Fálkinn - 24.10.1936, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
AF VÍGSTÖÐVUNUM Á SPÁNI
er myndin hjer að ofan. Hún er af
norðurvígstöðvunum og sýnir stjórn-
arhermann vera að hlaða sprengjur,
sem á að granda uppreisnarmönnum
með.
FóTAFIM KVIKMYNDADIS.
Þessi stúlka heitir Marjorie de
Haven og er talin efnilegasta dans-
mær í Bandarikjunum. Bráðum kem-
ur hún fram í aðalhlutverki í stórri
kvikmynd.
FLOTTINN TIL FRAKKLANDS.
Þegar spönsku uppreisnarmennirn-
ir tóku Irun og San Sebastian flýði
fjöldi fólks þaðan yfir landamærin
lil Frakklands. Á myndinn sjest
flóttakona með tvö börn sín.
FRÁ TEL AVIV.
Vegna óeirðanna í Palestinu hefir
verið sett gaddavírsgirðing kring um
Tel Aviv, hina nýju höfuðborg Gyð-
ingalands. Á myndinni sjest ungur
Gyðingur halda vörð við girðinguna.
Rfl|M
lilltfiíi!
|
ÍIÉÍ
Ép! |
WfflM
m 'í , - , - \
Wmmm-
FRÁ MALAGA.
Malaga er talin ein af fegurstu og
einkennilegustu borgum á Spáni. Er
hún höfuðstaður i samnefndu fylki
á Suður-Spáni og liggur hjá ósi ár-
innar Guadalmedina, þar sem luin
fellur út í Malagaflóa. Borgin telur
um 140.000 íbúa, en i öllu fylkinu er
FLUGÆFINGAR I RUSSLANDI.
A myndinni sjást hundruð manna
fleygja sjer út úr flugvjelum með
fallhlífar, svo að líkast er að sjá og
i fuglabjargi.
rúmlega hálf miljón manna. Malaga
er talið runnið af fönikíuorðinunmíA-,
sem þýðir saltgerð, en úr sjónum við
við Malaga, liefir öldum saman verið
unnið salt. Fönikiumenn tóku sjer
bólfestu í Malaga, en síðar Kartago-
borgannenn, þá Rómverjar og loks
Arabar og kennir því margra grasa
í byggingarlagi borgarinnar. En mest
ber þar á dómkirkjunni miklu, sem
verið var nær tvær aldir að byggja,
frá 1538 til 1719 og frægu vígi frá
miðöldunum, sem heitir Castell Gibral-
faro. Þar er og nautvígavöllur — op-
ið hringleikhús — sem rúmar um
11.000 manns. — Aðal útflutningsvör-
ur Malagahjeraðsins eru rúsínur, vín
viðarolía og blý en iðnaður er líka
lalsverður, bæði járn og vjelaiðnaður
og bómullarspuni.
Undanfarnar vikur hafa ákafar or-
ustur verið háðar um Malaga og
hefir stjórnrherinn átt mjög í vök
að verjast að halda borginni. Og
ýmsar frægar og gamlar byggingar
og listasöfn hafa verið eyðilögð. --
Myndin er frá torginu i Malaga og
sýnir legu borgarinnar, i hækkandi
hliðum upp frá ánni.
KONUNGURINN TEKUR MÓTI
HEILLAÓSKUM.
Myndin er tekin á síðasta afmælis-
degi Ivristjáns konungs, 20. f. m.
Hann byrjaði daginn eins og svo oft
með því að fara í reiðtúr og stóð þá
ekki á börnunum að raða sjer upp
þar sem leið hans lá um, til þess að
geta óskað lionum til hamingju. A
myndunum sjást nokkrir af þessum
ungu „gralulöntum“.