Fálkinn - 17.10.1936, Blaðsíða 11
F Á L K I N N
li
YNS/fU
Fingramáltæki.
í Ameríku hafa börnin fundiö upp
á spánýjum leik, sem á skömmum
tíma liefir náð feykilegri útbreiðslu.
Höfundur leiksins nefnir hann ,,Han-
dies“ og hann gengur i stuttu máli
út á það, að þátttakendurnir eiga að
sýna með höndunum ýms máltæki og
setningar, og liinir eiga að geta ráð-
ið úr hvað það sje.
A myndinni hjer fyrir ofan sjást
ýmsar setningar sýndar með hönd-
unum í mismunandi stellingum. Nr. í
táknar til dæmis „fimmburana i rign-
ingu“ — fimmburarnir eru sýndir
sinn með hverjum fingri, en hin
hendin er lögð yfir þá og á að tákna
regnhlíf. Nr. 2 er ætluð stærri börn-
um, sem kunna svolítið í tungumál-
um. Beygði fingurinn, sem ekki á að
sjást þegár höndin er rjett fram, á
að tákna „tlie missing link“ — lið-
inn sem vantar. Það er nú nokkuð
langt sótt. Nr. 3 sýnir för Napoleons
yfir Alpafjöll.
Og Iivað haldið þið svo að tvær
síðustu myndirnar eigi að tákna? Nr.
4 táknar: Inn um annað eyrað og
út með hitt. Og nr. 5 táknar þriggja
tugthúsvist — þrjú ár bak við grind-
urnar.
Nú skuluð þið spreyta ykkur á að
finna ný dæmi og sjá hvernig það
gengur.
Þetta reynir
ð eftirtektina.
Hjerná kemur skemtileg þraut
handa ykkur til þess að reyna eftir-
tektina á. Eins og þið sjáið eru á
myndinni ýmsar teikningar úr flat-
armálsfræði, sirkill, sexhyrningur,
þríhyrningur og ferhyrningur og fylg-
ir tala hverri mynd og sumum marg-
ar. Nú liggur þrautin í því að svara
eftirfarandi spurningum sem fljótast ■
Hvaða tölur erti I ferhyrningnum
en ekki í sirklinum, þríhyrningnum
eða sexhyrningnum? Hvaða tölur eru
í sexhyrningnum, en ekki i sirklinum
eða þríhyrnjngnum? Hvaða tölur ertt
í öllum myndunum nema þrihyrn-
ingnum? Hvaða tölur eru i sirklin-
um en ekki í ferhyrningnum eða
þríhyrningnum? Hvaða tölur eru i
öllum myndunum nema þrihyrningn-
ttm? Hvaða tölur eru i sexhyrningn-
um, og þríhyrningnum en ekki i
hinum myndunum?
Sá sem getur svarað öllum þess-
um spurningum skriflega á þremur
mínútum hefir nijög góða eftirtektar-
gáfu.
Ameríkanskt
heilbriQðisfjelag.
Stórt barnablað í Bandaríkjúnum
liefir tekið upp þá ágætu hugmynd
að stofna félag meðal lesenda blaðs-
ins. Þetta fjelag heitir „Fjelag góðr-
ar heilbrigði“ og þeir setn eru i fje-
laginu skuldbinda sig til að taka upp
ýmsar reglur til þess að varðveita
heilbrigði sína.
Á hverjum mánuði útbýtir blaðið
verðlaunum meðal lesenda sinna fyr-
ir það að lialda sent best heilbrigðis-
reglurnar. Og við verðlaunaveiting-
arnar er þessum reglum fylgt: Með-
limirnir fá lista með ýmsum reglum
l>egar þeir rita sig inn í fjelagið,
þessar reglur eru margar og marg-
vislegar en miða allar að því að auka
heilbrigðina og varðveita heilsuna.
Meðal annars eiga börnin að drekka
mjólk á hverjum degi. Maður á að
fara snemma að liátta og sofa fyrir
opnum ghigga. Maður á að þvo sjer
og bursta tennurnar oft á dag og
maður á að vera sem mest úti. En
þetta er ekki nema lítið af ölluni
reglunum sem settar eru. Auk listans
fær hver meðlimur „einkunnabók'*
sem foreldrarnir eiga að færa ein-
kunnir inn í og í þessari hók er gef-
ið eitt stig fyrir hverja reglu sem
haldin er að fullu allan mánuðini,.
Það eru 24 atriði á listanum og ef
þau eru öll haldin í einn dag þá eru
24 stig færð inn í bókina. Á hverjum
tnánuði er svo einkunnabókin send
hlaðinu og sá fær liæst verðlaun,
sem liel'ir flest stig. Sjerstaklega dug-
legir meðlimir eru gerðir að „riddur-
um góðrar lieilbrigði" — og þykir
börnunum mikill sómi að þeirri
nafnbót.
Samló.
Þið munið eflaust eftir yo-yo-far-
aldrinum, sem gekk hjer yfir um árið.
