Fálkinn - 28.01.1933, Síða 5
F Á L K I N N
5
Jörgen. Hann saup gúlsopa úr
glasinu og' sagði fastmæltur:
„Jeg.hjelt helst, að það væri
hara kunningjar föður þíns,
kaupsýsluvinir. Nei, sannast að
segja þá þekki jeg fólkið lítið
sjálfur, en það hefir verið svo
alúðleg't að bjóða mjer“.
„Jörgen, Jörgen, þú ert meira
samkvæmisljónið“, sagði Eva
hlæja’ndi. „Ferð aldrei úr veislu
fötunum".
Hann brosti og fann til sín
og þetta urðu allra skemileg
ustu fundir.
Nei, honum var engrar und-
ankomu auðið. Þegar hann var
orðinn einn gerði hann upp
með sjer hvort hann ætti að
l lýja úr bænum eða hringja tii
hennar og meðganga alt. En
gat hún fyrirgefið honum að
hann skyldi ljúga svona að
henni i fyrsta skifti sem þau
hittust eftir að þau voru orðin
uppkomin? Og nú fann hann,
að hann gat ekki verið án henn
ar.
Hann herti upp hugann og
ljet umsvifalaust kynna sig lijá
Barthsfólkinu og sagði við dótt-
urina, ídu, sem var vinkona
Evu Vest, að hún mætti til að
sjá úm, að honum yrði boðið
um kvöldið.
„Það er engin leið“, sagði
stúlkan og leyndi sjer ekki að
henni þótti gaman að kvelja
hann. „Foreldrar minir þekkja
yður ekki og jeg ekki heldur.
Og þjer viljið ekki einu sinni
segja mjer hversvegna þjer er-
uð svona áfjáður í að koma“.
„Eruð þjer greiðvikin stúlka
eða ekki ?“ spurði hann og
hvesti augun.
„Kunningjarnir segja, að jeg
sje ekki sem verst“, svaraði
hún.
„Þá er aðeins um eitt að gera.
Þjer sjáið að jeg er þegar kom-
inn í samkvæmisfötin. Jeg er
eiginlega kominn í samkvæmið.
Hvað segið þjer við því?“
Ida Bartli horfði á fallega og
karlmannlega ándlitið. Eva
hafði oft sagt henni frá þess-
um manni. Hún hafði vist ver-
ið ógii ástfangin af honu’m þeg-
ar hún var barn.
„Bara að jeg gæti það“, sagði
hún hugsandi.
„Þjer getið það“, sagði hann
ákveðinn. „Svona ungar stúlkur
eins og þjer vefja föður sínum
um fingur sjer“.
„Jæja“, sagði hún og rjetti
fram höndina með því skil-
yrði að þjer leggið öll spilin
á borðið á morgun“.
„Þakka yður fyrir, ungfrú
Ida“, sagði hann hrærður. Mat-
arlyktina var farið að leggja
inn í stofuna. Hann sá sýnir
af hungri. „Og svo minnist þjer
ekki neitt á þetta Við Evu
Vest“.
Ida var i rauninni besta skinn
en það var svo skrítið með vin-
konurnar. í fyrsta lagi liafði
hún gert það snildarbragð að
koma þeim Evu og Jörgen fyr
ir saman við borðið og í öðru
lagi liafði hún ekki verið mað-
ur lil að þegja yfir þessu, sem
hún hafði upplifað.
„Iíva“, hvíslaði hún i ákveðn-
um hrekkjatilgangi áður en
sest var að borðum. „Það er
skrítið með liann vin þinn,
þennan Frank verkfræði*g, að
hann hefir tekið upp á því að
gera okkur heimsókn hjer i
dag“. Og svo kom öll sagan
um aumingja Jörgen var.
komin áður en. sesl var að
borðum.
Eva Vest var að stelast tiJ að
liorfa á hann undir borðum.
Og nú sá hún, að hann var
tæplega eins unglegur og á-
hyggjulaus og henni hefði sýnst
í fyrstu. Ekki þegar hann brosti
ekki. En nú var liann hjerum
hil altaf brosandi. Sigurreifur
og glaður i hvert skifti sem
hann leit á borðdömuna sína
og það var ekki svo sjaldan.
„Og á morgun ætlar þú svo
að tala við pabba um þessa
stöðu ?“ sagði hún.
„Já, guði sje lof“, sagði hann
í ógáti. „Já, hvað ætlaði jeg að
segja á morgun ætlum við
að semja! Mjer þætti gaman að
það tækist“.
