Fálkinn - 28.01.1933, Blaðsíða 11
F Á L K I N N
11
Yngstu lesendurnir.
Slys og orsakir.
Eftir JÓN ODDGEIR JÓNSSON.
Vart lesura við nokkurt dagblað,
að þar sje ekki getið um einhver
slys. — Hrapalegt slys. — Sorg-
legt slys. — Stórkostlegt slys. —
Slíkar eru fyrirsagnirnar og svo
kemur frásögnin: Tvo menn tók
lit af bát og druknuðu báðir. —
Drengur á reiðhjóli rakst á bíl og
meiddist mikið. — Kona snart á
rafmagnsleiðslu og skaðbrendist
o. s. frv.
Ef við tækjum okkur til og at-
huguðum rækilega, hverjar hinar
raunverulegu orsakir slysa eru, sem
við lesum um í blöðunum, mund-
um við því miður oft sannfærast
um, að óvarkárni eða vankunnáttu
var um að kenna, „Úti“ ætlar
því með fáum orðum að benda á
hinar algengustu orsakir ýmsra slysa
einkum þó rafmagnsslysa, og ráð
þau, sem að bestu gagni mega
koma til að aftra þeim eða draga
nr áhættunni.
Hættan við rafmagnið.
Eftir þvi sem jeg hefi komist
næst hafa hjen í bærium á þessu ári
alls skeð um 6 slys, er orsakast hafa
af óvarkárri umgengni við rafmagn-
ið. 7 sinnum hefir slökkviliðið í
Reykjavík verið kvatt á vettvang
til að kæfa eld, sem brotist hafði
út vegna þess, að rafmagnsstrau-
járn hafa verið skiiin eftir í hugs-
unarleysi án þess að rjúfa straum-
inn, og þannig valdið meira eða
minna tjóni (sjá 2. mynd). — Hjer
skal sagt frá 2 lærdómsríkum atvik-
um, er sýna glögt, hvernig raf-
magnsslys oft orsakast og hvað
menn geta staðið ráðalausir gegn
hættunni vegna vankunnáttu, eins
og einkum fyrra dæmið bendir á.
Það var stormur og rigning. Ó-
veðrið hafði gert ýms spjöll, meðal
annars slitið niður síma og raf-
magnsþræði, sem ýmist löfðu í
lausu lofti eða lágu á jörðinni. Á
götu einni i útjaðri bæjarins lá
rafmagnsleiðsla þvert yfir götuna,
en var þó enn föst við staurinn.
Sendisveinn, er þarna kom árla
morguns, sá að vírinn gat orðið
tit til trafala umferðinni og hugðist
því að kasta lionum til hliðar. En
um leið og hann snart á vírnum
skall hann til jarðar og engdist
þar sundur og saman af kvölum.
Það var rafstraumur i vírnum. Á
skammri stundu bar joarna að kven-
fólk og karlmenn, er horfðu með
meðaumkun á auiningja drenginn,
er helblánaði af k\Tölum. Enginn
þorði að hjálpa. Því að áhorfend-
urnir höfðu hugmynd,um það, að
hættulegt væri að snerta á dreng-
um, eins og á stóð. En enginn
hafði hugmyncl um það að hjálpa
mátti drengnum m'eð nokkrum hand
tökum, ef rjett var að farið. Sem
betur fór kom þarna að maður,
eftir nokkra stund, sem vissi, hvað
hvað gera átti til bjargar. Hann bjó í
næsta húsi. Heima átti hann hanska
úr gúmmi. Hann hljóp eftir þeim
í snarkasti og þrem mínútum síð-
ar hafði hann bjargað drengnum
úr þessum vítiskvölum. — Það sem
hann gerði var þetta: Þegar hann
hafði settt upp gúmmíhanskana og
þannig varnað þvi, að straumur-
inn næði að fara gegnum hann frá
vírnum og drengnum, Igfti hann
drengnum frá jörðinni og við það
rann vírinn úr höndum drengsins,
því þá var jarðsambandið rofið og
drengurinn þannig leystur úr viðj-
um rafstraumsins, því að eins og
kunnugt er verður rafstraumurinn
að hafa hringrás til að verka.
Hjer skal og skýrt frá öðrum at-
burði, er sýnir, hve umgengni við
rafmagnið getur verið hættuleg.
Telpubarn á öðru ári skreið á
stofugólfinu heima hjá sjer og var
að dunda við ýmislegt, sem það
náði handfestu á. I einu horni stof-
unnar stóð rafmagnsofn. Var leiðsl-
unni i hann þannig fyrirkomið, að
stunga (á öðrum enda ofnþráðsins)
var i sambandi við tengil á veggn-
um eins og verijulegt er, en þar
að auki var og stunga við sjálfan
ofninn, sem kippa mátti út og setja
í með auðveldu móti. Nú skreið
barnið að ofninum og með forvitni
óvitans fór það að þreifa á honum
hátt og látt. Rjett áður hafði móður
þess gengið út úr stofunni. Hendur
óvitans náðu tökum á stungunni
niður við ofninn og eins og börn-
um er títt, stakk það stungunni
upþ i sig. En jafnframt því að stinga
stungunni upp í sig með annari
hendinni kom barnið við ofninn
með hinni. Urn, leið og þetta skeði
náði straumurinn auðvitað tökum
á barninu, því að fullur straumur
var á leiðslunni til ofnsins, og
þegar það snerti jafnframt á ofn-
inum (sem var út málmi og þvi
góður leiðari), var hringrás straums
ins mynduð og barnið hnje út af
eins og dautt væri. Rjett eftir að
þetta skeði kom móðir þess inn.