En nú er komið upp nýr faraldur.
sem gengur yfir heiminn, og er liann
Listin er i því fólgin að slá linúta
á handið, eins og myndirnar bera
með sér. Að vísu veitist það erfitt
í fyrstu, en því meiri ánægja verður
af því, þegar vel tekst, og æfingin
gerir meistarann.
kallaður samló. Hann er fundinn upp i
Danmörku og breiðist ört út þaðan.
Áhaldið sjálft er ekki sjerlega marg-
hrotið — lítil, kringlótt skífa í bandi.
í þessunv mánuði fer fram sam-
keppni i Kaupmannahöfn um það,
Itver sje leiknastur I samló-listinni.
Sitthvað íyrir
laghenta.
1. Ef maður sverfur skrúfuhaus
eins og sýnt er á myndinni er ekki
hægt að skrúfa skrúfuna úr aftur.
Því að skrúfjárnið festir ekki á
skrúfunni.
2. Iljerna sjáið þið hvernig hægt
er að búa sjer til nálhús úr gömlum
og ónýtum sjálfblekung.
3. Ef maður vill negla eitthvað sam-
an án þess að naglinn sjáist fer mað-
ur að eins og sýnt er á mynd 3. Mað-
ur sker upp spón úr trjenu með
beittu sporjárni og neglir svo og
leggur flýsina yfir á eftir.
4. Til þess að fyrirbyggja það, að
liægt sje að ýta lykli úr skráargatinu,
að utanverðu frá, er það ráð haft
að fesla krók við skráargatið eins og
sýnt er á mynd 4.
5. Ef maður á að skrúfa skrúfu
þar sem erfitt er að komast að getur
maður haldið skrúfunni með pappa-
ræmu eins og sýnt er á mynd 5.
Tóta frœiika.
Rogér Bliss í Philadelpliia fer fram
á skilnað frá konu sinni, og vinir
hans þykjast nú altaf liafa vitað, að
svona hlyti það að fara fyrir Roger.
Hann hitti nefnilega konu sína fyrsta
sinni 13. apríl 1913. Trúlofunin var
gerð opinber 13. april 1919 og vígsl-
an fór fram föstudaginn 13. kl. 13 í
ltirkju, senv liggur i 13. götu. En það
versta var, að ungu hjónin fóru í
brúðkaupsferð sína í járnbrautar-
vagni, sem bar númerið 13, og í
klefa nr. 13.
Fimmburarnir Dionne hafa þegar
fengið útborgað 50.000 dollara fyrir
að láta kvikmynda sig. Nú hermir
fregn frá Hollywood að annað fjelag
bjóði foreldrunum 100.000 dollara
fyrir næstu mynd, sem sýnir fimm-
hurastúlkurnar. í þeirri mynd á Jean
Hersliolt hinn danski að leika að-
alhlutverkið, að svo miklu leyti sem
fimmburarnir gera það ekki.
----x----
Á einum degi komu 7000 erlendir
og 70.000 bilar annarsstaðar að úr
Þýskalandi til Berlínar um daginn.
Það var tekið til þess hve vel um-
ferðalögreglunni tókst að stýra öll-
um þessum bifreiðum rjetta leið, þvi
það kom ekki fyrir eitt einasta slys
af völdum þessara bifreiða. En svo
ríkir líka regla í Berlínarborg betn
en nokkurs staðar annarsstaðar.
----x——
Á kvennaráðstefnu í Ameríku uni
uaginn þar sem friðarmálin voru á
dagskrá, var samþykt einum rómi til-
laga um að gangast fyrir því að að
minsta kosti 3 af hverjum 100 mann-
eskjum, sem ganga í hjónaband, gift-
ist konu eða karli frá öðru landi.
Þetta á að tryggja friðinn i heiroin-
um betur en alt annað, halda kven-
skörungarnir fram.
----x----
í Vatikanbænum í Rómaborg búa
700 menn ásamt páfanum. í þess-
ari ,.borg“ eru tæpir 600 talsimar, en
það svarar til 85 talsímum á hverja
100 inenn. í Ameríku eru aðeins 13.4
á hverjar 100 manneskjur, i Bretlandi
5.1 og í Frakklandi 3.3. Þá er og
sagt að heimsins fullkomnasta fang-
elsi sje í páfaborginni, svo það verð-
ur varla annað sagt, en að páfinn
fylgist vel með tímanum.
----x----
á Oriental-gistihúsinu í Kobe býr
breskur maður, sem lieitir Mody.
Hann hefir húið 15 ár í sama her-
berginu og liefir aldrei farið út.
Hann sefur alla daga, en á nóttunni
er hann á ferli um herbergið og er
þá ítð dunda við ýmislegt smávegis.
Maðurinn hlýtur að vera eitthvað
geggjaður. Hann hefir samtals borgð-
að um 200.000 kr. til gistihússins
þessi 15 ár — og segist aldrei ætla
að flytja úr herberginu.