Hún leit aftur á hann og sá,
að hárið á honum var ekki
hrafnsvart yfir gagnaugunum
leng'ur, eins og hún hafði mun-
að það. Hún myntist „smok-
ingsins“ og eymdarsvipsins.
Og þess að hún hafði hvergi
liitt hann á samkvæmum siðan
liánn kom frá Englandi. Það
hlaut að vera ár siðan, ekki
minna. Og svo hugsaði hún
um skrítnu frásögnina hennar
Idu.
Hún lyfti glasi sinu til Iians
og horfði á hann svo að hann
varð í vandræðum: „Heyrðu
Jörgen?“ sagði hún hugsandi.
„Já ?“
„Nei, það var annars ekki
neitt“.
En þegar hún kom heim
sagði hún vð föður sinn: „Pabbi
hverng er maður klæddur við
samningagerðir ?“.
Vest horði undrandi á dótt-
ur sína: „Klæddur við samn-
ingagerðir? Góða mín, jeg veit
ekki til að maður sje klæddur
á neinn sjerstakan hátt“.
„Hni“, svaraði hún óánægð.
„Þú átt að gera samning við
Frank verkfræðing á morgun?“
„Já, og jeg vænti góðs af þvi.
Mig vantar einmittt mann eins
og Jörgen Frank og mjer fellur
sjerstaklega vel við hann ....
hara að jeg geti fengið hann“.
„Pabbi“, sagði húii alvarlega.
„Þú veist vel að þú getur feng-
ið liann. Veistu það ekki?“
„Hvað ert þú að hugsa urn
það, barn?“
„Jeg er ekkert að hugsa um
það“, svaraði hún ólundarlega.
„Og jeg er ekkert barn ....“
Rjett á efir bætti hún við:
„Pabbi, jeg held að þú ættir
að vera í „smoking“ þegar þú
talar við hann“.
„í „smoking“. Ertu frá þjer
harn, þá heldur hann að jeg
sje að skopast að ho’num“.
„Pabbi, en geturðu ekki ver-
ið í „smoking“, úr því að jeg
bið þig um það. Það stendur
svoleiðis á því“.
Jörgen Frank verkfræðingur
sendi inn nafnspjaldið sitt og
kom inn i frakkanum. Meira
að segja með uppbrettaii krag-
ann. Hann var náfölur.
„Fyrirgefið þjer“, sagði hann
um leið og hann gekk til Vests,
sem stóð með útrjetta höndina
.... „jeg fór ekki úr frakkan-
tinf. En þegar hann sá, að
\'esl var í „smóking" þá varð
hann mállaus af undrun.
„Drottinn minn“, andvarpaði
hann. „Eruð þjer í „smokihg“?
Fyrirgefið þjer“, bætti hann við
og roðnaði. Hann stóð þarna
eins og hann hefði orðið að
gjalti frammi fyrir tilvonandi
liúsbónda sínnm. Alt hringsner-
ist fyrir honum. Svo snaraði
hann sjer úr frakkanum og
þarna stóðu þeir báðir smoking-
klæddir hvor frammi fyrir öðr-
um og svo háalvarlegir að það
var í mesta ósamræmi við á-
stæðurnar.
„Hver bað yður að klæða yð-
ui’ svona?“ spurði Jörgen þeg-
ar málbeinið á honum komst
loks í lag' aftur.
„Ef þjer endilega viljið vita
það þá var það hún dóttir mín.
Og nú fyrst skil jeg livað henni
gekk til þess. Það þarf konur til
þess að gera svona, kvenlegt
luigboð og .... hvað veit jeg.
En nú skulum við fara að tala
um samningana“.
Og þegar þeir höfðu verið
gerðir og gengið að óskum,
sagði \ est aðalkonsúll: „Okkar
á milli sagt, Jörgen Frank.
Svei mjer ef jeg held ekki að
þjer hefðuð gott af að fá svo-
litla borgun fyrirfram. Jeg er
ekki alveg á því hreina með
ástæðurnar, en jeg held að það
sje ekki heppilegt að ganga i
„smoking“ frá morgni til kvölds.
En nú verðum við víst að tala
við liana dóttur mína. Hún hef-
ir heimtað að fá að tala við
okkur báða saman“.
„Eva!“ kallaði hann út úr
dyrunum. „Komdu hjerna inn.
