Fálkinn - 17.03.1934, Blaðsíða 3
F Á L K I N N
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
IUtstjórar:
Villi. Finscn og Skúli Skúlason.
I'raaikvn’mdastj.: Svavar,Hjaltested.
.4 ðnlskrifstofa:
'íananslræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa i Oslo:
A n I o n S c li j ö I h s g a d e 14.
BlaAið kcmnr út hvern laugardag.
Askriftarvcrð er kr. 1.70 á mánuði;
kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftanir greiðist fyrirfrain.
Anglfisinc/averð: 20 aura millimeter
Hcrbertsprent, Bankastræti 3.
Skraddaraþankar.
Heimilið.
Vitanlega getur piparsveinninn eign
ast heimili og ógiftastúlkan og barn-
lausu hjónin, en nafnið heimili er
þá lánsheiti, en ekki heimili í orðs-
ins rjetta skilningi. Til þess að geta
sagt að maður eigi algert og full-
komið heimili verður maður að
eiga heila hersingu af ættingjum
kringum sig, sem sje:
Eiginmann og föður, konu og móð-
ur, börn á ýmsum aldri, systur og
bræður, afa og ömmu, gesti og
granna og vini.
Ef eitthvað af þessu vantar þá er
heimilið ekki fullskipað. Og hafir
þú aldrei haft tækifæri til að kynn-
ast einhverjum af nefndum ættingj-
um þá hefurðu mist nokkuð úr jarð-
lífi þínu.
Það er algengt að fólk tali um ætt-
ingja sína, eins og þvi sje sama um
þá; en þeir eru samt nokkur hluti
þess umhverfis, sem náttúran hefir
auðgað okkur af, og ef þjer finst að
þeir sjeu helst til leiðiiuía, þá skall
vera viss um, að sökin er hjá þjer.
Þú getur eins vel bölvað sólinni og
og stjörnunuin eins og ættingjum
þínpm.
Það er til bæði brennandi ást og
hálfvolg ást og hvorttveggja hefir
lilverurétt, en vel sje þeim manni
og ennþá betur þeirri konu, sem
elskar þá, sem þeim ber að elska.
Tökum til dæmis afa og ömmu.
Barnið sem aldrei hefir þekt afa
sinn eða ömmu fer á mis við sum-
ar dýrmætustu endurminningar æsk-
unnar, afi og amma skilja börnin
betur en foreldrarnir, því að þau
hafa reynt að margt af þvi sem veld
ur börnunum áhyggju er svo þýð-
ingarlít'ið. — Og helst mörg syst-
kyni! Einmana barn á heimili er
eins og vængstýfður fugl; það fær
aldrei sömu heilbrigðu lífsskoðun-
ina og barn úr stórum hóp fær.
Að þvi er til litlu barnanna kem-
ur þá er fjölskylda án þeirra ljelegt
eftirmynd áf hugtakinu fjölskylda.
Bestan þroska fær lyndiseinkunn
okkar af umgengni við hörnin.
Og jeg elska fult hús af ungling-
um á ástaskeiðinu; — einasti heil-
brigði og hressandi sjúkdómurinn
sem til er, hvort hans er getið
í lækningabókum eða ekki, er ástin.
Þegar við höfum sjálf afstaðið hann
höfum við gott af að sjá hann end-
urtaka sig á þeim, sem yngri eru.
Flestir sjervitringar og gamaldags
hölsýnismenn koma að jafnaði úr
fámennum fjölskyldum, þeir hafa
farið á mis við þann heilnæma
íslenskur húsgagnadúkur.
Aukinn áhugi fyrir jiví sem ís-
lenskt er hefir meðal annars lýsl
sjer i þvi, að margir girnast það nú
orðið að eignast húsgögn með is-
lensku áklæði í stað útlends, en slikt
hefir varla tíðkast nema helst i
sveitum til þessa. En nú hefir hús-
gagnaverksmiðjan „Reynir“ tekið
þetta mál upp og hafið samvinnu
við stúlku, sem framast hefir vel í
vefnaði, um að framleiða húsgögn
með íslenskum fóðurdúkum. Stúlka
þessi er norðlensk og heitir Anna
Stefánsdóttir. Lærði hún vefnað i
heimahúsum á æskuskeiði og not-
færði sjer síðan listiðnaðarkenslu
Ileimilisiðnaðarfjelagsins, en að þvi
loknu sigldi liún til Svíjijóðar og
framaðist þar í heimilisiðnaði. .4
Landssýningunnj 1930 vakti vinna
hennar mikla athygli.
