Fálkinn - 19.08.1933, Qupperneq 3
F Á L K I N N
3
VIIÍUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
fíitstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
'•‘ramkvtrmdaslj.: Svavar HjaUested.
Aðalskrifstofa:
3anKastrœti 3, Reykjavík. Sími 2210.
)pin virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjöthsgade 11.
llaðiö kcmur út hvern laugardag.
vskriflarverð er kr. 1.70 á mánuði;
cr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 21 kr.
Vllar áskriftanir greiðist fyrirfram.
[ughjsingaverð: 20 aura millimeter
flerbcrtsprent, Bankastræti 3.
Skraddaraþankar.
Reiptogið milli alvinnuvega og
stjetta er eitt af því, sem mest ein-
kennir þjóðlíf yfirstandandi ára um
alian heim. íslendíngar hafa ekki
farið varhluta af þessu, eins og eðii-
legt er, þvi að þetr fylgjast með
stefnum þeim, sem efst eru á baugi
erlendis og í öðru lagi eru þeir í
verslunartilliti orðnir svo tvinnaðir
öðrum þjóðum, að þegar fjárhags-
leg vandræði steðja að hjá öðrum
þjóðum þá hljóta þau að berast
hingað líka. Samgöngurnar liafa
gert heiminn svo lítinn.
En það liggur nærri að halda,
að íslendingar vanræki og það
stórlega, að skapa með sjer sjálf-
stæðan hugsunarhátt og framkvæmd
i almennum þjóðfjelags- og fjár-
málum. Þeir vanrækja meira að
segja að athuga, í hverju ástandið
erlendis er frábrugðið ástandinu
hjer að grípa að jafnaði til erlendu
meðalanna, sem notuð eru, án þess
að íhuga fyrst hvort það er sami
sjúkdómurinn sem á að lækna. Og
þessvegna reynist lækningin ofl
verri en engin..
Viðskiftakreppan er það bölið,
sem efst er á baugi þessi árin um
allan heim — lika hjer. Þjóðirnar
liafa víggirt sig tollmúrum og þeg-
ar þetta bætist ofan á hitt, að kaup-
gela almennings fer versnandi þá
leiðir al' þessu svo mikið verðfall
á framleiðslunni, að hún fær ekki
staðist. íslendingar liafa gripið lil
tollanna og til beinna innflutnings-
hafta þar sem þeir ekki dugðu og
haft í þessu söniu aðferðir og marg-
ar aðrar þjóðir. En þeir hafa ekki
gert annað, sem þó var miklu sjálf-
sagðara, að greiða fyrir aukinni
verslun milli sjávar og sveita inn-
anlands og fyrir auknuin; iðnaði.
Það er talandi tákn tímanna, að
um sama leyti sem íslendingar gero
sanming um kjötútflutning við að'-a
þjóð, er þriðjungur landsmanna í
kjötharld. — Og hefir alt árið borg-
að hærra verð fyrir sitt kjöt, en
það sein fæst á erlenda markaðin-
um. Og það er talandi tákn tím-
anna, að aðalútflutningsvara þjóð-
arinnar skuli vera seld lægra verði
á erlendum markaði en því, sem
þriðjungur þjóðarinnar og kanske
fleiri verður að borga fyrir hana
i soðið.
Það þarf enga visindamenn nje
kaupmenn til að sjá þetta. Öll þjóð-
in sjer það. En hvað lengi ætlar
hún að horfa á það, jagast um það
og ergja sig yfir þvi, án þess að
gera það eina skynsamlega: lag-
færa þaðl
Flug Lindberghshjónanna.
Fáum gestum hefir verið fagnað
með meiri hrifningu en Charles
Lindbergh flugkappa og frú hans er
þau konm hingað síðastliðið þriðju-
dagskvöld. Með þvi að flestir bjugg-
ust við að þau mundu lenda hjer
á höfninni hafði múgur og marg-
menni safnast saman þar. Þegar
vjelin sást heilsuðu öll skipin með
þvi að blása, en flugmaðurinn færð-
ist nœr og lækkaði flugið, fór i
hringum yfir bæinn og nágrenni,
en lenti svo inni í siindum, rjelt
hjá Viðegjarstöðinni. AUmargl fólk
var samankomið inni í Vatnagörð-
um er flugmaðurinn kom í land á-
samt Steingrími Jónssyni rafmagns-
stjóra, sem tók á móti honum hjer
fyrir hönd amerikanska ftugfjelags-
ins, sem gerir út ferðina og flug-
mönnunum Grierson og Sigurði
Jónssyni, sem aðstoðuðu við lend-
inguna. Lindbergshjónin kusu að
gista um borð í vjelinni fyrstu næt-
urnar, Lindberg lætur fátt uppi um
áform sín en segist ekki munn
fljúga austur yfir haf að þessu
sinni, en . hinsvegar mun hann
fljúga hjer með ströndum fram til
að kynna sjer lendingarstaði og
mun tæþlega halda veslur aftur
fyr en eftir helgi. — lljer á mynd-
inni sjesl ennfremur Grierson flug-
maður og Sig. Jónsson.
Kristófer Egilsson járnsm. Vest
urg. 52, verður fífí ára 21. j>. m.
Frú María Kristjánsdóttir varð
áttræð Pt. j). m.
Þórhallur Daníelsson kaupm.
Hornafirði, verður 60 ára 21.
þ. m.
Hjörtur Hansson verslunarstjóri
verður 50 ára 2h. þ. m.
Guðrún Guðmundsdóttir frá
Hjálmsstöðum, varð 75 ára í
gær.
Sveinbjörn Egilson ritstjóri
verður 70 ára 21. þ. m.
Kristján Gíslason kaupm. á
Sauðárkróki, varð 70 ára í
gær.
SFINXINN RAUF
ÞÖGNINA______________
Besta ástarsagan.
Fæst hjá bóksölum og á
afgreiðslu FÁLKANS,
Bankastræti 3.
Send burðargjaldsfrítt gegn
póstkröfu um alt land.
Verð fjórar krónur.