Fálkinn - 15.08.1931, Side 11
F Á I. K I N N
11
Yngstu lesendurnir.
Ekkert er nýtt
I>að er altaf verið að tala um tísk-
iina, og oft heyrist niinst á ýmis-
legt, sem s.je „allra nýjasta tíska“.
lín þegar betur er að gáð ])á vill
oft verða svo, að ]>að er alls ekki
nýtt, heldur æfa gamalt. Það er
sannað að tildurdrósirnar hjá Forn-
Fgyptum máluðii á sér smettið, svo
að karlmönnuninn litisl betur á þær,
og meira að segja befir fundist ýmis-
legt i gröfum Forn-Egypta, sem hefir
verið tekið upp aftur, af tískusölum
þessarar aldar. Sagan endurtekur
sig, segir máltækið, en siðirnir end-
urtaka sig ekki síður. Ekkert er nýtt
undir sólinni.
Ýmsar þau- íþróttagreinar, sem
liðkaðar eru, eru æfa gamlar, enda
þótt þær hafi ekki verið tíðkaðar
í iiúverandi mynd, nema ef til vill
nokkra áratugi. Enginn veit hve
gömul glíman, þjóðariþrótt íslend-
inga er, en liefðu myndristur verið
algengar á norðurlöndum áður en
sögur bófust þar, væri mjög senni-
legt, að rekja mætti sögu hennar
langt aftur í tímann. Fjöldann all-
an af iþróttagreinum nútímans má
l'inna lijá Forn-Grikkjum og sanna,
að þær liafi verið iðkaðar þar, en
vitanlega hafa Grikkir, enda þótt þeir
væri fyrirmyndarjjjóð, ekki [byrjað
iðkun þessara iþrótta heldur sjeð þær
bjá þjóðum þeim, er þeir liigðu undir
sig og köniust í kynni við. En mynd-
irnar, sem varðveist liafa frá tínnnn
Forn-Grikkja sanna, að þær hafa
verið iðkaðar þá og sörtuileiðis frá-
sagnir frá þeim tíma.
Ujálfun undir hnefaleik.
Hnefleikur er nú iðkaður af miklu
kappi með öllum mcnningai'þjóðum.
()g menn hafa sjeð á myndum hvern-
ig hnefleikamenn nútimans fara að
því að þjálfa sig undir kappleiki,
j)vi að fæslir þeirra hafa altaf mót-
stöðumann til að láta berja sig. Þeir
hal'a 'leðurkniitt með loftheldri
hliiðru og feslti liann í lóðrétta
snúru og berja á honum eins og
peir ]>oIa. Myndin hjer að ofan sýn-
ir, að Forngrikkir liafa farið likt að.
Þeir höfðu útblásna blöðru, fóðraða
með eltiskinni og börðu á henni.
Þetta kölluðu Grikkir að berjast við
skuggann sinn, og stellingarnar eru
siimu og nú.
Ýmsir munu halda, að knattspyrn-
an sje upprunnin i Englandi, því að
undir sóiinni.
Knattspyrnan.
Bretar eru elstir núverandi knatt-
spyrnuþjóða, og frá þeim hefir hún
breiðst út um heiminii i sinni nú-
verandi mynd. En Grikkir þektu
knattspyrnuna vel. Myndin hjer að
ofan sýnir, að þeir hafa farið með
boltann á líkan hátt og knattspyrnu-
irnir gera enn þann dag í dag. Ilvort
þeir hafa haft knattspyrnustígvjel
skal ósagt látið, og eins er það ó-
sennilegt að leikreglurnar liafi verið
þær sömu og nú er, því að þær
breytast í sífellu. Leikreglur Grikkja
hafa líklega verið miklu óbrotnari
en núverandi reglur og fyrirmæli
vantað um vítisspyrniir og þesshátt-
ar.
Hockey.
Þessi knattleikur er lítt þektur
hjer á landi, en er mikið iðkaður
víða með öðrum þjóðum, og hefir
verið gerður uppúr honum ís-hoc-
key, þar sem þátttakendurnir eru
allir á skautum. En Grikkir, stofn-
endur Olympsleikjanna, þektu hoc-
key mæta vel og höfðu þáð á leik-
skránni. Myndin hjer að ofan er frá
Grikklandi. Á henni má sjá, að
])álttakendurnir hafa farið mjög líkt
að og menn gera nú á tímum, er
þeir leika hockey og að tækin eru
nauða lík. Hockey er þvi ekki nýr
leikur.
SkrHfsund.
Evrópumenn fóru ekki að læra
skriðsund (crawl) fyr en 1912.
Þessi iþrótt kom frá Hawaj, en var
æfa göniul þar og i nálægum eyjum
í Kyrrahafi, enda munu hvergi betri
sundmenn en þar, nje sundkunnátt-
an jafn almenn. Vesturlandabúar
voru hreyknir yfir að læra þessa
Sokkarnir yðar
Itveynir tir Lux
þola betur og eru
ávalt sem nýjir.
