lærður maður, doktor í lög-
fræði og hefir ferðast mikið um Ev-
rópu og Suður-Ameriku. Stofnaði
hann „Defender“ fyrir 25 árum og
er nú orðinn ríkur maður, þvi að
blað hans er útbreiddasta svertingja-
blaðið i Ameríku, þó eigi hafi það
nema um 110.000 kaupendur. Mán-
aðarritið er gefið út Ghicago og voru
prentuð 50.000 eintök af þvi i fyrstu.
Flutti fyrsta heftið fjórar stuttar
sögur, nokkrar visur, grein um tak-
mörkun fæðinga, grein um afstöðu
kirkjunnar til æskulýðsins og um
Alexander Dumas eldri, sem var af
svertingjaætt. Timaritið hefir hvíta
blaðamenn og er svo að sjá, sem
hvítir menn kaupi það fremur en
svertingjar, því að þeim síðarnefndu
finst það ekki við sitt hæfi.