Framvegis mun „Reynir“ |)ví geta
liafl á boðstólum húsgögn með ým-
iskonar íslenskum vefnaði, bæði
salúni og dúkum og myndvefnaði,
og getað útvegað áklæðisdúka af
nýjum og sjerstæðum gerðum, eftir
pöntun fyrirfram. Er þetta spor i
áttina til j)ess, að hjer rísi upp ný
tegund j)jóðlegs iðnaðar og að fólk
geti auðgað heimili sín að húsgögn-
um, sem hafa sjerstæða gerð og
þjóðlega. Mun það eflaust færast i
vöxt, að fólk ástundi að eignast
nýjar gerðir af áklæðisvefnaði á-
húsgögn sín og getur með tímanum
orðið fjölbreytni að jiessu.
„Reynir“ á þakkir skilið fyrir að
hafa hafist handa um þetta og frá
hagnýtu sjónarmiði er j)etta ekki
j)ýðingarlaust atriði. Dúkar á hús-
giign eru yfirleitt dýr vara og það
er mikið fje, sem árlega gengur úl
úr landinu til kaupa á þeim. Með
þvi að nota íslensku framleiðsluna
getur mikið af þessu fje orðið kyrt
I landinu. Hjer á myndinni sjesl
Anna við listvefnað sinn.
RIT KNUDS RASMUSSEN.
Gyklendals bókaverslun í Kaup-
mannahöfn hefir byrjað að gefa út
heildarsafn af ritum dr. Knuds
Rasmussen. Verða það 36 hefti og
er hið fyrsta koinið út. Þetta safn
hefir að geyma öll ril Rasmussen
nema vísindaritin, sem eigi hafa
nema litla j)ýðingu fyrir almenn-
ing. Myndin ér úr j)essu safnriti
slraum mannlegleikans, sem stafar
frá fjölmennu heimili.
Mjer jjykir gaman að koma til
Smith, — þar eru þrettán börn,
heill her af barnabörnum og alstað-
ar aðeins kærleikur og samlyndi.
Frank Crane.
og sýnir þorpið .lakobshavn í
Grænlandi. Sjest prestssetrið fremst
á myndinni til vinstri, en l>ar fædd-
ist Rasmussen.
s
kipstjérar!
sjónauka 03
spíritusáttavita
Fáið þjer best í:
GLERAUGNABÚBlNlll
LAUGAVEG
—EE
3
Jónas Jónsson steinsmiður, Suð-
urgötu 31 Hafnarfirði, vrrður
85 ára í dag.
Alexander Jóhannesson, skip-
stjóri, Grettisgötu 26, verður
fimtugur í dag.
Jón Þórðarson frá Hliði á Álfta
nesi, nú í Hafnarfirði, varð
áttræður 15. þ. m.
Þýska stjórnin hefir ákveðið, að
grafa upp þýska bæinn Vineta, sem
eyðilagðist í sjóflóði árið 1362.
Fyrir 13 árum fundust vegsum-
merki um bæ þennan. 1 fornum
heimildum segir, að flóðalda hafi
lagt í rúst 1300 hús og drepið 7000
inanns í Vinetu, sem á víkinganöld-
inni var ríkasta verslunarborg við
Eystrasalt. Valdimar mikli Dana-
konungur herjaði á borg þessa 1172
og lagði hana í rúst, en tæpum
tveimur öldum síðar gerði flóðalda
út af við borgina, eins og fyr er
sagt. Visindamenn gera sjer vonir
um, að leifar þær, sem finnist við
gröftinn, muni nægja til að endur-
reisa bæinn á ný, þannig að hann
gefi hugmynd um útlit þýskra hafn-
arbæja fyrir 600 árum.