Sá hún strax að barnið hafði orð-
ið fyrir raímagnsslysi. Hljóp hún
út í dauðans ofboði og kallaði á
mann, sem var á næstu grösum.
Hann kom samstundis og varð það
strax ljóst, hvað skeð hafði. Rauf
hann nú strauminn með því að
þrýsta á slökkvarann á veggnum,
tók siðan upp barnið, sem enn var
eins og liðið lík og hóf þegar lífg-
unartilraunir (andardráttarfram-
leiðslu) á því. Eftir nokkra stund
var það farið að anda og litlu sið
ar kom læknir og batt um sár þess,
því að bæði tunga þess og hendur
voru skaðbrendar.
Þessi tvö dæmi eru tekin af banda
hófi af mörgum sönrium atvikum
sem jeg þekki til og hefi heyrt um
að gerst hafi lijer að undanförnu,
en mjer virðist óþarfi að birta
fleiri slík dæmi, því að þessi tvi>
benda glögt á þá hættu, sem sam-
fara er umgengninni við rafmagn-
ið. En það sem almenningur þarf
fyrst og fremst að vita, er þetta:
Ef bjarga þarf manni sem fastur er
við rafmagnsleiðslu, verður sá, sem
ætlar að hjálpa, að einangra sig
svo vel sjálfur, að hann verði ekki
snortinn af straumnum, er bann
snertir á þeim, sem í hættunni er,
og það má gera með ýrrisu móti,
en hjer skal bent á auðveldustu
aðferðirnar.
1. Að nota gúmmihanska.
2. Að vet'ja liendur sinar með
þykkum og þurrum klæðnaði (eða
jafnvel með margföldu lagi af þurr-
um pappa).
3. Fara i skóhlífar eða gúmmí-
skó.
4. Að standa á þykku og þurru
teppi, frakka, þurrum við og fl.
sliku..
Þegar sá, sem ætlar að hjálpa
hefir einangrað sig þannig, svo
straumurinn nái ekki að fara i
gegnum hann til jarðarinnar er
lionuin óhætt að snerta á þeim,
sem fyrir straumnum varð, og lyíta
lionum frá jörðinni, eða losa hann
á annan hátt, eftir aðstæðum, úr
viðjum straumsins.
Til að ,forðast rafmagnsslys er
nauðsynlegt að veita eftirfarandi
atriðum eftirtekt:
Snertir aldrei á rafmagnsleiðsl-
um eða simalinum, sem slitnað hafa
niður.
Leggið aldrei loftnet fyrir (út-
varp) yfir rafmagnsleiðslur.
Kveikið ekki og stökkvið á raf-
magnslömpum með því að skrúfa til
sjálfan glóðarlampann (peruna).
Þreifið aldrei eða fiktið við ýmsa
hluti á rafmagnsvjelum.
Snertir aldrei samtímis á raf-
magnsáhöldum og hlutum, sem eru
jarðbundnir, t. d. rafmagnsofnum
og miðstöðvarofnum (eða rörum),
rafmagnssuðuáhöldum og vatns-
krönum, loftnetum og járnvörðum
þökum eða rakri jörð.
Ýmislegt fteira mætti segja um
orsakir rafmagnsslysa og varnir
gegn þeim, en hjer skal staðar nuiri-
ið að sinni og farið fáum orðum
um helstu orsakir ýmsra annara
slysa, sem myndir þær sýna er
hjer birtast.
Tvær af myndum jieim sem hjer
liirtast (3. og 4. mynd) sýna óvar-
kárni iijólreiðamanns, sem oft veld-
ur slysum.
:>. rnynd mun koma mörgum til
að brosa að aumingja manninum,
sem er að festa mynd á vegginn
hjá sjer, og nolaði stól til að stíga
á, sem sveik hann illilega, eins og
myndin sýnir. Það er því miður
altol' algengl að menn misnoli þann-
ig húsgögriin.
Slæm umgengni og hirðuleys'i um
smáhlutina getur ofl valdið ótrúlega
miklum óþægindum og slysum, (i.
mynd sýnir eitl af slikum atvikum.
Sjöunda og siðasta myndin er af
manni, sem komina er að þvi að
drukna. Látið angistarsvip hins
druknandi manns verða ykkur
hvatning til að læra og iðka sund
ug fækka með þvi hinum liðu drukn
unurn hjer við land.
Vegna þess hve litið hefir verið
skrifað fyrir almenning hjer á tandi
um framangreind efni, virtist það
vera mjög æskilegt að Rauði kross
tslands eða Slysavarnarfjelag ís-
lands sæju sjer t'ært að gefa út l'ræð-
andi bæklinga uin orsakir ýmsra
slysa og hvernig best megi aftra
þeim. Slikar leiðbeiningar um t. d.
orsakir eldsvoða, rafmagnsslysa og
m. II. mundu verða vel þegnar af
öttum.
(Úr skátablaðiriu „Vti" I932J.
Áslralskur bankaritari lagði n\
lega af stað l'rá Dover i l'erðalag
kringum jörðina. Aleigu lians var
eitt sterlingspund en l'arareyri ætl
aði hann að útvega sjer jafnóðum
með þvi að syngja fyrir fólk. Yf
irvöldin í Calais vildu ekki leyfa
honurn tandgöngu i Frakklandi
nema þvi aðeins að hann útvegaði
sjer meira fje, en pilturinn var
hvergi bræddur og bað urn leyfi til
að tnega syngja fyrir þau. Var það
leyft og samstundis var piltinum
hleypt i land og skrifað upp á
vegabrjefið iians!