Fálkinn - 17.04.1937, Síða 2
2
F Á L K I N N
-------- GAMLA BlÓ --------------
Armur laganna.
(PANSERBASSE).
Afar spennandi og spreng hlægi-
leg gamanmynd.
AÖalhlutverkiS leikur frægasti
skjopleikari Dana:
IB SCHÖNBERG.
Sýnd á næstunni.
Amerískur glæpaforingi, sem kall-
aður er „enski Jói“ hefir flúið yfir
landamærin og til Mexikó við fimta
mann. Lögregla Bandaríkjanna er á
hælum þeira fyrir bankarán og
morð, sem þeir hafa framið. . . En
Jói hefir með höndum ráðagerð, sem
á að gera hvorttveggja í senn: koma
þeim undan armi rjeitvísinnar og
gefa þeim tækifæri til annars fyrir-
tækis. Svo stendur á að gamall
verkfræðingur sem er Mexikómaður,
en hefir lengi dvalið í Bandarikj-
unum, hefir horfið til Danmerkur
til þess að fullgera merkilega upp-
finningu, sem hann hefir lengi haft
með höndum, en það er hljóðíaus
hríðskotabyssa.
Jói er ekki í miklum vafa um, að
þessi uppfinning hlýtur að vera mik-
ils virði, svo mjög sem allar þjóð-
ir búa sig undir ófrið. Hann gefur
þvi fjelögum sínum skipun um að
fylgja sjer til Danmerkur, en þá er
fyrst að vita, hvar í veröldinni það
tand sje og því næst að fá um það
ymsar aðrar upplýsingar, fyrst og
fremst hvernig það sje búið lög-
reglu. Foringinn fullyrðir að land-
ið sje mjög friðsamt og lögreglan
þar sauðmeinlaus, en þegar hann
var að gefa þessar upptýsingar, tók
hann ekki Póla með í reikninginn.
Jens Póli, eins og hann var kall-
aður, var einn af þessum stríðöldu
lögregluþjónum sem altaf fer sí-
fækkandi i Kaupinhöfn. Hann var
vanur að kippa því, sem við þarf í
iag með sem minstum seremoníum,
og enginn hefir heyrt þess getið,
að hann hafi nokkurtíma eytt tima
í það að skrifa skýrslu. Póli er yfir-
ieitt vel kyntur í nágrenni sínu, en
þó á hann einn óvin, sem sje hnefa-
leikamanninn, s'em er keppinautur
hans um fallegu stúllcuna í Mjólkur-
búðinni.
Póli býr með starfsbróður sínum,
sem er á verði að nóttu til. Við hlið-
ina á honum er Eva, ung sauma-
kona og bróðir hennar, sem er at-
vinnulaus smiður. Ennfremur lítil
systurdóttir þeirra, Connie. Þau eiga
ervitt uppdráttar og eitt kvöld ættar
smiðurinn að drekkja sjer, en Póíi
dregur hann í land. Næsta morgun
kernur hann út snemma og ætlar til
yfirmanna sinna, og býst nú heldur
en ekki við forfrömun. En þá kem-
ur liann þar að, sem bíll hefir keyrt
yfir barn og það reynist vera Connie
litla ....
Efnið verður hjer ekki lengra rak-
ið, en Ib Scliönberg leikur aðal-
hlutverkið og myndin verður sýn.l
á GAMLA BlÓ á næstunni.
Þremur vikum áður en ítalir vörp
uðu fyrstu sprengikúlunni i Etíópíu
auglýstu skemtiferðaskrifstofurnar í
Róm svolátandi: Skemtiferðamenn!
Árið 1936 gerum við út skemtilegar
og ódýrar hópferðir frá Milano til
Addis Abeba. Heimleiðin verður far-
in um Eritreu og Lybíu. Skoðið
fyrverandi keisaradæmi negussins!
-----------------x----
Með nákvæmum hljóðmælingará-
höldum hafa menn nú komist að
þeirri niðurstöðu að hávaði af götu-
umferð sje 10% me'iri í New York
en í London.
NÝJA BIÓ.
Metropolltan.
Stórfengleg amerisk söngva-
mynd frá Fox fjelaginu. Aðal-
hlutverkið leikur og syngur
frægasti barytonsöngvari heims
ins.
LAWRENCE TIBBETT
er syngur meðal annars í mynd
inni ariur ur operunum Cai-
men, Rakarinn i Sevilla og for-
leikinn að Bajads.
Þetta er söngmynd með hinum
heimfræga Lawrenre Tibbet, sem
enginn getur orðið þreyttur á, i
aðalhlutverkinu.
