Fálkinn


Fálkinn - 15.08.1931, Blaðsíða 7

Fálkinn - 15.08.1931, Blaðsíða 7
F A L K I N N 7 O ••"Ulliii'* o ••"llliii.t o "'lllllii' O •,,|llllll"• o •",lllllll*• O •",llllli",0 •‘"UIIli"' •*,,llllli**' O •,,,llllll"• o •"UIIIiM'* o •,,|llllii"' o •"|llllll•,• O •"•llllii"’ o o k — w © Krukkan. Smásaga efiir S. WRIGHT. O a Andre'w Case fölnaSi þegar hann las brjefið, sem lá við diskinn hans. Hann kis það aftur og aftur, fjórum sinnum. — Þú, sein kallar þig nú sir And- rew Case, ert búinn að lifa nógu lengi, og ríkur ertu orðinn. Jeg hefi haft gætur á þjer í tíu ár, án þess að nokkur hafi orðið var við, og nú finst mjer meir en tími lil kominn að þú farir að deyja. Og á morgun skaltu deyja. Annað kveld þegar klnkkan þín slær níu. Þú getur gert alt sem þú vilt til þess að forða þjer, en þegar þú lest nafnið mitt undir brjefinu veistu að alt, sem þú gerir er árangursíaust. Þú skalt ekki kom- ast undan hefndinni. Andlit Case varð eins gráhvítt eins og leirkrukkurnar, sem hann lifði á og álti að jiakka auð sinn og metorð. Hann hnje máltvana niður í stól við borðið. í hugánum leit hann yfh- lið- in ár. ilann var nú rúmlega sextugur. Hann hafði ekki verið neina nokkuð á þrítugsaldri, þegar það skeði að hann kom saklausum manni í hend- ur lögreglunnar. Manninum, sem kall- aði sig Vit. Það var fyrir glæp, sem hann sjálfur framdi. Auk jiess hafði hann narrað konu Vits frá honum. Og höfðu þau í sameiningu komið fram með kærur á hendur honum, sem urðu tit, þess að Vit var hnept- ur í fangelsi. Case kófsvitnaði. Hversu oft hafði hann ekki iðrast þessa glæpsamlega alhæfi síns. En unnið verk varð ekki afttir tekið. Kona hans var dáin. Vit bafði horfið. Þangað til núna. Nú var tími hefndarinnar kominn, og hann vissi að hann myndi ekki getað flú- ið hann. Vil myndi hafa búið sig vel undir þennan fund í þau þrjátíu ár, sein enginn liafði til hans frjett. Hann myndi ekki láta hefndina ganga úr greipum sjer. Það var liringt i símann og jjjónn kom inn. — Síminn, herra. — Hvaðan? — Veit það ekki, sá sem er í sím- annm vill, ekki láta nafns síns getið. Case gekk fram í fordyrið og greip heyrnartólið. — Halló, jielta er Andrew Case. Dimm rödd Svaraði: — Þella er Vit. Annað kviild klukkan níu — á slaginu. Meira sagði hann ekki. Case misti heyrnartólið úr hendi sjer en áttaði sig brátt, lagði það á aftur og hringdi á lögreglustöðina. Case var einn hinna voldugustu manna i borginni og gat látið gera svo að segja al.t sem hann vildi. Hon- um hafði verið hótað dauða, og hót- arinn hafði meira að segja tiltekið timann, þegar hann ætlaði að koma. Annað kvöld klukkan níu. Gott, jiá skyldu verða sendir tveir lögreglulijónar, tveir af þeim bestu. Þeir skyldu verða sendir strax, eft- ir einn eða tvo klukkutíma. Langbesl að gæta allrar varúðar. Því aldrei væri að vita hvað hótunin ætti að þýðu. Klukkan sló. Hann taldi slögin ut- an við sig eins og hann væri undir á- hrifum einhvers töframagns. Eitt, tvö, þrjú . . . níu, tíu, ellefu . . . Nei, jiað var ekki í dag að Vit ætlaði að koma. Nei, það var ekki fyr en á morgun. En þá hafði hann lögregl- una hjá sjer og þeir myndu