Fálkinn - 30.10.1937, Qupperneq 14
Eldsvoði í Reykjavík.
Gömul hjón brenna ínni.
SíðastliÖinn föstudag um nónbil
koin upp eldur í húsinu nr. 16 við
Bergþórugötu í Reykjavík. Húsið var
tvilyft timburhús. Kom eldurinn upp
niðri í húsinu og læsti sig svo fljótt
efti5r þurrum viðunum, að eftir ör-
stutla stund var stiginn upp á loftið
ófær vegna elds og bruna. Uppi á
leftinu bjuggu meðal annara gömul
hjón, Ástriður Jónsdóttir og Kristó-
fer Bárðarson. Enda þótt slökkvi-
liðið kæmi á vettvang mjög fljótlega
og bæði slökkviliðsmenn og aðrir
gerðu alt, sem i þeirra valdi stóð,
til þess að bjarga gömlu hjónunum
niður af loftinu,, tókst það ekki og
brunnu þau þar bæði inni.
Upptök eldsins voru þau, að telpa
9 ára gömul, dóttir konunnar, sem
bjó í austurenda hússins niðri, vai
að taka til i íbúðinni, en móðir
hennar var við vinnu úti i bæ. Ætl-
aði telpan, ásamt annari telpu úi
nágrenninu, að þvo gólfið og vildi
i jiví skyni hita vatn. Virtist þeim
eldurinn dauður í eldavjelinni, en i
rauninni liafði konan falið hann,
áður en hún fór út. Fengu þær lán-
aðan eldspýtustokk, bleyttu pappirs-
blað í benzíni, sem geymt var í
leirbrúsa í skáp í eldhúsinu, og
kveiktu í brjefinu. Fuðraði það upp,
en er það virtist ætla að kulna út.
lielti önnur telpan úr bensínbrúsan-
um í eldavjelina, og gaus ])á upp
eldurinn, sem falinn hafði verið, og
varð svo niikið bál, að þær rjeðu
ekki við neitt nje heldur annað
heimilisfólk, er að kom.
Gömlu hjónin, sem inni brunnu.
voru bæði á níræðis aldri, hann 85
ára, en hún 86. Ilöfðu þau átt heimn
í Reykjavík i 53 ár.
Þessi sorglegi eldsvoði ætli að ver.i
alvarleg áminning öllu fólki, eldr-i
sem yngra, að fara varlega með eld-
fim efni og hafa þau yfirleitt alls
ekki á glámbekk í íbúðarhúsum
manna. 1 rauninni ætti að vera
bannað að nota benzín á þann liátl
sem víða tíðkast til þvotta og fata-
hreinsunar. Hcfir að ]iví orðið margt
tjónið. — En svo er að sjá sem
menn eigi býsna örðugt með að
láta sjer vítin að varnaði verða.
jafnt í þessu efni sem öðrum.
Myndirnar að ofan sýna húsið
alelda, en myndin að neðan gömlu
hjónin, sem fórust í eldinum.
STRÍÐIÐ í KÍNA.
B.ARÁTTAN VIÐ KRABBAMEINIÐ.
Myndin hjer að ofan er tekin i
námunda við vígstöðvarnar í Norð-
ur-Kína og sýnir menn, sem eru
aft kanna járnbrautina á ljettivagni
sinum. í baksýn er forn kínversk
pagóða.
Hermaður í japönsku loftvarnar-
vígi í nánd við alþjóðaliverfið i
Shanghai svipast í kíki sinum eftir
kinverskum flugvjelum. Varnargarð-
urinn er búinn til úr samanvöfðum
liengirúmum.
Nýjasta vopnið í baráttunni við
krabbameinið er Röntgenáhald með
220.000 volta spennu, og liefir það
verið notað með góðum árangri í
sjúkrahúsi i Wasliington. Myndin
sýnir hið nýja áliald i notkun.
Marteinn Meulenberg biskup.
verður 65 árci 30. þ. m.
Matthías Þórðarson, þjóðminja-
vörður, verður 60 ára 30. þ. m.
Guðmundur J. Guðmundsson
bifreiðarstjóri, Lauganesveg 38,
verður 'iOára 30. þ. m.
Maður er nefndur Alec Temple-
ton og er blindur og 21 árs að aldri.
Fyrir hálfu öðru ári fór hann að
koma fram opinberlega á fjölleika-
húsum í London og ljek svo vel á
píanó, að allir undruðust. Ilann
vann fyrir 200 krónum á viku í
L'ondon og var sjálfur ánægður með
þau kjör. En nú er hánn kominn
til Ameríku og þar fær hann 15.000
króna kaup á viku fyrir að spila á
fjölleikhúsum og fyrir útvarpsfje-
lög. Templeton hefir verið bilndur
frá fæðingu og hefir aldrei sjeð
bljóðfæri, nótnablað eða nokkuð
annað. Foreldrar hans yfirgefa hann
aldrei en fylgja honum hvar spm
hann fer.