Þú hafðir rjett að mæla. Jörgen
er i „smoking“.“
Hinn kunni enski blaðamaðui
Castlerosse lávarður hefir nýlega
sagt frá óbægilegri heimsókn, sem
hann fjekk af Douglas Fairbanks
síðast þegar hann kom til London.
Fairbahks heimsótti lávarðinn og
bað hann m. a. um að lána sjer
sírna. Hann hringdi upp Hollywood
og fjekk að tala við Mary Pickford,
konuna sína og talaði lengi. Svo
fór hann og . mintist ekki á að
borg'a sínrtalið. Skömmu seinna
fjekk Caslerosse reikning upp á
1800 krónur fyrir samtalið við Holly
wood. Fairbankk hafði ekki hugsað
út i að borga þetta srnáræði. Hvað
ætli hanri muni líka um 1800 krón-
ur?
-----x----
Ungu stúlkurnar á Suðurhalsej j
um eru hjegómagjarnar eigi síður
en aðrar stúlkur, eins og sjá má
af þvi, að nýlega sendi firma eitt i
London miljón dósir af andlitsdufti
suður til eyjanna. Kvað markaður-
inn fyrir þá vöru vera ágætur hjá
hinum dökku drósum.
-----x----
A síðustu árum hefir víða risið
upp sú hreyfing, að fólk eigi að
ganga' nakið, eins og Adam og Eva
gerðu i Paradís áður en höggorm
urinn kom til sögunnar. Þessi hreyf
ing hefir einkum náð útbreiðslu i
Þýskalandi, en yfirvöldin hafa hafl
eitthvað við það að athuga, að
tólk væri sainan alstripað og þó
einkum það, að það væri að flækj
asl fyrir öðru fólki, sem hefir föt
in i heiðri upp á gamla móðinn. Nú
hefir þýskt striplingafjelag tekið á
leigu eyju eina suður við Dal
matíustrendur og fær að ráða þar
lögum og lofum. Sagt er að högg
ormar sjeu á hóbna þessum svo að
nú er eftir að vita hvort Evurnar
hafa nokkuð lært siðan á dögum
nöfnu sinnar og fornömmu.
-----x----
Skáldið Erich Maria Remarqúe
l'jekk nýlega 33.000 marka sekt fyr
ir óleyfilegar peningayfirfærslur.
Hann mótmælti fyrst sektinni en sá
sjer svo vænlegast að borga.
-----x----
Selina Lagerlöf segist nú ætla að
tiætta að yrkja. Það sem eftir er
æfinnar ætlar hún að skrifa æfi
sögu sína og segir að sjer muni
ekki veita af tímanum. Fram að
þessu hefir hún gefið út þrjú bindí
af endurminningum sínum en þær
ná þó ekki nema fram á 14, árið,
svo að liklega þarf hún að halda
á spöðunum ef hún ætlar að rekja
framhaldið jafn ítarlega.
-----x----
Lögreglan i Stockfield i Banda
ríkjunum tók nýlega farandsala einn
l'astan fyrir fjöíkvæni. Hann ferðað
ist i sifellu milli ýmsra borga í
ríkjunum og kyntist ýmsu kvenfólki
á þeim ferðalögum. Giftist hann
smátt og smátt í sex bæjum og heim
sótti jafnan konu sina er hann kom
i hennar bæ og bjó hjá henni eins
og fyrirmyndar heimilisfaðir.
-----x----
Innan skamms verður ný útvarps
stöð opnuð í Moskva og á hún að
lieita Moskva C.entral. Þagnarmerki
stöðvarinnar verður fyrsta hending
in af „Internationale“ og rússnesku
verkfræðingarnir sem byggja slöð
ina halda því fram, að stöðin verði
sú sterkasta i Evrópu.
-----x----
i Búdapest hefir sá ófögnuður
komist upp um ýmsa lögregluþjóna,
að þeir hafi með hótunum haft fje
út úr stúlkum, sem stóðu undir eft
irlit þeirra. Nítján lögreglumenii
hafa verið reknir frá starfi fyrir
þessa sakir.
----x----
Miljónamæringunum i Bandarikj
unum fækkar. Siðasta góða árið þar
vestra var 1928 og þá var talið að
513 miljónamæringar (í dollurum)
liafi verið í Bandaríkjunum. Al
þeim áttu 243 heima i New York,
57 1 Illinois, 41 í Pensylvaníu og
25 i Michigan.
----x----