áreiðan- lega . . . Ætli þeir myndu nú ann- ars geta þáö? Þeir þektu ekki Vit. En hann, já hann þekti liann. Af hon um inátti búast við öllu. Þeir hjeldu náttúrlega að hann myndi ryðjast með skammbyssu i liönd eða kasta sprengju inn um gluggann. Nei, það var of einfalt fyrir Vit. Þegar hann hafði liugsað sjer að hefna, myndi hann gera það á annan hátt. Á djöf- ullegan hátt. Case geklc inn á skrifstofu sína. Hagræddi skjölum sínum ef . . Hann Jmrkaði aftur kaldan svitann af enn- inu. Ogþegar lögregluþjónarnir komu þeir hjetu Fellows ög Marscliall, sat hann utan við sig af skelfingu. Hann sagði þeim sögu sina, en sá að lögregluþjónarnir tóku henni ó- sköp rólega. Fellows hjelt því fram að Vit væri ekki annað en blekking- armaður og Marschall leit út fyrir að vera á honum saminála. Tómir vagn- ar skrölta mest. Case leit ókyrr á þá. Nei, það voru ekki tóm orð, Vit var ekki þannig gerður. Og liann hjelt áfram sögu siiini. Eftir að Vit hdfði setið sex ár í fangelsi hafði hann iíklega farið utan og þaðan var hann eftir öllu að dæma kominn fyrir svo sem tíu árum síðan. Hvað hann kallaði sig nú vissi hann ekki. Ekki vissi hann heldur hvernig liann leit út. Þegar jietta alt skeði fyrir rúmum þrjátíu árum, hafði hann verið gjörfilegur ungur ínaður, liðlegur, vel vaxinn og kur- teis i framgöngu. Hann Var mentað- ur maður — sálfræði hafði verið að- al námsgrein hans —- en þá' lenli hann i vondum fjelagsskap (Case átti við sjálfan sig en sagði það ekki) Hið eina, sem hann gæti þekt hann á núna væri kross í hægri lófa, eft- ir sár, sem hann hafði fengið eitt- hvert sinn er hann fjekkst við efna- ransóknir. Þjónninn truflaði samræðuna. Hann kom inn ineð böggul í liend- inni. Sendisveinn hafði komið með hann. Case ætlaði að fara að opna liann, en Marschall gekk í milli og bað að fá sjer hann. Það gæli verið sprengja. Hann tók varlega um bögg- ulinn og bar lian fram i eldhúsið. Eimm minútum seinna kom hann skelJihlægjandi inn. Það var askja með blómum. — Það var alt og suint. Og líklega væru þau ekki eitr- uð. Hann rjetti Case brjefið. Case reif ]iað upp og las: Þar eð það er siður að gefa liinum dauða- dæmdu gjafir, sendi jeg blóm þessi hjermeð. Þau eru ekki eitruð — jeg liata alt þessliáttar — þetla er að- eins áminning um jiað að endirinn nálgast. Á morgun, sem sagt klukk- an niu á minútunni. Vona að þú sjer viðbúinn. Jeg er það . Vit. Ilann ýtti frá sjer öskjunni. — Þarna sjáið þið. Hann kemur til að drepa mig, ef ekki . . . ef lög- in geta ekki komið í veg fyrir það. Fellows klappaði á öxlina á hon- um hughreystandi. — Verið rólegir, herra, við skul- um sjá um að ekkert slikt komi fyrir. Jeg hringi á lögregluslöðina og svo getur einhver leitað uppi blómabúð- ina. Og svo læt jeg nokkra menn halda vörð hjerna fyrir utan. Það er liægt að gera kraftaverk, og komist hann ekki inn um vegginn, skuluin við sannarlega sjá um að hann skríði ekki inn annarsstaðar. En Case var náfölur. — Þið þekkið ekki Vit, andvarp- aði hann. Það var nálægt miðnætti. Case lá og bylti sjer i rúminu. Hvernig átti hann svo sem að gela sofið. Hann hafði lesið að menn, sem dæmdir höfðu