SOKKAItNIR eru viðkvæmar flíkur, af öllum
lísku klæðnaði þurfa þeir þvi besia meðferð.
Sje varúðar gætt í þvotti, eykur það endingu
þeirra. Lux notkun lieldur þeim sterkum og
sem nýjum löngu eftir að önnur sápuefni
inundu hafa slitið þeim til agna, því Lux-Iöðr-
ið er lireint eins og nýjasta regnvatn. — 011
óhrenindi hverfa af hverjum silkiþræði fyrir
liinu mjúka Lux-löðri. — Þeir halda hinum
upprunalega gljáa. — Lux gerir sokkana yð-
ar aftur sem nýja, og eykur endingu þeirra.
Hafið því Lux ával.t handbært.
LUX
W-LX 29 1-10
Litlir pakkar 0.30
Stórir pakkar 0.60
LEVER BROTHERS L1M1TED„
PORT SUNUGHT.ENGLAND*
Það sem þolir vatn
þolir Lux.
iþrótt, því að mönnum miðar yfir-
leit betur áfram á þessu sundi, en
hokkrii öðru. En það voru fleiri
en Hawajbúar, sein kunnu þetta
sund. Myndin hjer að ofan er tekin
eftir egyptsku myndletri og sýnir,
að Egyptar hafa kunnað þetta sund,
þó að það hafi gleymst siðan.
Myndin er nálægt 5000 ára gömul.
FELUMYND
Hvar er mótsstöðumaður Inief-
leikarans'?
KRUKKAN.' Frh. af bls. 7.
Ilann hafði unnið með lögregunni
og rannsakað þau tilfelli sem voru-
sálfræðilegs eðlis. Það er sannað að
hægt er að dáleiða sjálfan sig í dauða
og hótunarbrjefin sendi hann til þess
að eýðileggja hið veiklaða hjarta
Case. Krukkan fullkomnaði verkið.
— Og svo var það eitt, sem gerði
)að að jeg skaut á hann, sagði Mar-
schall, þegar han gaf leynilögreglunni
skýrslu sina. Case sagði okkur frá
öðru, sem Vit átti að hafa i hægri
lófa. Þegar liann tók upp krukkuna
sá jeg þetta merki. Það dáleiddi mig
liálfgert og mjer sortnaði fyrir augum.
Annars hefði jeg ef til vill ekki skot-
ið.-----
Amerískur vísindamaður heldur
því fram, að bráðlega rnuni nýtt
eyland rísa úr hafi. Byrjunin er
þegar sýnileg, segir hann, því tvær
nýjar eyjar hafa nýlega risið úr
hafi suður við Brasilíu. Hið nýja
land segir hann niiinu verða á stærð
við Japan.
----x-----
Á veitingastað einuni i New Y'ork
er auglýst að hver gestur geti l'eng-
ið eins mikið að borða og hann vill,
án ]iess að borga ineira fyrir mat-
inn. Veilingamaðurinn segir sjálfur
svo frá, að hann stórgræði á þessu,
því aðeins fimm af hverjum lnindr-
að biðji um meira en góðu hófi
gegnir. Og auglýsingin er vel þess
virði.
Samkvæmt skýrslu, sem gefin hef-
ir verið út í London nýlega, kvað
það verða æ sjaldgæfara að ekkjur
giftist. Árin 1927, 1928 og 1929 var
stofnað til 41.392, 42.234 og 42,310
hjónabanda hvert árið, en þau árin
giftust 2748, 2022 og 2489 ekkjur.
En árið 1920 var áttundi hver kven-
maður, sem giftist, ekkja. Þetta kvað
stafa af því að ungu stúlkurnar hafa
sig nú meira í frainmi um að ná sjer
í mann, en áður — og ekkjurnar
líða við það.
Þýskur komnúmisti stóð um dag-
inn i prjedikunarstól í Mexikó og
lióf ræðu sína, fjandsamlega mjög
trúarbrögðum. Hvað gerðu áheyr-
endur? Þeir rifu náungann niður af
stólnum, drógu hann út á gölu —
og hengdu hann í skyndi.
----x----
Prinsinn af Wales byrjaði á þvi
um daginn að ganga með hvitan
slráhatt — og nú ganga allir karl-
menn á Bretlandi með samskonar
liatt.
FYakkneskur verkfræðingur liefir
fundið upp nýja gerð af skipum,
sem geta ekki sokkið. Tilraunir, sem
gerðar hafa verið með báta, alt að
10 smálestum að stærð, hafa tekist
mjög vel, svo það er ekki alveg ó-
liugsandi að honum hafi tekisl að
smíða alveg ósökkvanlegt skip.
----x------