Fálkinn - 19.08.1933, Page 9
F A L K I N N
!)
Skýstrokkarnir eda tornadoarnir, sem einkum gera mikið vart
við sig í Indlandi á vorin, gera óhemjulegt tjón. Strokkurinn
teygir sig til jarðar og sýgur með sjer ali, sem hann snertir
við. Þessi mynd er frá Indlandi, en það er miklu víðar sem
þetta náttúrufyrirhrigði gerist.
Úlfaldakapphlaup var háð í vetur suður við pyramídana í
Egyptalandi. Hjerna sjest einn þáitttakandinn hvíla sig eftir
áreynsluna. Sjá einnig myndina á næstu síðu.
Myndm hjer að ofan-er frá Hawaj og sýmr þái íþrótt, að róa
örmjóum hátum áfram með handleggjum í stað ára.
í Rúmeníu er á hverju ári samkeppni milli allra hjeraða um
hvaðan fallegasti þjóðbúningurinn komi. Hjer á myndinni sjást
þátttakendur í samkeppnininni ganga um göturnar í Bukarest
með hljóðfæraflokk í broddi fylkingar.
Myndin er ekki af síldarveiðaskipi við norðurland heldur af
makrítduggu, sem hefir veilt vel suður í Skagerak.
Myndin hjer að ofan er frá Monaeo og eins og sjá má eru fall-
byssurnar þar notaðar til skrauts í hallargarðinum, enda
þær varla að miklu gagni öðru. Þær eru sem sje frá tíð
Lúðvíks fjórtánda.