verið til dauða svæfu fasl nótt- ina fyrir, en það hlutu að vera for- hertir djöflar, er gátu slikt. Og hann var ekki forhertur. Hafði hann þá ekki iðrast glæps síns nóg í öll þessi ar, hafði hann ekki gefið stórar fjár- fúlgur til sjúkra og fátækra að eins til þes að finna að hann hefði þó gert eitthvað gott. Hann hafði líka látið Jeita að Vit. Og á meðan hafði Vi haft gætur á honum. Klukkan sló 12. Hann taldi slögin. Eftir 21 klukkustund átti hann að deyja, Hann vissi með sjálfum sjer að hann myndi deyja. Hann fann, ttð ])að inyndi verða á slaginu klukk- an níu. Klukkan tvö kom hann þjótandi fram lil lögregluþjönanna seni hjeldu vörð í næsta herbergi. — Sjáið þið ekki, hrópaði hann. Sjáið þið þarna er hann aftur glamp- inn. Sjáið þið. Teljið. Þeir töldu, það kom Ljósglampi utan af götunni, merki eins og frá bifreiðalukt. Þeir töldu, einn, tveir, þrír, fjórir, fimm, sex, sjö, átta, níu. Glamparnir hættu. Fellows fleygði sjer í jákkann, til þess að hlaupa út, en Case stöðvaði liann. — Farið ekki frá mjer, hrópaði hann, farið ekki frá mjer. Þeir sendu einn þjóninn, og liann kom inn aftur að fimm mínútum liðn- um. Hann hafði sjeð bifreið aka burt. Uppi á henni hafði verið komið fyr- ir ljóskastara. Lögregluþjónar þeir, sem úti voru höfðu veitt henni eftir- för. Cáse tautaði eitthvað fyrir munni sjer. Þeir finna hann ekki. Það verð- ur eins iinnað kvöld. Áður enn við höfum lnigmynd um verður hann búinn að myrða mig. Jeg veit hvað skeður .... Hann vafraði inn i svefnherberg- ið. Fellows og Marschall sátu einir eftir og skeggræddu. Það var auðsjeð að þetta fjekk svo mikið á (iase að hann var að verða vitlaus. Ættu þeir itð hringja til dr. Fowlers. rrr Þú veist ]»að að dr. Fowlers er einmitt sþentur fyrir svona lilut- um, mælti Marscliall, það er ekki lengra síðan en i fyrra dag að hann hringdi niður eftir og bað okkur að gleyma sjer ekki ef eitthvað óvana- legt kæmi fyrir. Þetta lilýtur að vera óvanalegt. Já, það fanst Fellows líka, ef lil vill best að gera honum viðvart, strax i fyrramálið. Það væri afbragð að hafa hann viðstaddan ef eitthvað kæmi fyrir með Case. Jeg á við ef hann tapar sjer. Því þetta með Vit triii jeg ekki á. Marschall horfði á skammbyssu sína. —■ Ef við skyl.dum sjá hann og ef hann er eitthvað annað cn vofa þá skal hann fá það. Nóttin leið. Með póstinum um morguninn kom ný tilkynning. Þar slóð aðeins að í kvöld klukkan níu skyldi Vit sjá um að Case yrði komið fyrir kattarnef. Marschall bölvaði. Hann er blekkingamaður, það er hann og ekkert annað. Reynið bara að vera rólegur lierra, hann er að leitast við að liafa áhrif á taugar yð- ar það eru ])ær, sem hann er að reyna að eyðileggja. Jeg skal strax fyrir mitt leyti skreppa lil dr. Fowí- ers, ef þjer hafið ekkert á móti þvi að við verðum fjórir. — Þá verðum við l'imm - með Vit. — Það lýtur þannig út að mjer skilsl, mæLti dr. Fowler við Marsch- aíl, að Vit hefir ‘binhverrar gamall- ar græsku að hefna á Case. Case er ef til vill þess verður, sem fram við liann á að koma, mjög líkLegt að svo sje. Marschall horfði fast á læknirinn. — Já, ef til vill er hann það. En á hinn bóginn