Anne Merrill er ung sópransöng-
kona, sem er á skemliferð í bíl sín-
um á Long Island. Hún hefir út-
varpstæki í bílnum, og fer að hlusta
í það á fræga ítalska söngkonu,
sem er að syngja úr Faust. Ann tck-
ur sjálf undir, svo glymur gegnum
skóginn. Maður, sem er þarna einn
á ferð, nálgast hægt og hægt, en
þegar hann er kominn nægilega
nærri tekur hann sjálfur undir með
söngkonunni. Ann verður hrifin
af því hve vel maðurinn syngur, en
hann er annars frægur söngvari,
Tommy Renswick, þó hún hins-
vegar þekki hann ekki. Hann gefur
sig nú til kynna, en næsl þegar al-
menningsvagn kemur þar að, flýtir
hann sjer að komast upp i hann og
til New York, en áður hefir hann
sagl henni, að hann syngi það i
Metropolitan-óperunni. Ann hefir
hinsvegar orðið svo hrifin af mann-
inum og söng hans, að hún ákveður
að leita hann uppi. úr þvi verður
næsta kvöld; liún fer þangað með
Niki Baroni, sem einnig er kunn-
ingi Tommys. Þegar þau koma í her-
bergi Tommys, sem þá er í stúrnu
skapi, því forstjórinn er nýbúinn
að svíkja hann um hlutverk, s'em
hann átti að fá, og verður þetta li!
þess að hann ákveður í reiði sinni
að fara strax, því hann vill ekki
gera-sjer ati góðu að syngja í kórn-
um, eins og honum hafði verið boð-
ið upp á. Ann fer síðan með kunn-
ingja sínum heim þangað sem
Tommy býr ás'amt fleiri söngmönn-
um, en síðar um kvöldið,’ þegar liún
m. a. hefir sýnt hvað hún getur
sungið, kemur boð til Tommys frá
frægri óperusöngkonu, sem er í þann
vcginn að stofna sjálf til sýninga á
söngleikjum. Svo fer, að samningar
takast með söngkonunni — Ghita
Galin — annarsvegar og Tommy
og fleirum, sem þarna eru viðstadd-
ir hinsvegar, og er akvarðað að
leita fyrst fyrir sjer í Philadelpliia.
Síðan hefjast æfingar og stendur
Tommy aðallega fyrir þeim, en
hinsvegar er sjálf forstöðukonan svo
byskin, að til v.andræða liorfir. Eyð-
ir hún mestum tíma í að draga sig
eftir Tommy, Sem hún hafði verið
ástfangin af, áður fyr, en hann ekki
viljað við henni líta. Gerist ýmislegt
sögulegt i sambandi v;ð það, sem
betra er að sjá með eigin augum.
Myndin verður sýnd á NÝA BÍÓ.
Svissneskur bóndi sem heitir Hans
Wiirtberger hafði átt í málaferlum
við nágranna sinn i 40 ár um land-
skika sem báðir þóttust eiga, og
faðir hans hafði átt. Þegar fram í
sótti þótti honum dýrt að borga
málaflutningsmanninum og tók sig
því til sjálfur og fór að nema lög-
fræði, þegar hann var orðinn sjöt-
ugur. Hann tók embættispróf — og
vann málið.
Guðm. Guðmundsson, óðals-
bóndi Nesjum ú Miðnesi, varð
60 ára 13. þ. m.
Hannes Elísson kaupm. Hellis-
sandi verður Vó ára 19. þ. m.
Sveinn Jónsson kaupm. verður
75 ára 19. þ. m.
Guðm. Lýðsson bóndi, Ejalli,
Skeiðum, verður 70 ára í dag.
I.ÍKA HEIMSMET!
Englendingurinn Tim Carter tók
sjer það fyrir hendur að sjá hve
mörgum eldspítum hann gæti raðaö
ofan á ölflöskustút. Þegar myndin
var tekin voru spíturnar orðnar
4460 en Carter hefir haldið áfram
síðan.
LOÐKÁPA FYRIR 20.000 KR.
Þessi loðkápa, sem var saumuð fyr-
ir ófriðinn handa rússneskum stór-
fursta og kostaði þá 20.000 krónur,
hefir nú verið boðin til sölu i London
fyrir 6000 krónur.
AUGUST PICCARD
prófessor, sem varð heimsfrægur
fyrir háloftsflug sín fyrir nokkrura
árum starfar enn að háloftsrann-
sóknum. Nú hafa Ameríkumenn boð-
ist til að kosta hann í nýja ferð upp
í geiminn, og Piccard hefir tekið
boðinu, og ætlar að hafa konu sina
með sjer.