Fálkinn - 01.09.1934, Page 2
2
F Á L K I N N
------ GAMLA BÍÓ ----------
Við lifum i dag.
Efnisrík og áhrifamikil tal-
mynd í 11 þáttum, tekin af
Metro- Goldwyn Mayer.
Aðalhlutverkin leika:
JOAN CRAWFORD og
GARY COOPER.
Myndin verður sýnd bráðlega.
EGILS
FILSNEIÍ
BJÓR
MALTÖL
HVlTÖL.
SIRIDS
SÓDAVATN
GOSDRYKKIR,
9 íegundir. .
SAFT
LÍKÖRAR, 5 teg.
Nöfnin ,EGILL‘ og ,SIRIUS‘
i tryggja gæðin.
■
] H.f. Ölgerðin
i Egill Skallagrimsson
s Sími 1290.
Reykjavík.
Fálkinn er besta heimilisblaðið.
Hljóm- og
SÓLARGEISLINN.
Umkomulaus atvinnuleysingi stend
ur á einni brúnni í Wien, i þann
veginn að fyrirfara sjer. Honum
hafa brugðist allar vonir og finst
betra að binda enda á æfi sína en
þjást áfram. Hann skrifar á miða
nafn sitt og orðsendingu um, að
eigi skuli leitað að sjer, þvi æfi
sinni sje lokið. En í sama bili heyr-
ir hann óp neðan úr ánni. Ung
stúlka hefir fleygt sjer í hana, af
sömu ástæðum og hann. Hann
gleymir sinum eigin hugsunum en
tekst að bjarga stúlkunni. Lögreglan
borgar honum 50 shillinga í björg-
unarlaun og hann lofar að greiða
götu stúlkunnar. Og sóiin skín fram
úr skýjum er þau koma aftur út af
stöðinni, á samleiðinni út í lífið.
Þau hafa þegar orðið hrifin hvort
af öðru og fyllast nýrri von um það,
að lífið sje vert þess að lifað sje.
En erfið er þeim brautin. Þau
hyrja með að kaupa sjer sápustöng,
skera hana i búta, sem þau vefja i
silfurpappír og selja bóngóðu fólki
fyrir utan Stefánskirjuna i Wien,
en Anna — svo heitir stúlkan —■
spilar á greiðu til að draga fólkið
að. Þau selja litla loftbelgi og Hans
leikur negra, sem almenningur fær
að kasta klútakúlum á sjer lil gam-
ans, en einhver þorparinn hefir lát-
ið stein í eina kúlu og hittir Hans
r
NfKOMIB
FiLLEOT og
FJÖLBREVTT
ÚRVAL.
LÁRUS G. LÚÐVtGSSON
SKÓVERSLUN
talmyndir.
í höfuðið svo hann missir meðvit-
undina — og starfann. — Meðan
Hans er veikur fær Anna þann
starfa að sýna fólki áhrif nýs þvotta
lyfs í búð einni og fær það dável
borgað, en Hans fær er hann hress-
ist atvinnu við að bera auglýsinga-
spjöld um göturnar. Þau eignast 200
shillinga og setja það sem tryggingu
fyrir stöðu, er Hans er lofað sem
dyraverði í stórhýsi. En hann er
svikinn um stöðuna og missir pen-
ingana.
Myndin segir áfram með trúverð-
ugum dæmum sögu þeirra, sem eru
að berjast fyrir lífinu úti í stór-
borgunum. Og þessi saga bæði hríf-
ur og gagntekur. Áhorfandinn finn-
ur að það er sönn saga. En sögu
myndarinnar lýkur með sigri þess-
ara umkomuleysingja; ást þeirra
liefir gert þau sterk. — Aðalhlul-
verkin tvö leika Annabeila og Gustav
Frölich prýðilega vel. Myndin verð-
sýnd bráðlega á Nýja Díó.