hefir Case gert inargt gott með auð sínum. Hann héfir marga verkamenn í ])jónuslu sinni og' að öllum líkindum ganga eignir hans til bæjarins að honum látnum, þar eð hann virðist ekki eiga nein ættmenni. En auk þess er það skylda okkar að haLda hlífiskildi yfir lion- um. Dr. FowLer hneigði sig. — Já, það er það. Jæja jeg skal, þá koma. Það er þá líklega best að segja klukkan hálf niu. Þjer verðið þar náttúrlega allan daginn. Klukkan í húsi Case sló sjö. Hilin dauðadæmdi og verðirnir sátu þar og biðu. Fyrir utan stóðu lögreglu- þjónar á verði. — Tveir tímar eftir tautaði Case, að eins tveir tímar. Klukkan sló hálf átta og liálfniu. Um leið og slagið reið af tilkynnti þjónninn koinu dr. Fowlers og fylg- di honúm inn. Marschall kynti hann fyiri húsbónda. Case leit varla upp og lók ekki eftir hinu athugula augna lilliti komumanns. — Hálftími að eins, hálftími, tautaði liann. Andlit hans varð snjóhvítt. Báðir lögregluþjónarnir sátu þögl- ir. Hið eina liljóð, sem heyrðist var tifið í klukkunni. Einhver hreifi sig. Tiu mínútur eftir í níu. Dr. Fowles rauf þögnina. Hann reis á fætur og gekk fram að arin- hyllunni, á henni stóð stór krukka. Hann barði á hana með fingurgóm- unum. — Þetta er fallegur hlutur, sagði hann eins og til þess að segja eitt- hvað. Þjer hafið sjálfur Látið búg hana til býst jeg við, herra Andrew. Sá, sem talað var til hneigði höf- uðið játandi. — Krukkan hvíslaði hann, krukk- an. — En livað hún er falleg, hjelt dr. I’owler áfram með rólegri og skærri rödd. Marschall starði á hann, eins og hann vildi reyna að fá hann til að þegja. Fimm minútur eftir í níu. lrelton spenti 'skammbýssuna. Marschall gerði hið sama. — Best að vera tiLbúinn, sagði hann glottandi. Þrjár mínútur, tvær, ein. Klukkan bjóst til að slá og eitthvað skeði. Krasj, krasj . . . Stóra krukk- an lá á gólfinu mölbrotin. Case hafði stokkið á fætur, en fjell niður um leið og krukkan datt i gólfið. Hann lá hreyfingarlaus, Fellows beygði sig yfir hann. — Hann andar ekki, hvíslaði hann, hánn er ef til vill dauður. Case lauk upp augunum — í sið- asta sinn. — Jeg de'y, vissi jeg það ekki. Það er ef til vill hjartað . . . . Hann gerði veika bendingu með hendinni. —- Vit er þarna, hvíslaði hann, hann stendur ... þarna. Fellows Ieit upp. Hann sá dr. Fowler liverfa út um dyrnar. í saina augnabliki reið af skot úr skamm- byssu Mafshalls og flóttamaðurinn hneig niður. — I>að var krukkan sem drap hann, jeg á við Case sagði Marschall. Jeg hjelt auga með Fowler allan tímann og jeg sá að hann ýtti krukkunni frám af. Um leið og hann ætlaði að forða sjer skaut jeg á hann. En dr. Fowler, hamingjan sæla, hver skyldi hafa trúað iiðru eins. Það hefir ekki komið til af góðu að liann var svona ákafur um daginn. Nokkrum tímum seinna jálaði Vit öllu á dánarbeði sínu. Eftir að hann slapp úr fangelsinu luifði hann farið til Ameriku og haldið þar áfram námi sinu og tekið doktorsgráðu. ÖU þesi ár hafði hann nákvæmlega ráðgert hefndina en hann liafði þó ekki þorað að láta verða úr henni fvr en eftir að hanti var kominn heim Frh. á bls. 11.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.