„VIÐ LIFUM í DAG —“
Mynd þessi gerist á stríðsárunum
og bregður upp ýmsum myndum
úr ófriðnum, sjerstaklega af lifinu
um borð í tundurspillunum og af
lofthernaðinum. Hún segir frú ungrí
slúlku enskri, af hefðarættum, Diönu
að nafni, sem missir föður sinn í
stríðinu og leigir vegna fjárhags-
örðugleika út ættaróðal sitt ríkum
ungum Ameríkumanni, Bogard að
nafni. Um sama leyti sem faðir
hennar deyr, eru Ronnie bróðir
hennar og Claude æskuvinur henn-
ar, sem hún hefir verið heitin lengi
kvaddir í stríðið sem foringjar á
tundurspiili. Og nú takast ástir með
Diönu og Bogard Ameríkumanni.
En þegar Ameríkumenn fara í strið-
ið rjett á eftir er Bogard kvaddur í
flugherinn og rjett á eftir frjettist,
að hann sje fallin. Diana er þá orð-
in hjúkrunarkona á vígstöðvunum
og í sorgum sínum leitar hún til
Claude fornkunningja síns á ný. En
Bogard er eklci dauður og þegar
þau hittast aftur ákveður hún, að
snúa baki við honum og sjálfur
heldur hann að Claude eigi ríkari
ílök í henni en hann sjálfur. Claude
er ekki efnilegur eiginmaður, drykk-
feldur nókkuð og slarkfenginn, en
mesta hreystimenni svo að Bogard
fær virðingu fyrir honum og vill
draga sig i hlje fyrir honum og
hverfa úr sögunni. Þegar herstjórnin
auglýsir eftir flugmanni til að
skjóta niður herskip eitt, býðst Bo-
gard til þess, því að hann telur
enda von til að hann komist lífs af
úr þeirri för. En hinsvegar hafa
þeir Ronnie og Claude komist að
þeirri niðurstöðu, að framtið Diönu
sje betur borgið hjá Bogard en
Claude og fara þvi á tundurspilii
sínum og eyða skipinu, svo að Bo-
gard sleppi. En sjálfir koma þeii
aldrei aftur úr þeirri för.
Myndin er tekin af Metro-Goldwyn
------ NÝJABÍO ------------
„Sonnenstrahl“
(Sólargeislinn).
Hrífandi kvikmynd um ást
tveggja umkomuleysingja, sem
bjargar þeim frá lortímingu
og gefur þeim dug til að halda
áfram baráttunni fyrir lífinu.
Tekin af Paul Fejos. Aðalhlut-
verk:
ANNABELLA og
GUSTAV FRÖLICH.
Lærdómsrík og falleg mynd.
Sýn d bráðlega.
Ný bók:
Vjelritunarskóli
efir
Elís Ó. Guðmundsson,
vjelritunarkennara
í Yerslunarskóla ísands.
Bók þessi er fjölrituð, og eru
kend í henni undirstöðuatriði
vjelritunar (blindskrift) og sýnd
mörg sýnishorn af frágangi
brjefa o. þ. h.
Nauðsynleg bók íyrir hvern
þann er vill komast vel niður
í vjelritun, bæði byrjendur og
þá, sem lengra eru komnir.
Send með póstkröfu hvert á
land sem er.
Verð kr. 4,00. Fæst hjá:
Ig'HtltlEN
Itríkmwsliin - Síini 2720
Mayer undir stjórn Howard Hawks
og er prýðilega leikin. En stærstu
hlutverkin Diönu og Rogard leika
Joan Crawford og Gary Cooper og
samleikur þeirra prýðilega góður.
Kunningjana Ronnie og Claude leika
Frank Tone og Robert Young. Mynd-
in verður sýnd á Gamla Bíó á næst-
unni.
Fátækur pólskur húsmaður, sem
átti sex börn fyrir, fann nýlega barn
nýfætt, úti á víðavangi. Tók hann
það heim með sjer og fanst konu
hans fátt til um, að fá viðbót við
barnahópinn. í festi um háls barns-
ins var happdrættismiði í pólska
happdrættinu — það eina sem
móðir barnsins hafði átt. Hafði hún
fyrirfarið sjer eftir að hún hafði
borið barnið út. Seðillinn hlaut i
næsta drætti 7000 króna vinning,
sem bóndinn fjekk og greiddist hon-
um þannig ríflegt meðlag með barn-
inu.
K. Bruun.
Þetta nafn tryggir yður
góð og ódýr gleraugu.
Munið: Laugaveg 2.